Page 79

Tap í deildarbikarnum

0

Tottenham sótti ekki sigur til Arsenal í seinni undanúrslitaleiknum í Deildarbiknum. Jol setti Robinson aftur í markið frá fyrri leiknum og í vörninni voru Ekotto, Gardner, Dawson og Chimbonda. Á miðjunni léku Steed, Zokora, Jenas og Ghaly. Lennon átti reyndar að byrja en veiktist. Frammi voru svo Keane og Defoe.

Reto Ziegler lánaður

0

Samdoría á Ítalíu hefur fengið að láni út tímabilið Svissneska kantarann Reto Ziegler frá okkur.

Davids til Ajax

0

Búið er að staðfesta að Edgar Davids hefur gengið til liðs við Ajax. Hann lék 44 leiki með okkur. Hann kom frá Inter Milan í ágúst 2005. Við þökkum honum fyrir hans framlag sem var ekki lítið á síðasta tímabili og óskum honum velfarnaðar á nýjum vettfangi. 

FA CUP 16 liða úrslit

0

Fulham – Tottenham, nú rétt í þessu var verið að draga í FA CUP , 5.umferð/16 liða úrslit og mætum við liði Fulham á Craven Cottage og fer leikurinn fram 17/18 febrúar næstkomandi. 

Southend enginn fyrirstaða, lokatölur 3-1

0

Það reyndist auðvelt að klára leikinn gegn Southend að þessu sinn. Fyrirstaðan var ekki mikil og því olli lið Tottenham enn einu sinni vonbrigðum með of mikið af röngum ákvörðunum þannig að í stað öruggrar forustu í hálfleik var munurinn aðeins eitt mark. Í fyrri hálfleik áttum við 17 marktilraunir en þeir 2. Spilið út á velli fínt en þegar kom að marki anstæðinganna klúðruðust hlutirnir of oft.  

2-2 í hálfleik gegn Arsenal

0

Leikurinn í gær í undanúrslitum deildarbikarsins var eins og að horfa á Jakyll og Hyde í bíó. Tottenham byrjaði mjög vel og gerði tvö mörk í fyrri hálfleik. Fyrra gerði Berbatov sem varð svo að fara af velli meiddur og hitt var sjálfsmark sem Baptista gerði eftir ágæta sókn Tottenham. Það stóð semsagt ekki steinn yfir steini hjá Arsenal lengst af fyrri hálfleiks.

Tottenham er komið í 16. liða úrslit í UEFA

0

Það er búið að staðfesta að við erum komnir áfram í UEFA bikarnum. Ákvörðun drógst nokkuð um það hvort við færum áfram eða lékjum við lið í fjórða sæti sama riðils og Feyenoord var í. En niðurstaðan er að við förum áfram. Í 16. liða úrslitum mætum við annað hvort Braga frá Portúgal eða Parma frá Ítalíu.

Varnarmaðurinn Ricardo Rocha keyptur

0

Búið er að staðfesta að við höfum keypt Ricardo Rocha frá Benfica. Rocha er varnarmaður með ágæta reynslu og á hann án efa að koma með reynslu inn í vörnina sem hefur lekið of mikið að undanförnu. Rocha er 28 ára portúgali sem hefur eitthvað komið við sögu í landsliði Portúgala.   

Fulham-Tottenham 1-1 (dapurt)

0

Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þennan leik. Ég og sennilega allir aðrir stuðningsmenn Tottenham bíða eftir því að Jol og félagar finni lausn á því að spila gegn liðum sem spila kraftabolta. Því miður eru engin merki um það að það sé í sjónmáli. Það sem verra er, er að Jol virtist tiltölulega ánægður með liðið í gær.

Feyenoord dæmt úr UEFA Cup

0

Næsti andstæðingur Spurs í Evrópukeppni félagsliða hafa verið dæmdur úr keppninni vegna óeirða sem komu upp á leik þeirra gegn Nancy í nóvember.

Nýjustu fréttirnar