Gus Poyet, sem lék með Tottenham á árunum 2001-2004 hefur verið ráðinn sem einn af aðstoðarþjálfurum Juande Ramos. Poyet hefur verið aðstoðarþjálfari Leeds um nokkurt skeið með góðum árangri.
Nýr þjálfari – sömu leikmenn
Þó svo að stjórn Tottenham hafi losað sig við Martin Jol, virðist það ekki hafa breytt gengi liðsins í bili að minnsta kosti. Það hefði mátt halda að botninum hafi verið náð, en eftir leik dagsins er maður ekki viss.
Ramos er nýr stjóri Tottenham
Juande Ramos hefur verið ráðinn stjóri í stað MArtin Jol sem rekinn var á fimmtudag. Ramos kemur frá Sevilla þar sem hann hefur náð mjög góðum árangri. Hann mun taka við liðinu á mánudag og því verður fyrsti leikur hans með liðið leikurinn gegn Blackpool í deildarbikarnum.
Martin Jol var rekinn
Það hefur verið staðfest að Martin Jol hafi verið rekinn sem stjóri hjá Tottenham. Það gerði hann fyrir leikinn í gærkvöldi sem tapaðist 1-2. Ekkert hefur verið gefið út um hver tekur við en sögusagnir segja að Ramos hafi samþykkt að koma jafnvel í næstu viku og þá er talað um að Poyet muni verða aðstoðarmaður hans.
Meiðsli Bale ekki alvarleg
Eftir miklar rannsóknir og myndatökur er komið í ljós að Gareth Bale er ekki alvarlega meiddur, þ.e. hann er ekki brotinn, einungis brákaður og bólginn. Talið er að hann muni vera frá í 7-10 daga og eru það góðar fréttir að hann skuli ekki vera lengur frá þar sem hann hefur verið einn af sprækustu leikmönnum okkar á tímabilinu.
Enn eitt tapið!!!
Tottenham tapaði enn einum leik sínum í gær þegar þeir mættu Newcastle á útivelli og hafa því einungis unnið einn sigur í fyrstu tíu leikjunum. Leiknum lauk með 3-1 sigri Newcastle en mark Tottenham skoraði Robbie Keane.
Er martröð Ledley King að ljúka?
Samkvæmt fréttum í dag og síðustu daga er reiknað með að fyrirliði Spurs, Ledley King, muni geta hafið æfingar eftir hálfan mánuð. King meiddist í júní í leik með landsliðinu og hefur ekki getað leikið síðan.
Tottenham í G riðli
Dregið var í riðlakeppni UEFA cup nú fyrir stuttu og lenti Tottenham í riðli G ásamt Anderlecht (Belgíu), Getafe (Spáni), Tel Aviv (Israel) og Aalborg (Danmörku). Fyrsti leikurinn er heimaleikur gegn Getafe þann 25. október, svo er útileikur gegn Hapoel Tel Aviv 8. nóvember, þar næst er heimaleikur gegn Aab Aalborg 29. nóvember og að lokum útileikur gegn Anderlecht 6. desember. Tottenham situr hjá í síðustu umferðinni í riðlinum.
Dregið í UEFA Cup
Dregið verður í UEFA Cup kl. 11:00 þriðjudaginn 9. október. Tottenham eru í drættinum og eru í 2. styrkleikaflokki.
Liverpool 2-2 Spurs
Í annað skipti á innan við viku var skorað mark í uppbótartíma í leik með Tottenham, en í þetta skiptið voru það ekki Spurs sem skoruðu markið.





