Page 70

Jafnt á Kýpur

0

Tottenham gerði jafntefli við Anorthosis Famagusta í síðari viðureign liðanna um sæti í riðlakeppni UEFA Cup. Lokatölur leiksins voru 1-1 og kemst Tottenham þar með áfram þar sem fyrri leikurinn fór 6-1 og því samanlagt 7-2. Mark Tottenham í leiknum skoraði Robbie Keane. Dregið verður í riðla þann 9.október næstkomandi.

Afmælismarkaveisla

0

Það var sannkölluð markaveisla á White Hart Lane þegar Tottenham tók á móti Aston Villa mánudagskvöldið 1.október en þá var einnig verið að fagna 125 ára afmæli félagsins og kvöldið því ansi sérstakt. Átta mörk litu dagsins ljós í leiknum og skiptust jafnt á milli liða 4-4. Mörk Tottenham skoruðu þeir Berbatov, Chimbonda, Keane (V) og Kaboul.

Carling Cup

0

Dregið hefur verið í fjórðu umferð Carling Cup. Tottenham fær lið Blackpool í heimsókn á White Hart Lane. Leikirnir verða spilaðir í vikunni sem hefst þann 29.október og því er líklegt að leikur Tottenham fari fram 31.október. Leikdagur verður þó auglýstur síðar. Aðrar viðureignir eru þessar:

Jafnt á Reebok Stadium

0

Ekki var ferðalag Tottenham á Reebok Stadium árangursríkt frekar en fyrri ár en leiknum lauk með jafntefli 1-1. Mark Tottenham skoraði Robbie Keane en Ivan Campo jafnaði fyrir Bolton.

Stórsigur í UEFA cup

0

Tottenham vann stórsigur á liði Anorthosis Famagusta í fyrri viðureign liðanna í UEFA cup en sigurvegarinn kemst áfram í riðlakeppnina. Þessi leikur var háður á White Hart Lane en sá síðari verður í Kýpur á þeirra heimavelli. Lokaniðurstaða leiksins var 6-1 og voru það þeir Kaboul, Dawson, Keane, Bent og Defoe (2) sem skoruðu mörk Tottenham.

Tap í Norður Lundúnaslagnum

0

Tottenham tapaði fyrir liði Arsenal í slag Norður Lundúna liðanna með þremur mörkum gegn einu. Mark Tottenham skoraði Gareth Bale, hans annað mark fyrir Tottenham en mörk Arsenal skoruðu þeir Adebayor (2) og Fabregas.

Fyrsta ferð Tottenham klúbbsins!

0

Nú er komið á hreint að fyrsti leikur Tottenham í evrópukeppninni er á White Hart Lane gegn Getafe þann 25. október. Það þýðir að farið verður á tvo leiki í ferðinni, þann fyrri á fimmtudagskvöldinu og þann síðari á sunnudeginum. Einungis örfá sæti eru laus í ferðina og því um að gera að hafa hraðann á ef fólk ætlar að skella sér. Lokadagur til að panta ferðina er þriðjudagurinn 16.október.

Jafntefli á Craven Cottage

0

Tottenham gerði jafntefli við Fulham á Craven Cottege 3-3 þar sem liðið spilaði með yfirburðum en missti niður tveggja marka forystu á síðustu 15 mínútum leiksins. Mörk Tottenham skoruðu þeir Kaboul, Berbatov og Bale.

Tilkynning

0

Á næstu dögum munu meðlimum Tottenham klúbbsins berast greiðsluseðill fyrir árgjaldi klúbbsins. Ef einhver sem hefur skráð sig í klúbbinn fær ekki seðilinn er hægt að senda okkur tölvupóst á spurs@spurs.is . Einnig er hægt að senda okkur póst ef menn vilja skrá sig í klúbbinn.

Boro í Carling Cup

0

Dregið var í morgun í 3.umferð Carling Cup og fengum við heimaleik gegn Middlesbrough. Leikurinn verður spilaður þriðjudaginn 25. september og hefst kl.18:45 að íslenskum tíma.

Nýjustu fréttirnar