Page 80

Davenport til Eggerts

0

Calum Davenport hefur verið seldur til West Ham. Verðið er sagt um 3 milljónir punda. Davenport lék 15 leiki fyrir okkur á þessu tímabili. Við óskum honum velfarnaðar á nýjum vetfangi.

Sögusagnir eru á kreiki um að við séum að fá til okkar portúgalska varnarmanninn Ricardo Rocha. Meira um það ef af verður.  

Tottenham-Cardiff 4-0

0

Leikmenn okkar komu greinilega með réttu hugarfari í þennan umspilsleik í þriðju umferð FA bikarsins. Ekki veitti af eftir vonbrigði síðustu tveggja heimaleikja. Jol gerði fjórar breytingar á liðinu. Keane byrjaði frammi fyrir Defoe og Zokora tók sæti Tainio á miðjunni. Þá komu Gardner og Ekotto inn í vörnina fyrir Lee og Davenport sem sögur segja að sé að fara til West Ham. En að leiknum.

Tottenham – Newcastle 2-3

0

Ótrúlegt tap hjá Tottenham í dag á heimavelli gegn Newcastle.  Að tapa leiknum 2-3 er með hreint ólíkindum.  Vorum við miklu betri í alla staði í dag og hefðum held ég hæglega getað skorað 7-8 mörk !!  En þetta var ekki að falla með okkur í dag og tap staðreynd,  annað deildartapið í röð á heimavelli.

TOTTENHAM – NEWCASTLE

0

Á morgun er næsti leikur Tottenham í deildinni.   Heimaleikur gegn Newcastle og hefst hann kl. 16.00.  Mjög mikilvægt að sigra í þessum leik til að vera áfram í keppninni um Evrópusæti á næstu leiktíð.  Árangur Tottenham á heimavelli hefur verið mjög góður á tímabilinu.

Ferðasaga Silla á WHL og Fratton Park

0

Þegar bróðursynir mínir fengu tilboð um að vera “Mascot´s” á Spurs Liverpool leiknum þá var ég ekki lengi að slá til og panta ferð til London til að sjá leikinn. Í leiðinni skyldi haldið upp á 50 ára afmælið og farið á einn útileik svona sem kaupauki. Við vorum 7 saman sem fengum miða hjá Tottenhamklúbbnum. Tvær fjölskyldur sem samanstanda af gallhörðum Spurs aðdáendum.

Lennon hjá Spurs til 2012

0

„Aaron Lennon hefur skrifað undir nýjan 5 og hálfs árs samning við Tottenham. Það er því greinilegt að framtíð hans liggur hjá Tottenham Hotspur.

Dregið í FA bikarnum

0

Búið er að draga í næstu umferð ensku bikarkeppninnar og drógust Spurs gegn annaðhvort Southend eða Barnsley. Spurs þurfa samt fyrsta að leika aftur gegn Cardiff eftir jafntefli í gær.

FA bikar: Cardiff-Tottenham 0-0

0

Ekkert lát er á klúðri okkar manna á útivöllum. Í gær sunnudag tóks Tottenham ekki að slá út Meistaradeildarlið (les:annarar deildar lið) Cardiff út á þeirra heimavelli. Jú, aðstæður voru ekki góðar þar sem helli rigndi en það rigndi á bæði lið og það er ekki eins og það hafi verið að rigna í fyrsta skipt. Ekki það að ég held að skilyrðin hafi ekkert haft með þessi úrslit að gera. 

Alnwick kemur og Fulop fer

0

Ben Alnwick tvítugur markmaður hjá Sunderland hefur gengið í raðir Tottenham. Marton Fulop hefur farið í hina áttina til Sunderland. Ben hefur leikið með unglingalandsliðum Englendinga. Hann

Fyrsti nýi leikmaðurinn í janúarglugganum

0

Tilkynnt var áðan að búið væri að semja við Lens um að lána til okkar 17 ára miðjumann. Hann heitir Adel Taarabt og þykir eitt mesta efni í Evrópu á hans reki. Ástæðan fyrir því að talað er um að hann sé fenginn að láni er væntanlega vegna reglna vegna aldurs og að hann muni verða fullgildur leikmaður okkar þegar hann nær 18 ára aldri.

Nýjustu fréttirnar