Tottenham varð annað liðið í ár til að vinna alla leikina í riðlakeppni UEFA bikarsins (frásögn af leiknum kemur fljótlega). Hitt liðið var Espanyol. Dregið verður í 32 liða, og 16 liða úrslit klukkan 12 í dag. Hægt verður að fylgjast með drættinum á Eurosport og á netinu. Við munum dragast gegn einhverju liði sem endaði í þriðja sæti einhverra af hinum riðlum UEFA bikarsins í næstu umferð.
UEFA CUP í kvöld
Stórleikur á WHL í kvöld þegar Spurs tekur á móti Dinamo Bucharest frá Rúmeníu. Kemur þessi leikur til með að skera úr um hvort liðið sigrar í riðlinum. Að sigra riðilinn tel ég vera mjög mikilvægt til að sleppa við að mæta liðunum sem duttu út úr Meistaradeildinni í næstu umferð.
Tottenham-Charlton 5-1
Loksins, loksins, loksins stórsigur. Jol gerði aðeins eina breytingu á liðinu þar sem hann setti Tainio á miðjuna fyrir Zokora sem hóf þriggja leikja bann sitt. Fyrstu 20 mínúturnar var Charlton ýfið sterkara án þess að skapa sér mörg færi.
Myndir úr Wigan ferð klúbbsins
Nú eru komnar myndir á síðuna af ferð klúbbsins á Wigan leikinn í lok nóvember. Sjá tengil hér hægra megin á Korktöflunni. Eins og þið vitið þá vannst sá leikur
3-1. Til viðbótar við það hitti hópurinn á laugardagskvöldinu hópa úr sænska og danska stuðningsklúbbinum og var það fagnaðarfundir. Einnig bar óvæntan gest að garði.
Hoddle í „hall of fame“
Nú í kvöld var Glenn Hoddle bætt í svokallað " hall of fame" safn okkar Spursara.
Til þeirra sem hafa fengið ítrekun v/félagsgjalda
Mér var að berast til eyrna að ítrekun sem ég óskaði eftir að sent væri til þeirra í klúbbnum sem ekki voru búnir að greiða greiðsluseðilinn vegna árgjaldsins innihéldi hótanir um frekari innheimtuaðgerðir.
Tíðindi af leikmönnum
Ekki er allt jákvætt við sigur okkar á Middlesboro síðasta þriðjudag. Tveir mikilvægir leikmenn Tottenham munu missa af næstu leikjum, annar vegna meiðsla og hinn vegna leikbanns.
Tottenham-Middlesbrough 2-1
Það var greinilegt að skammarræða Jol hafði áhrif á leikmenn Tottenham. Þeir voru miklu betri þó ekki sé hægt að segja að þeir hafi spilað mjög vel. Jol setti Keane og Tainio á bekkinn og inn komu Defoe og Hudd. þá kom Lee í vinstri bakvörðinn fyrir Ekotto sem var ekki einu sinni á bekknum.
Cardiff leikurinn á Sky 7. jan.
Leikur okkar við Cardiff í 3. umf. FA bikarsins hefur verið valinn sjónvarpsleikur og færður til kl.. 16:00 á sunnudeginum 7. jan. nk.
Spurs – Middlesboro
Á morgun fer fram leikur Spurs og Middlesboro í deildinni og mun leikurinn hefjast kl. 20:00. Áhugasömum er bent á að leikurinn verður sýndur í beinni í Ölver á stóru tjaldi með hljóði.






