Page 76

Chelsea-Tottenham 1-0

0

Jol gerði fimm breytingar á liðinu frá leiknum við Sevilla. Lee, Keane, Berbatov, Lennon og Zokora voru hvíldir og inn komu Rocha, Ghaly, Mido, Defoe og Steed. Leikurinn var ágæt skemmtun og við gáfum

Fyrsta tapið í UEFA bikarnum á tímabilinu

0

Þrátt fyrir að Keane hafi skorað mark á annari mínútu leiksins gegn Sevilla á Spáni töpuðu okkar menn leiknum 2-1. Má það þakka meðal annars dómaranum sem gaf Sevilla víti sem okkar fyrrum framherji Kanute skoraði úr. Með því marki jöfnuðu Sevilla leikinn og þeir náðu svo að komast yfir eftir góða sókn.

Tottenham hélt hreinu í 1-0 sigri

0

Þar kom að því. Við héldum hreinu. Ekki að það sé eitthvað markmið í sjálfum sér því meðan við skorum fleiri mörk en andstæðingurinn skiptir það engu að halda hreinu. En að leiknum gegn Reading. 

Arsenal ferðin uppseld

0

Það er uppselt í ferð klúbbsins á leik Tottenham og Arsenal 19 til 22. apríl. Möguleiki er að hafa samband við Express Ferðir og láta setja sig á biðlista ef einhver forföll verða. Þeir sem hafa bókað sig í ferðina fá sent bréf frá okkur í næstu viku með upplýsingum um ferðina og það sem í boði verður. 

Klúbburinn á nokkra miða á Blackburn leikinn

0

Vegna breytinga á leikdegi Blackburnleiksins (færður á fimmtudag 10. maí kl. 20:00) eru til nokkrir miðar hjá klúbbnum þar sem þeir sem pöntuðu þá geta ekki nýtt þá á nýja leikdeginum. Leikurinn er uppseldur úti. Verð á miða er 5.500,-. 
Þeir sem hafa áhuga geta pantað á midar@spurs.is Upplýsingar hjá Haraldi 698-2109

Ferðin á Arsenal leikinn 21. apríl

0

Nú eru ekki mörg sæti eftir í ferð klúbbsins á leik Tottenham og Arsenal í deildinni þann 21. apríl. Þeir sem er að hugsa um að skella sér ættu að drífa í að hafa samband við EXPRESS FERÐIR og ganga frá pöntun. Við minnum á að þrír klúbbfélagar verða dregnir út og fá að koma með að hitta leikmann síðasta tímabils Robbie Keane fyrir leik. Smella á linkinn til að fara á síðu Express Ferða
http://www.expressferdir.is/markmenn.php?idcat=2&idteam=19

Tottenham fallið úr FA bikarnum

0

Þrátt fyrir að eiga góðan leik gegn Chelsea þegar liðin mættust aftur eftir jafnteflið á Brúnni dugði það ekki gegn Chelsea. Leikurinn endaði 1-2 og gerði Keane mark okkar úr víti sem Tottenham fékk eftir að Berbatov var felldur í teignum.

Robinson með mark tímabilsins

0

Tottenham tók á móti Watford í gær laugardag og vann nokkuð samfærandi 3-1. Jol hvíldi Bebatov, Keane og Lennon fyrir leikinn á mánudag við Chelsea í FA bikarnum. Einnig varð hann að gera breytingar vegna meiðsla Tainio, Zokora og Gardner. Rocha var með Dawson í vörninni og miðjuna skipuðu Ghaly, Hudd, Steed og Jenas sem var að koma aftur eftir að hafa misst af þremur leikjum vegna meiðsla. Robinson kom í markið eftir að hafa verið meiddur.

Við fáum Sevilla í UEFA bikarnum

0

Tottenham dróst gegn Sevilla og er fyrri leikurinn leikinn á útivelli. Ef við komumst í undanúrslit þá spilum við annað hvort Leverkusen eða Osasuna og fáum heimaleikinn sem seinni leik.

UEFA bikar seinni leikur 3-2

0

Tottenham er komið í átta liða úrslit UEFA bikarsins eftir sigur á Braga frá Portúgal 6-4 samanlagt. Seinni leikurinn endaði eins og sá fyrri 3-2 fyrir Tottenham. Besti maður Tottenham Berbatov gerði tvö markanna og lagði upp það þriðja.

Nýjustu fréttirnar