Nú er lokið kosningu um leikmann síðasta tímabils. Flest atkvæði fékk Robbie Keane 167. Annar varð Dwason með 151 atkvæði. Þriðji varð Lennon með 39 og King fékk 30. Aðrir fengu minna. Alls voru 417 atkvæði greidd. Þetta er annað skiptið sem Keane er valinn leikmaður tímabils en einnig hafa Neil Sullivan og Paul Robinson verið valdir. Við munum afhenda Robbie Keane viðurkenningu fyrir leikinn við Arsenal 21. apríl næstkomandi.
Drátturinn í undanúrslitum FA bikarsins
Við fáum Blackburn ef við vinnum Chelsea á mánudag. Watford mætir annaðhvort Middlesbrough eða Man. Utd. Leikirnir fara fram helgina 14. og 15. apríl og eru spilaðir á hlutlausum velli.
FA bikar: Chelsea-Tottenham 3-3
Þvílíkur leikur. Þvílík sýning. Þvílík dramatík. Þessi leikur hafði allt sem góðan fótboltaleik getur prýtt. Frábært spil, góð mörk, mistök og frábær einstaklingsframtök. Jol gerði nokkrar breytingar á liðinu gegn Braga. Robinson og Keane gátu ekki verið með vegna meiðsla og kom Cerny í markið og Defoe í framlínuna. Chimbonda var hvíldur og tók Stalteri stöðu hans. Gardner var einnig hvíldur og Rocha tók stöðu hans. Þá var Ghaly í byrjunarliðinu en Steed fór á bekkinn.
UEFA: Braga-Tottenham 2-3
Fyrri leikur Tottenham og Braga í 16. liða úrslitum var leikinn í gærkvöldi fimmtudag á heimavelli Braga. Jol stillti upp sínu sterkasta liði. Lið Tottenham tók völdin á vellinum í fyrri hálfleik og hefði átt að vera komið með tvö þrjú mörk í fyrri hálfleik. Staðan var hinsvegar 0-0.
Takið þátt í vali á leikmanni síðasta tímabils
Nú er hér til hægri hægt að taka þátt í vali klúbbsins á leikmanni Tottenham að okkar mati á síðasta tímabili. Við höfum valið sjö leikmenn úr hópnum (ekki er ástæða til að hafa þá með sem farnir eru). Allir lögðu þeir sitt á vogarskálarnar í þeim árangri sem liðið náði þá.
Sá leikmaður sem valinn verður fær viðurkenningu frá klúbbnum og munum við afhenda honum þá viðurkenningu fyrir leikinn við Arsenal þann 21. april en klúbburinn er með hópferð á þann leik. Þess má geta að þrír í ferðinni verða dregnir út og fá að koma með að afhenda en takmarkaður fjöldi fær að vera viðstaddur vegna reglna hjá Tottenham.
Klúbburinn tilkynnir brottför á Arsenal leikinn
Tottenhamklúbburinn í samvinnu við Express Ferðir efna til hópferðar á leik Tottenham og Arsenal á White Hart Lane sem leikinn verður 21. apríl nk. Flogið verður með Iceland Express til London þann 19. apríl og komið heim aftur á sunnudagskvöld 22. apríl. Verðið er 59.900,- fyrir manninn miðað við að tveir séu saman í herbergi. Innifalið er flug og skattar, gisting með morgunmat á Royal National sem er þriggja stjörnu hótel við Russel Square. Rúta af flugvelli á hótel og aftur á flugvöll. Miði á völlinn. Ætlunin er að draga út þrjá heppna í ferðinni sem fá að fara með fyrir leik að afhenda leikmanni síðasta tímabils viðurkenningu. Einnig er fyrirhugað að hópurinn fari saman út að borða á fimmtudag eða föstudagskvöldinu en það er utan við verðið á ferðinni. Nánar um það síðar. Til að kaupa sæti í ferðina eða fá frekari upplýsingar smellið þá hér http://www.expressferdir.is/markmenn.php?idcat=2&idteam=19 til að komast á síðu Express Ferða.
Einnig veitir Haraldur upplýsingar í síma 698-2109
West Ham-Tottenham 3-4
Leikmenn Tottenham komu ekki með góðar minningar í þennan leik frá síðasta tímabili. Þá misstu þeir af Meistaradeildarsæti í hendur Arsenal með því að tapa gegn West Ham eftir að meirihluti leikmanna veiktist af vírus. Það hefur alltaf verið grunnt á því góða milli stuðningsmanna þessara liða og þá hlakkað í stuðningsmönnum West Ham og þeir fögnuðu mjög mörkunum sem Arse skoraði í þessari síðustu umferð í fyrra.
Tottenham sækir um pláss í Intertoto
Búið er að staðfesta á heimasíðu Tottenham að sótt hafi verið um þátttökurétt í Intertoto.
Það var greint frá því í blaðinu Guardian í gær að Totttenham hafi sótt um þátttökurétt í Intertoto keppninni í sumar. Ef þetta er satt þá er það í fyrsta skipti sem Tottenham sækir um þátttöku í þessari keppni. Everton, Blackburn, Bolton, Fulham, Middlesbrough, og Newcastle hafa öll sótt um ásamt Tottenham.
King setur stefnuna á endurkomu
Í viðtali á heimasíðu Tottenham ræðir Ledley King um meiðsli sín og væntanlega endurkomu. Hann segir að hann fari hægar í sakirnar nú og sé að byggja sig upp með því að hlaupa annan hvern dag og synda eða hjóla á æfingarhjóli hina dagana.
Tottenham-Bolton 4-1
Eftir tvo sigurleiki í röð var heldur farið að rísa brúnin á Spursurum. Framundan leikur á heimavelli gegn liði sem við höfum oft átt erfitt með. Jol telfdi fram sama liði frá síðasta leik að undanskyldu því að Gardner var meiddur og Rocha kom í hans stað.





