Þrátt fyrir að vera betra liðið tókst Tottenham ekki að vinna Portsmouth á útivelli. Leikurinn byrjaði reyndar ekki vel fyrir Tottenham því Ghaly fékk spark í andliðið frá fyrrum leikmanni Tottenham Pamarot og var utan vallar í aðgerð í einar sjö mínútur þar sem saumaður var skurður sem hann fékk. Í hálfleik tókst vallarstarfsmönnum að finna allar fjórar tennur hans sem höfðu brotnað við höggið.
Fyrsta tapið í þrettán leikjum
Það er studnum sagt að með hverjum sigri styttist í tap. Í dag gerðist það hjá okkur að sigurganga okkar á heimavelli lauk. Liverpool fór með öll þrjú stigin eftir 0-1 sigur. Það er þó hagt að segja að í raun áttu leikmenn Tottenham ekki skilið að tapa. Jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit. En að leiknum.
Yfirlit: Hluti III
Nú er komið að síðasta hlutanum í yfirferð minni yfir tímabilið hingað til. Í þessum hluta fer ég yfir sóknarmennina.
Tveir íslenskir strákar „Mascot“ á WHL
Á laugardaginn fyrir leik Tottenham og Liverpool munu tveir gallharðir Tottenham strákar ganga inn á White Hart Lane leiðandi tvo af leikmönnum Tottenham. Þetta eru þeir Óskar og Jón Torfi Jónssynir. Jón Torfi er 11 ára og Óskar 9 ára. Það þarf ekki að taka það fram að foreldrar þeirra eru miklir Spursarar en gefum pabbanum Jóni Berg Torfasyni orðið: Við mætum á völlinn 2 1/2 tíma fyrir leik. Förum í svokallaða Family lounge,
Defoe með tvö
Tottenham vann sinn 12 heimaleik í röð í öllum keppnum og 7 í deildinni í gær þegar þeir lögðu Aston Villa 2-1. Defoe gerði bæði mörkin eftir sendingar frá Berbatov. Defoe er þar með búin að gera 50 mörk fyrir okkur í öllum keppnum. Hann er næst markahæðstur núverandi leikmanna aðeins Robbie Keane er með fleiri eða 67. En að leiknum.
Tom Huddlestone framlengir samning sinn
Það var tilkynnt í dag að Tom Huddlestone hafi skrifað undir nýjan samning í dag. Þetta þýðir að hann er samningsbundin félaginu til 2011. Það er óhætt að segja að þetta séu gleði tíðindi fyrir alla Spursara því drengurinn hefur farið á kostum í undanförnum leikjum.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Tottenhamklúbburinn á Íslandi óskar félagsmönnum sínum og öðrum áhugamönnum um fóltbolta gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
HJ
Newcastle 3-1 Spurs
Leikmenn Spurs fóru í enn eina svekkjandi ferðina á útivöll í dag þegar liðið beið lægri hlut fyrir Newcastle á St. James´ Park, 3-1. Mark Spurs gerði Danny Murphy.
Carling Cup – Undanúrslit
Núna rétt í þessu var verið að draga í undanúrslit Carling Cup. Drógumst við gegn Arsenal / Liverpool ( eiga eftir að leika ) , leikið er heima og að heiman og eru leikdagar 9/10 janúar og seinni leikur svo 23/24 janúar.
Leikurinn við Bolton færður
Búið er að færa heimaleikinn gegn Bolton á sunnudaginn 25. febrúar. Fer hann fram klukkan 15:00. Er þetta vegna þess að við spikum seinni leikinn við Feyenoord á fimmtudeginum á undan. Ef svo fer að við komumst í úrslit Deildarbikarsins þá þarf að færa þennan leik aftur því úrslitaleikurinn fer fram á sunnudeginum 25. febrúar.





