Page 78

Við mætum Braga í UEFA bikarnum

0

Það verður Portúgalska félagið Braga sem eru andstæðingur okkar í 16. liða úrslitum UEFA bikarsins. Þeir unnu Parma í kvöld

Everton-Tottenham 1-2

0

Það er heldur að lyftast brúnin á Spursurum eftir tvo útisigra í röð. Fyrst í FA bikarnum og í gærkvöldi í frestuðum deildarleik gegn Everton á útivelli.
Það er alveg sýnilegt að leikmenn Tottenham koma ákveðnari í leiki nú en til skamms tíma.

Tveir miðar á Tottenham-Bolton

0

Vegna forfalla eru tveir miðar lausir á Tottenham-Bolton á sunnudag. Niðursett verð. Hafið sambandi við Harald í GSM 698-2109.

Everton í beinni í Ölveri

0


Við minnum Spursara á að frestaði leikurinn við Everton er á morgun miðvikudag kl. 20:00. Hann verður í beinni í Ölveri að sjálfsögðu.

Koma svo.

FA CUP 8 liða úrslit

0

Jæja,  þá er búið að draga í 8 liða úrslit FA CUP.  Og komum við til með að spila gegn meisturum Chelsea á útivelli..  og verður spilað helgina 10/11 Mars.
Það hefði líklega verið hægt að fá betri mótherja en Chelsea, og ekki bætir úr skák að þurfa að spila við þá á útivelli.
Einhvern veginn tel ég líkur okkar á að komast í undanúrslitin ekki miklar.

Fulham – Spurs 0-4

0

Nei,  þetta er ekki stafsetningarvilla !!!!   við gjörsigruðum Fulham í gær á útivelli með 4 mörkum gegn engu í 16. liða úrslitum FA CUP.
4-0 var líklega í það mesta og gefur nú ekki alveg rétta mynd af leiknum.  Til að mynda átti Fulham 9 skot sem hittu á rammann á meðan við áttum bara 6.

Við höfum séð það verra.

0

Óheppni og ógæfu okkar manna ætlar ekki að linna. í gær töpuðum við fyrir Sheff. Utd. 2-1 eftir að hafa komist yfir á annari mínútu með marki frá Jenas eftir frábæra sendingu frá Keane. Lennon og Huddlestone voru veikir og spiluðu ekki með. Jenas og Tainio kom inn í þeirra stað, Rocha fór í vornina fyrir Gardner sem var meiddur. Þá kom Keane inn í byrjunarliðið fyrir Defoe.

Sheffield United – Tottenham

0

Á morgun er næsti leikur hjá Tottenham og verða andstæðingar okkar lið Sheffield United og verður spilað á Bramall Lane í Sheffield og hefjast leikar kl. 15.00 að staðartíma og að íslenskum tíma.

Við förum beint í 16. liða úrslit UEFA

0

Búið er að fella úrskurð í máli Feyenoord. Þeir tapa því sem þýðir að við munum næst leika 8. mars úti gegn annað hvort Braga eða Parma. Þetta þýðir einnig að leikurinn við Everton sem búið var að setja á 21. febrúar verður leikinn þá. 

Tottenham-Man. Utd. 0-4

0

Tottenham fékk sinn stærsta skell á tímabilinu á sunnudag þegar Man. Utd. kom í heimsókn. Niðurstaðan fjögra marka tap. Eins og svo oft áður spiluðu okkar menn fínan bolta í fyrri hálfleik úti á vellinum en voru lánlausir þegar kom að markinu.

Nýjustu fréttirnar