Tottenham vann annan leik sinn á Vodacom mótinu í S-Afríku gegn liði Orlando Pirates. Bent kom Tottenham yfir í fyrri hálfleik og Routledge bætti öðru við í seinni hálfleik. Undir lok leiksins náðu leikmenn Orlando Pirates að minnka muninn úr vítaspyrnu.
Tottenham – Kaizer Chiefs 2-1
Tottenham lék í dag sinn fyrsta leik í Vodacom mótinu í S-Afríku gegn Kaizer Chiefs og lauk leiknum með 2-1 sigri okkar manna. Mörk Tottenham skoruðu þeir Robbie Keane og Dimitar Berbatov en mark Kaizer Chiefs skoraði fyrrum leikmaður Charlton, Shaun Bartlett.
St. Patricks-Tottenham 0-1
Tottenham vann annan æfingarleik sinn. Fór leikurinn fram í Dublin. Robbie Keane skoraði markið. Bale og Kaboul léku sinn fyrsta leik fyrir Spurs og stóðu sig vel.
Emil til Lyn í Noregi
Fréttir hafa borist af því að Emil okkar hafi verið seldur til Lyn í Noregi. Hann náði ekki að spila leik með aðalliðinu. Við óksum honum velgfarnaðar á nýjum miðum.
Tottenham byrjar tímabilið
Nú hefur Sky sjónvarpsstöðin tilkynnt þá leiki sem sýndir verða fyrstu 4 mánuði tímabilsins og mun fyrsti leikur tímabilsins vera leikur okkar gegn Sunderland. Þessi leikur er frumraun Roy Keane sem framkvæmdastjóra í úrvalsdeildinni og undir okkar mönnum komið að sýna honum hvernig alvöru fótbolti er spilaður. Leikurinn er hádegisleikur laugardaginn 11. ágúst og hefst kl.11:45.
Stevanage-Tottenham 1-3
Tottenham spilaði á laugardag fyrsta æfingarleik sinn fyrir næstu leiktíð gegn Stevenage Borough og lauk þeim leik með sigri Tottenham 3-1. Mörk Tottenham gerðu þeir Keane, Bent og Taarabt.
Kaboul keyptur
Tottenham hefur fest kaup á franska leikmanninum Younes Kaboul frá Auxerre í Frakklandi (lengst til vinstri, hinir eru Bent og Bale) . Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið vera í kringum 8m punda.
Val á leikmanni síðasta tímabils LOKADAGUR!!!
Nú er búið að opna fyrir kosningu um leikmann tímabilsins 2006-07. Atkvæðisrétt hafa þeir sem borgað hafa félagsgjaldið 2006-07. Kosningin fer þannig fram að þið þurfið að senda tölvupóst á netfangið stjorn@spurs.is með einu nafni leikmanns Tottenham Hotspur sem spilaði á
Ný stjórn kosin á aðalfundi.
Aðalfundur Tottenhamklúbbsins var haldinn í kvöld föstudaginn. Nýr fiormaður var kosinn Sigurþór N. Hafsteinsson en hann hefur verið ritari í fráfarandi stjórn. Með honum í stjórn verða Jónas Hjartarson og Sigrún Á. Júlíusdóttir úr fyrrverandi stjórn. Nýjir í stjórn eru Hörður Ágústsson og Birgir Ólafsson. Á fundinum var borið upp breytingartillaga á lögum félgsins í þá veru að kosnir verði tveir varamenn sem hafi seturétt í á fundum. Ásgeir F.Jónsson og Guðmundur Pétursson voru kosnir varanmenn.
Ziegler seldur
Tottenham hefur komist að samkomulagi við ítalska liðið Sampdoria um kaup á Reto Ziegler. Hann gekk til liðs við Spurs árið 2004 en hefur farið á láni til Wígan, Hamburg og nú síðast í janúar til Sampdoria. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Við þökkum Ziegler kærlega fyrir hans framlag til liðsins og óskum honum góðs gengis á Ítalíu.





