| Paul Robinson gekk til liðs við Tottenham fyrir 2004-05 tímabilið frá Leeds. Hann hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti leikmaður Spurs og einnig sem landsliðsmarkvörður Englendinga. Hann var valinn leikmaður tímabilsins 2004-05 af stuðningsmönnum Tottenham á Íslandi. | |
|
Nafn
|
|
|
Paul William Robinson
|
|
|
Staða
|
|
|
Markvörður
|
|
|
Fæðingardagur
|
|
|
15. október 1979
|
|
|
Kom frá
|
|
|
Leeds
|
Paul Robinson
Defoe kláraði Charlton
Jermain Defoe skoraði 2 mörk í 3-1 sigri Spurs á Charlton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Sigurinn var sa fyrsti fyrir Spurs í síðustu 4 leikjum og svo sannarlega mikilvægur til að halda einhverju bili í liðin í næstu sætum. Defoe og Keane voru saman í byrjunarliðinu aðeins í 3. skipti á þessu tímabili og stóðu þeir sig báðir mjög vel í dag.
Slæmur endir á lélegum janúar
Ekki varð eftirtekjan úr leiknum gegn Fulham mikil frekar en öðrum leikjum sem við spiluðum í janúar. Jol varð að stilla upp með Rasiak í sókninni og Reid á vinstri kanti ásamt því að Kelly var settur í vinstri bakvörðinn.
Danny Murphy kominn í Tottenham
Það tókst að munstra Danny Murphy í okkar raðir fyrir lokun gluggans alrænda. Við reyndum að kaupa pilt þegar hann fór frá Crewe Alexandra en hann valdi Liverpool. Svo valdi hann Charlton fyrir um átján mánuðum þegar hann fór frá Liverpool. Nú segir hann að aðstæður séu réttar en hafi ekki verið það þá.
Brown farinn til Fulham
Michael Brown hefur verið seldur til Fulham. Hann lék 64 leik fyrir okkur frá því hann kom frá Sheffield United í janúar 2004. Hann gerði í þeim 3 mörk. Það var ljóst þegar kaupin á Ghaly voru tilkynnt að dagar Brown væru taldir. Við þökkum Brown fyrir þann tíma sem hann var hjá okkur og óskum honum velfarnaðar hjá nýju liði.
Þá er búið að landa einum
Tottenham hefur tilkynnt að búið sé að kaupa egyptska landsliðsmiðjumanninn Hossam Ghaly frá Feyenoord. Hossam er 24 ára. Hann gerir fjögurra og hálfs árs samning við okkur. Hann hafði verið í tvö og hálft tímabil hjá Feyenoord. Hann hefur leikið 19 landsleiki en er ekki með Egyptum í Afríkumótinu vegna meiðsla.
Routledge lánaður til Portsmouth
Búið er að lána Wayne Routledge til Portsmouth eftir því sem official síða Tottenham segir nú rétt áðan. Er hann lánaður út tímabilið. Haft er eftir Jol að hann þurfi að komast í leikæfingu og þar sem hann sé kominn aftur fyrir Lennon og Jenas í goggunarröðinni þá sé þetta góð lausn.
Fimmtugasti leikurinn undir stjórn Jol
Á laugardag lék Tottenham 50 leik sinn undir stjórn Martin Jol í Úrvalsdeildinni. Á þessum tímamótum er ekki úr vegi að líta aðeins á árangur hans með liðið.
Markalaust jafntefli
Þrátt fyrir mikla yfirburði tókst okkur ekki að sigra Aston Villa í gær laugardag og niðurstaðan markaslaust jafntefli mikil vonbrigði. Markmaður Villa ásamt viðverandi vanda okkar manna að skora voru meginástæðurnar fyrir þessari niðurstöðu.
Mido byrjar með marki
Mido lék með Egyptalandi í fyrsta leik Afríkukeppninnar fyrr í dag. Hann skoraði fyrsta mark Egypta í 3-0 sigri á Líbýu. Mido lét verja hjá sér víti seint í leiknum en Egyptar fylgdu vel á eftir og skoruðu þriðja markið eftir að staðan í hálfleik
var 2-0.





