Page 83

Dorian Dervite

0

Dorian kom til Spurs 2006 og hefur leikið mikið í vörn varaliðsins þar sem hann hefur staðið sig með prýði.

Dervite lék sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið í Deildabikarnum haustið 2006.

Nafn
Dorian Dervite
Staða
Varnarmaður
Fæðingardagur
25. júlí 1988
Kom frá
Lille

Dimitar Berbatov

0

Dimitar var keyptur til Spurs fyrir tímabilið fyrir 10,9 milljónir punda. Miklar væntingar eru bundnar við stóra Búlgarann og hefur hann ekki valdið vonbrigðum.

Hann hefur strax fest sig í sessi sem einn af hættulegustu sóknarmönnum ensku deildarinnar.

Nafn
Dimitar Berbatov
Staða
Sóknarmaður
Fæðingardagur
30. janúar 1981
Kom frá
Bayer Leverkusen

Didier Zokora

0

Didier var keyptur til Spurs fyrir þetta tímabil. Hann var talinn vera einn af betri miðvallarleikmönnum á HM í Þýskalandi.

Zokora er líka afar teknískur og fimur miðjumaður sem á það til að koma langt fram á völlinn með boltann.

Nafn
Didier Zokora
Staða
Miðjumaður
Fæðingardagur
14. desember 1980
Kom frá
St. Etienne

Benoit Assou-Ekotto

0

Benoit kom til Spurs fyrir núverandi tímabil og varð strax fastamaður í liðinu. Hann mun þó þurfa að berjast við Lee um sæti í liðinu.

Sterkasta hlið Ekotto er hraðinn sem hann býr yfir en það kemur sér vel gegn snöggum kantmönnum.

Nafn
Benoit Assou-Ekotto
Staða
Varnarmaður
Fæðingardagur
24. mars 1984
Kom frá
RC Lens

Lennon: Við getum farið alla leið

0

Aaron Lennon telur að Spurs eigi góðan séns á að fara alla leið í úrslitin í Deildabikarnum. Spurs mæta Southend í 8 liða úrslitunum á miðvikudagskvöldið.

Man City 1-2 Spurs

0

Fyrsti útsigur Tottenham á þessu tímabili varð að veruleika í dag með 2-1 sigri á Manchester City. Calum Davenport og Tom Huddlestone gerðu mörk Spurs í leiknum.

Jol búinn að stjórna Spurs í 99 leikjum

0

Leikur Tottenham gegn Man. City á sunnudag verður hundraðasti leikur liðsins undir stjórn Martin Jol. Þá er ekki talinn með leikurinn gegn Charlton þar sem hann var "caretaker manger". Þeir skiptast þannig að þetta verður 82 Úrvalsdeildarleikurinn. Tottenham hefur unnið 36 af þessum 81 leik, gert jafntefli í 21 og tapað 24. Markatalan er 110 gegn 88.  

Hossam Ghaly

0

Egyptski landsliðsmaðurinn Hossam Ghaly gekk til liðs við Spurs í janúar 2006.

Hann festi sig í sessi í aðalliðinu í upphafi tímabilsins eftir að hafa verið meiddur frá því að hann kom til félagsins.

Nafn
Hossam Ghaly
Staða
Miðjumaður
Fæðingardagur
15. desember 1981
Kom frá
Feyenoord

Young-Pyo Lee

0

Lee kom til Spurs í upphafi síðasta tímabils og var fastamaður í liðinu allt tímabilið.

Lee er afar teknískur leikmaður sem fær oft að sækja langt fram í leikjum. Hann þarf nú að berjast meira fyrir sæti sínu í liðinu.

Nafn
Young-Pyo Lee
Staða
Varnarmaður
Fæðingardagur
23. apríl 1977
Kom frá
PSV Eindhoven

Tom Huddlestone

0

Tom Huddlestone er einn af efnilegustu leikmönnum Englands. Hann hefur leikið fjölmarga leiki fyrir U-21 árs liðið þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára.

Tom hefur á skömmum tíma orðið mjög vinsæll meðal stuðningsmanna Spurs en spilamennska hans er mjög þroskuð þrátt fyrir unga aldur.

Nafn
Tom Huddlestone
Staða
Varnar-/Miðjumaður
Fæðingardagur
28. desember 1986
Kom frá
Derby County

Nýjustu fréttirnar