Page 74

Bent kominn til Spurs

0

Darren Bent hefur skrifað undir samning við Spurs sem getur orðið allt að 6 ára samningur. Hann gengur til liðs við okkur frá Charlton og verður hann dýrasti leikmaður félagsins en talið er að Spurs borgi allt að 16,5 milljónir punda fyrir hann en þó mun hluti þess vera árangurstengdur. 

Fyrsti leikurinn gegn Sunderland á útivelli

0

Búið er að gefa út leikjaskrána fyrir næsta tímabil. Við byrjum gegn Sunderland á útivelli þann 11. ágúst. Síðan er það Everton heima þann 14. ágúst. Við endum svo tímabilið gegn Liverpool heima 11. maí.
Allur listinn hér:

Samningur Taarabt staðfestur og einn 17 ára í viðbót

0

Heldur hljótt hefur verið úr herbúðum Tottenham að undanförnu en nú hefur veerið tilkynnt það sem allir vissu svo sem að samningurinn við Taarabt er gengin í gildi. Fram að

Fyrsti leikmaður sumarsins kominn í hús

0

Gareth Bale hefur skrifað undir samning við Tottenham. Þetta var tilkynnt seinnipartinn í dag. Hann er keyptur frá Southampton. Gareth er vinstri bakvörður. Hann er aðeins tæplega 18 ára en var þegar fastamaður hjá Southampton.

Fjórir Spursarar í B landsliði Englendinga

0

Fjórir leikmenn Tottenham munu spila með B-landsliði Englands æfingarleik í kvöld gegn Albaníu. Þetta eru þeir King og Dawson sem verða miðverðir og á miðjunni spila Jenas og Lennon. Leikurinn hefst kl. 19 að íslenskum tíma. leikurinn er sýndur í Ölveri.

Tveir ungir leikmenn látnir fara

0

Þeir Charlie Lee og Robert Burch voru leystir undan samningum þeirra í dag. Lee er miðvörður en Burch markmaður. Hvorugur náði að leika með aðalliðinu þó þeir hafi verið á varamannabekk nokkrum sinnum.
Við óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettfangi.

Tottenham-Man. City 2-1

0

Með sigri á Man. City tryggði Tottenham sér UEFA sæti á næstu leiktíð og endaði leiktíðina í sama sæti og í fyrra. Verður það að teljast vel að verki staðið eftir að á tímabili virtist sem tímabilið væri svolítið að renna okkur úr greypum. Góður endasprettur sá til þess að liðið verður að teljast hafa tekið framförum frá síðasta ári og búið að festa sig í sessi þarna uppi.

Tottenham-Blackburn 1-1

0

Fyrir leikinn gat Tottenham tryggt sér Evrópusæti með sigri. Það tókst þó ekki og jafntefli 1-1 varð niðurstaðan. Defoe gerði mark okkar í seinni hálfleik eftir að Blackburn hafði komist yfir í fyrri hálfleik.

Búningar næsta árs frumsýndir

0

Tottenham og samstarfsaðili þeirra hvað búninga varðar, Puma, sýndu í dag hvernig búningar næsta leiktímabils munu líta út. Tímabilið mun marka 125 ára afmæli félagsins og endurspegla búningarnir það.

Charlton 0 – Tottenham 2

0

Í kvöld kom það í hlut Tottenham að negla síðasta naglann í kistu Charlton er þeir lögðu þá að velli og sendu þá þar með niður í Championship deildina. Tottenham sigraði Charlton í sínum síðasta útileik á tímabilinu með tveimur mörkum gegn engu og voru það þeir Berbatov og Defoe sem skoruðu mörkin.

Nýjustu fréttirnar