Þá er komið að því kæru Spursarar. Eftir of langa bið er liðið loksins á leið á Wembley. Eftir að hafa lagt Middlesbrough, Blackpool, Manchester City og auðvitað Arsenal svo eftirminnilega er komið að úrslitaleiknum gegn Chelsea. Klúbburinn hvetur alla Spursara til að mæta á Ölver, Glæsibæ og styðja liðið ásamt því að eiga góðan dag saman. Salurinn opnar kl.12:30 og verða tilboð á veitingum gegn framvísun klúbbskírteinis. Klukkan 15:00 gengur liðið svo út á þjóðarleikvang Englendinga, Wembley, en þetta er fyrsti Carling Cup úrslitaleikurinn á nýja Wembley.
Við sendum okkar bestu baráttukveðjur til strákanna. Áfram Tottenham!!!






