Page 84

Teemu Tainio

0

Finninn Teemu Tainio kom til Spurs sumarið 2005 frá Auxerre í Frakklandi. Hann átti mjög gott fyrsta tímabil hjá félaginu en hefur átt við meiðsli að stríða á þessu tímabili.

Tainio er afar fjölhæfur miðjumaður sem leggur sig ávallt 100% fram.

Nafn
Teemu Tainio
Staða
Miðjumaður
Fæðingardagur
27. nóvember 1979
Kom frá
Auxerre

Robbie Keane

0

Írski snillingurinn Robbie Keane kom til Tottenham frá Leeds í ágúst 2002. Robbie varð strax einn vinsælasti leikmaður félagsins og er enn mikils metinn á White Hart Lane.

Keane er einnig markahæsti leikmaðurinn í sögu írska landsliðsins og jafnframt fyrirliði landsliðsins.

Nafn
Robbie Keane
Staða
Sóknarmaður
Fæðingardagur
8. júlí 1980
Kom frá
Leeds Utd

Paul Stalteri

0

Kanadamaðurinn Paul Stalteri átti fast sæti í liði Spurs á síðasta tímabili. Meiðsli hafa aftur á móti haldið aftur af honum á nýju tímabili.

Hann er hins vegar reyndur og góður maður til að hafa í hópnum.

Nafn
Paul Stalteri
Staða
Varnarmaður
Fæðingardagur
18. október 1977
Kom frá
Werder Bremen

Michael Dawson

0

Michael Dawson hefur á skömmum tíma orðið einn af lykilmönnum liðsins. Hann kom til félagsins í janúar 2005, ásamt Andy Reid.

Dawson hefur verið valinn í enska landsliðið og sýnir það hve miklum framförum hann hefur tekið.

Nafn
Michael Dawson
Staða
Varnarmaður
Fæðingardagur
18. nóvember 1983
Kom frá
Nottingham Forest

Lee Barnard

0

Lee Barnard var markahæsti leikmaður varaliðsins tímabilið 2005-06. Hann lék einnig sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið á því tímabili þegar hann kom inn á sem varamaður.

Lánstímabil hjá neðrideildarliðum hafa hjálpað "Barney" mikið.

Nafn
Lee Barnard
Staða
Sóknarmaður
Fæðingardagur
18. júlí 1984
Kom frá
Unglingaliði Tottenham

Ledley King

0

Fyrirliði Tottenham, Ledley King, hefur fest sig í sessi sem einn af sterkustu varnarmönnum Englendinga.

Ledley er uppalinn hjá Spurs og er sá leikmaður sem lengst hefur verið hjá félaginu, eða frá 1998.

Meiðsli hafa stundum hrjáð King, en heill heilsu er hann órjúfanlegur hluti liðsins.

Nafn
Ledley King
Staða
Varnarmaður
Fæðingardagur
10. desember 1980
Kom frá
Unglingaliði Tottenham

Jermain Defoe

0

Defoe var keyptur til Spurs fyrir 7 milljónir punda í janúar 2004.

Hann hóf feril sinn hjá Spurs með látum og skoraði eftir aðeins 15 mínútur af fyrsta leik sínum.

Enginn efast um hæfileika litla Englendingsins, en þó hefur hann mátt þola vonbrigði með landsliðinu oftar en einu sinni.

Nafn
Jermain Defoe
Staða
Sóknarmaður
Fæðingardagur
7. október 1982
Kom frá
West Ham

Jermaine Jenas

0

JJ, eins og hann er kallaður, kom til Spurs í upphafi tímabilsins 2005-06.

Það tók hann nokkra leiki að venjast leik liðsins en eftir það efaðist enginn um hæfni hans.

Hann skoraði 7 mörk á fyrsta tímabili sínu með Spurs og það fyrsta úr glæsilegri aukaspyrnu á Old Trafford.

Nafn
Jermaine Jenas
Staða
Miðjumaður
Fæðingardagur
18. febrúar 1983
Kom frá
Newcastle

Feyenoord í UEFA bikarnum

0

Við drógumst gegn hollenska liðinu Feyenoord í 3. umferð UEFA bikarsins. Fyrri leikur liðanna verður 14. eða 15. febrúar í Rotterdam og seinni leikurinn á WHL 22. febrúar. Við höfum nokkra sögu gegn Feyenoord í Evrópukeppnum og mun verða farið yfir það síðar.
 

Spurs – Dinamo Bucharest 3 – 1

0

Frábær sigur hjá Spurs í gærkveldi.  Yfirburðir liðsins voru með fádæmum.  Strax frá fyrstu mínútu sá maður hvað stefndi í.  Að lokum skoruðum við þrjú mörk og sigruðum leikinn 3-1 með tveimur mörkum frá Defoe og einu frá Berbatov.

Nýjustu fréttirnar