Leikurinn gegn Charlton er klukkan sjö í kvöld og verður í beinni í Ölveri.
Emil áfram hjá Tottenham
Tottenham hefur ákveðið að virkja ákvæði í samningningi sínum við Emil okkar Hallfreðsson um að hann verði eitt ár í viðbót hjá þeim. Ekki er Emil alltof hrifinn af því að vera eitt ár í viðbót. Spurningin sem vaknar er hvort þeir sé að þess til að geta selt hann fyrir einhvern pening í sumar eða hvort þeir sjái nóg í honum til að vilja hafa hann áfram. Tíminn mun skera úr því.
Berbatov og Keane leikmenn aprílmánaðar
Tilkynnt hefur verið að Berbatov og Keane séu leikmenn aprílmánaðar í Úrvalsdeildinni. Þetta er í fyrsta sinn sem Berbatov er valinn en þriðja hjá Keane. Aðeins Shearer, Hendry, Bergkamp og Gerrard hafa verið valdir oftar eða fjórum sinnum.
Ferðin á leikinn við Arsenal í apríl
Fimmtudaginn 19.apríl lagði fríður hópur Spursara af stað frá Leifsstöð í ferð Tottenham klúbbsins á leik Tottenham gegn Arsenal. Flogið var út á fimmtudagmorgninum kl.7:15 og lent á Stansted 3 tímum síðar, um ellefuleytið að staðartíma. Þar beið rúta sem flutti hópinn á Royal National hótelið en þar yrði dvalið þessa daga í London.

Middlesbrough-Tottenham 2-3
Tottenham náði að sigra á Riverside í fyrsta skipti í 11 ár. Má það þakka Berbatov sem var frábær í leiknum og Robinson sem varði meistaralega á mikilvægum augnablikum í leiknum. Þá er hlutur Robbie Keane stór en hann gerði sitt þrettánda og fjórtánda mark í tólf leikjum. Bæði Keane og Berbatov eru nú komnir í tíu mörk í deild og 21 samanlagt í vetur.
Tottenham-Arsenal 2-2
Þegar Tottenham stuðningmenn héldu að leikurinn væri tapaður enda komið 94. mínúta á klukkuna skaut Jenas jarðarbolta í blá hornið hjá Lehmann og tryggði jafntefli. Jol lét Rocha spila í vinstri bakverðinum og tefldi fram King aftur í vörninni. Dawson og Cimbonda voru á sínum stað.
Wigan-Tottenham 3-3
Ég er nú ekki talsmaður mikilla afsakana en reyni þó að vera sanngjarn. Á sunnudag mættum við Wigan á útivelli og þrátt fyrir að vera að leika ágætlega lengst af verður að segja að við náðum jafntefli 3-3. Ég vill meina að það hafi alls ekki verið nógu gott. Ég veit að liðið er búið að spila þétt að undanförnu og enn ein útgáfan af vörn leit dagsins ljós. Okkar menn áttu samt að gera betur.
Sæti laus í Arsenalferðina vegna forfalla
Vegna forfalla hafa losnað sæti í ferð klúbbsins á Arsenal leikinn um næstu helgi. Flogið er út á fimmtudag og komið heim á sunnudag. Verð 59.900,- á mann. Frekari upplýsingar eru hjá Express Ferðum. Það verður að hafa hraðan á því þeir hjá Express Ferðum verða að ganga frá sínum málum í enda dags í dag.
Tottenham – Sevilla 2-2
Jæja, þannig fór um sjóferð þá.
Jafntefli við Sevilla á White Hart Lane í gær batt enda á góða frammistöðu í UEFA CUP þetta tímabilið.
Lokatölur 2-2 þar sem Defoe og Lennon skoruðu fyrir okkur.
Mascot á Tottenham leik
Það var í september og við nýkomnir heim frá Fuerteventura að pabbi okkar kom og sagði að hann hefði fengið tölvupóst þess efnis að við bræðurnir ættum kost á að vera mascots á heimaleik með Tottenham! Við vorum allt í senn spenntir, orðlausir og hissa. Pabbi hafði skráð okkur í klúbbinn úti sem JMS(Junior Spurs Members) og við vorum svo heppnir að ári seinna vorum nöfn okkar dregin út, en allir JMS meðlimir eiga kost á því að vera dregnir út.





