Nokkrir varnarmenn Tottenham eiga við meiðsli að stríða fyrir leik helgarinnar gegn Aston Villa á White Hart Lane. Paul Stalteri er í leikbanni og Ledley King og Michael Dawson eru báðir að berjast við smámeiðsli.
Varaliðið byrjar vel eftir jólafrí
Varaliðið lék sinn fyrsta leik eftir jóla- og áramóta frí. Leikið var gegn Norwich og fóru leikar 0-5 fyrir okkar menn. Emil var að sjálfsögðu ekki með þar sem hann er nú í láni hjá Malmö og spurning hvort við eigum eftir að sjá hann í Tottenham treyju aftur.
Tap í jöfnum leik
Því miður töpuðum við leik okkar á laugardag gegn Liverpool. Leikurinn var kannski ekkert fyrir augað en þó er hægt að segja að þarna hafi tvö álíka lið att kapp saman.
Þrír seldir til Portsmouth
Þrír leikmanna Tottenham voru seldir til Portsmouth í dag fyrir upphæð sem er talin vera í kringum 7 milljónir punda. Pedro Mendes, Noe Pamarot og Sean Davis eru þeir leikmenn sem voru seldir en enginn þeirra hefur náð tryggja sér sæti í liðinu á þessu tímabili.
King að koma til
Ledley King segist eiga möguleika á því að vera með í leiknum um helgina gegn Liverpool á Anfield. King hefur ekki leikið síðan á annan í jólum þegar hann meiddist í sigurleiknum gegn Birmingham. En hann hefur hafið æfingar að nýju og verður líklega í hópnum um helgina.
Gífurleg vonbrigði
Draumar Tottenham um að sigra bikarkeppnina þetta árið fóru út um þúfur þegar liðið beið lægri hlut fyrir Leicester 3-2 á sunnudagskvöld. Spurs voru komnir tveimur mörkum yfir rétt fyrir hálfleik en fengu síðan á sig mark sem breytti leiknum mikið.
Man City 0-2 Spurs
Tottenham lögðu frekar líflaust lið Manchester City af velli í kvöld 2-0 með mörkum frá Mido og Robbie Keane sitthvoru megin við hálfleik. Nokkrar breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu vegna meiðsla, Tainio og Davids fóru út og inn komu Michael Brown og Aaron Lennon.
Gamla árið kvatt með glæsibrag
Eins og West Brom leikurinn var lélegur var leikurinn gegn Newcastle frábær sérstaklega seinni hálfleikur. Jol gat telft fram Tainio aftur en Rasiak var meiddur.
Staðfestir sjónvarpsleikir
Búið er að staðfesta að allir leikir Tottenham í mars verða sýndir í beinni útsendingu hjá Sky og væntanlega þá einnig á Enska Boltanum. Einn þessara leikja er útileikur við Chelsea en eins og flestir vita er löngu kominn tími á að sigra þá.





