Já hann sýndi sig svo sannarlega andi liðinna jóla í gærkvöldi gegn
Já hann sýndi sig svo sannarlega andi liðinna jóla í gærkvöldi gegn
Leikurinn við Birmingham var allt annað en auðveldur fyrir Tottenham. Miðað við stöðu liðanna í deildinni hefðum við átt að vera búnir að klára þetta fyrir hlé. En eins og oft áður náðum við ekki að brjóta þá niður og ef eitthvað var voru Birmingham menn betri í fyrri hálfleik.
Ég sendi fyrir hönd stjórnarinnar öllum klúbbfélögum ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Lifið heil.
Haraldur Jónasson
formaður
PS: Í klúbbnum eru nú 209 meðlimir sem er það mesta frá upphafi.
Emil lék með varaliði Tottenham í gærkvöldi gegn Watford og átti mjög góðan leik. Hann gerði eitt mark og lagði upp annað ásamt því að skapa fleiri færi fyrir samherjana sem þeir nýttu ekki. Leikurinn vannst 5-2. Hin mörkin gerðu Barnard þrjú og Davis eitt. Barnard hefur nú gert 13 mörk í 13 leikjum fyrir varaliðið.
Liðið: Burch, Kelly, Pamarot, Gardner, Bunjevcevic (Daniels 74), O’Hara, Davis, Barcham (McKenna 59), Hallfredsson (Lee 85), Barnard, Rasiak. Ónotaðir varamenn: Forecast, Jackson.
Tottenham gerðu 3-3 jafntefli við Middlesboro á útivelli í gær og mörk Spurs gerðu þeir Robbie Keane, Jermaine Jenas og Mido. Spurs komust yfir en lentu síðan tvisvar undir og sýndu mikinn styrk að koma til baka og ná jafnteflinu. Jermain Defoe átti mjög gott marktækifæri rétt fyrir leikslok en honum tókst ekki að skora.
Teemu Tainio verður frá keppni næstu vikurnar en hann meiddist í leiknum gegn Portsmouth á mánudagskvöldið. Tainio hefur verið að spila vel fyrir Spurs í síðustu leikjum en hann hefur spilað á báðum köntum sem og á miðjum vellinum.
Ég minni á að þátturinn "Liðið mitt" er endursýndur í kvöld föstudagskvöld bæði kl. 18:00 og 20:30 (ekki víst að sami þátturinn sé bæði skiptinn).
Spurs unnu Portsmouth 3-1 í kvöld eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik en öll mörk Spurs komu í þeim síðari. Það voru Ledley King, Mido og Jermain Defoe sem skoruðu mörkin en mark Defoe var hans fyrsta síðan í september.
Það var verið að tilkynna að BBC muni sýna leik okkar við Leicester. Hann er settur á sunnudag 8. janúar klukkan 18:30.
Í dag var dregið í 3. umferð ensku bikarkeppninnar og drógust Tottenham gegn 1. deildarliði Leicester sem Jóhannes Karl Guðjónsson leikur með. Leikurinn mun fara fram laugardaginn 7. janúar á heimavelli Leicester, The Walkers Stadium.