Page 72

Spjallborðið

0

Sæl  verið þið.
Nú styttist heldur betur í byrjun tímabilsins og margt sem þarf að ræða og rökræða um.

Spjallborð Tottenhamklúbbsins hefur verið starfrækt í þó nokkur ár, en aldrei hafa fleiri notendur verið virkir þar en nú, en betur má ef duga skal.

Við í stjórn klúbbsins hvetjum til þess að allir þeir sem lesa spurs.is og/eða taka þátt í spjallborðinu láti alla Spursara vita af okkur á vefnum. Hér geta aldrei of margir verið.

Einnig er vert að benda á tippleikinn okkar skemmtilega á spjallinu en hann má sjá með því að smella á tengilinn á spjallið hér til hægri eða smella hér.  

Framundan eru spennandi tímar, bæði hjá Tottenham sem og Tottenhamklúbbnum á Íslandi. Endilega látið sjá ykkur á spjallinu og leyfið okkur að heyra ykkar raddir.

kær kveðja,
Hörður

Tippleikur

0

Nú er hinn árlegi tippleikur að hefjast á spjallinu og vil ég hvetja fólk til að skrá sig á spjallið og taka þátt í þessum skemmtilega leik.

 

Reglur leiksins eru komnar inn á sérþráð um leikinn sem og þráður fyrir Blackburn leikinn.

 

Þessi leikur er í gangi yfir allt tímabilið svo að ég hvet fólk til að vera með strax frá upphafi.

Tottenham lagði Torino að velli

0

Tottenham sigraði lið Torino frá Ítalíu á White Hart Lane í síðasta æfingaleik Spurs fyrir komandi tímabil, en það hefst einmitt eftir viku. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og mörkin skoruðu framherjarnir tveir, Keane og Berbatov.

Ghaly ekki til Birmingham!!!

0

Tilkynnt var rétt í þessu að Birmingham hafi hætt við að semja við Ghaly. Á heimasíðu Birmingham eru ástæður fyrir þessum sinnaskiptum sagðar vera af fótboltalegum toga en ekki farið út í það nánar. Birmingham hafði áður tilkynnt um kaup á Ghaly fyrir 3 milljónir punda en nú lítur allt út fyrir að hann muni mæta á æfingu hjá Tottenham á næstu dögum.

Enn einn sigurinn

0

Tottenham lagði lið Leyton Orient í æfingaleik í gærkveldi með 4 mörkum gegn 2. Mörk Tottenham gerðu þeir Keane (2), Defoe og Bent.

Við höfum Kóng en nú bætist við Prins

0

Kaupin á Kevin-Prince Boateng  frá Hertu  Berlín gengu í gegn í dag. Boateng er sóknartengiliður og 20 árs. Hann hefur leikið 42 leiki í Búndeslíkunni og skorað í þeim 4 mörk. Einnig hefur hann leikið með Hertu í UEFA keppninni.

Ghaly seldur til Bimingham

0

Það var verið að setja þá frétt á heimasíðu Tottenham að búið sé að selja Ghaly til Birmingham að því gefnu að hann fá atvinnuleyfi. Kaupverðið er ekki gefið upp en er talið um 3 milljónir punda.  

Berbatov valinn leikmaður síðasta tímabils

0

Í kosningu sem fram fór í júlí var  Berbatov valinn leikmaður tímabilsins 2006-2007. Alls kusu 39. Tvö atkvæði voru ógild. Bebatov fékk 30 atkvæði, Dawson 6 og Keane 1.

Sigur á Orlando sjóræningjunum 0-3

0

Rétt áðan lauk síðast leik Tottenham í æfingarferð þeirra í S-Afríku. Leikurinn var úrslitaleikur og voru mótherjarnir Orlando Pirates en þá unnum við á þriðjudag 1-2. Núna urðu lokatölur 0-3 og voru það Berbatov með eitt og Bent með tvö, sem gerðu mörkin. Tottenham hampaði því bikar eins og myndin ber með sér.

Danny Rose til Spurs

0

Tottenham hefur skrifað undir samning við ungan miðjumann frá Leeds að nafni Danny Rose. Danny er aðeins 17 ára og kom úr unglingastarfi Leeds. Hann er örfættur miðjumaður og virkilega snöggur leikmaður. Hann hefur spilað fyrir U-17 ára landslið Englendinga, spilaði tvo leiki af þremur á móti í Algarve, alla þrjá leiki í umspili um Evrópumót U-17 ára þar sem hann skoraði í tveimur þeirra og svo spilaði hann alla 5 leikina í Evrópumóti U-17 ára í Belgíu þar sem England tapaði fyrir Spáni í úrslitum.

Við bjóðum Danny Rose velkominn til Tottenham

 

Nýjustu fréttirnar