Page 71

Murphy til Fulham

0

Danny Murphy gekk til liðs við Fulham í gærkveldi á lokadegi félagaskiptagluggans. Murphy gekk til liðs við okkur í janúar 2006 og spilaði 29 leiki fyrir okkur en náði ekki að festa sig í sessi sem fastamaður í byrjunarliði.

Við óskum Murphy alls hins besta hjá nýju félagi og þökkum honum fyrir hans framlag til liðsins.

Dregið í UEFA cup

0

Dregið var í dag í fyrstu umferð UEFA cup og dróst Tottenham gegn Anorthosis Famagusta sem er lið frá Kýpur. Fyrri leikurinn verður spilaður 20.september á White Hart Lane en sá síðari á heimavelli Famagusta þann 4. október. Sigurvegari úr þessum viðureignum kemst svo áfram í riðlakeppnina en dregið verður í hana 9.október.

Barnard í lán

0

Lee Barnard hefur verið lánaður til neðrideildarliðsins Crewe fram í janúar. Barnard átti við meiðsli að stríða allt síðasta tímabil en hefur verið leikhæfur allt undirbúningstímabilið. Lánið ætti því að veita honum mjög þarfa leikæfingu.

Jenas semur til 2012

0

Jermaine Jenas skrifaði í dag undir framlengingu á samningi sínum við Tottenham. Hann gerði nýjan og endurbættan 5 ára samning sem gerir hann því samningsbundinn félaginu til ársins 2012.

Tap á Old Trafford

0

Tottenham tapaði leik sínum gegn Manchester United sem háður var á Old Trafford 0-1. Eina mark leiksins skoraði Nani á 69.mínútu.

Stórsigur á Derby

0

Tottenham vann sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar þeir lögðu Derby í sannkallaðri markaveislu á White Hart Lane. Leiknum lauk með 4-0 sigri Spurs og voru það þeir Steed Malbranque (2), Jermaine Jenas og Darren Bent sem skoruðu mörkin.

Mido seldur

0

Tottenham tilkynnti í dag að tekist hefðu samningar við Middlesbrough um sölu á Mido. Hossam Ahmed Mido, eins og hann heitir fullu nafni, gekk til liðs við okkur í janúar 2005 á 18 mánaða lánssamning og var svo keyptur sl. sumar. Hann náði þó ekki að festa sig í sessi á síðustu leiktíð og átti einnig við meiðsli að stríða hluta af tímabilinu. Hann hefur nú ákveðið að ganga til liðs við Middlesbrough og óskum við honum alls hins besta hjá nýju liði!

Tímabilið hefst á tapi

0

Tottenham tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu gegn nýliðum Sunderland á útivelli, 1-0 en það var Michael Chopra sem skoraði mark Sunderland í uppbótartíma.

Minni á tippleikinn!!!

0

Ég vil bara minna fólk á tippleikinn á spjallinu. Það stefnir í einn stærsta tippleik spjallsins til þessa en þáttakan er mjög góð til þessa. En best er að vera með alveg frá upphafi því leikurinn er í gangi yfir allt tímabilið svo að við hvetjum þá sem ekki hafa skráð sig að vera með og hafa gaman að þessu.

Boateng skorar í sínum fyrsta leik

0

Varalið Tottenham lagði lið Grays Athletic í kvöld í æfingaleik 3-2. Þetta var fyrsti leikur nýliðans Kevin-Prince Boateng og skoraði hann eitt af mörkunum en hin tvö skoruðu Taarabt og Mills.

  

Lið Spurs var skipað þeim:

Forecast, Riley, Berchiche, Huddlestone, Ifil, Mills, Routledge (Barcham 46), Boateng, O´Hara og Taarabt.

 

Ónotaðir varamenn: Butcher, Casey, McKenna, Livermore, Maghoma.

Nýjustu fréttirnar