Page 97

Birmingham 0-2 Spurs

0

Tottenham tókst að endurheimta 4. sætið í Ensku úrvalsdeildinni eftir 2-0 sigur á Birmingham í gær. Mörk Spurs komu bæði í seinni háfleik og voru það Aaron Lennon og Robbie Keane sem gerðu mörkin. Spurs hafa nú 2 stiga forskot á Arsenal sem eru í 5. sæti.

Ekki fleiri mistök

0

Martin Jol vill að leikmenn sínir hafi meiri einbeitingu síðustu mínúturnar í leikjum eftir að hafa enn eina ferðina fengið á sig mark á lokamínútunum. Jol segir að þó að liðið hafi spilað vel verði leikmennirnir að taka réttar ákvarðanir.

Svo súrt, svo súrt

0

En koma leikmenn Tottenham okkur á óvart. Í leik liðsins gegn Chelsea á laugardag tel ég ekki ósanngjarnt að segja að við höfðum í fullu tré við þá. Sérstaklega í seinni hálfleik þá vorum við betri aðilinn ef eitthvað var. En okkur tókst ekki að breyta góðu spili oft á tíðum í mörk.

Skref í áttina

0

Það voru margir Spursarar sem önduðu léttar eftir að Tottenham tryggði sér sigur í leiknum við Blackburn um helgina. Loksins kom sigur þó hann hafi verið tæpur. Það verður ekki af Blackburn tekið að þeir léku vel sérstaklega í seinni hálfleik.

Keane skrifar undir nýjan samning

0

Robbie Keane hefur skrifað undir nýjan fjögra ára samning við Tottenham. Þetta var tilkynnt rétt í þessu.

Leiknum gegn Man. Utd. flýtt

0

Búið er að breyta tímasetningunni á leik okkar við Man. Utd. á White Hart Lane 17. apríl næstkomandi. Byrjar leikurinn kl. 11:45 en ekki kl. 14:00 einsog búið var að auglýsa. Vonandi raskar þetta ekki áformum fjölmargra Spursara sem ætla að fara út á leikinn.

Lýst er eftir sjálfstrausti

0

Lýst er eftir sjálfstrausti. Það hvarf að heiman frá White Hart Lane fyrir allnokkru og hefur ekki sést síðan. Leikur okkar gegn Wigan var flýtt um viku vegna úrslitaleiks deildarbikarsins en Wigan spilar einmitt í honum næsta sunnudag.

Glötuð tækifæri

0

En þurfum við að bíða um sinn eftir því að liðið okkar "fullorðnist". Með því á ég við að það geri ekki þessi mistök sem hægt er að skrifa að sumu leyti á reynsluleysi og sumu leyti á ungæðishátt. Svona leikir eru til að safna stigum svo við getum farið rólegir í síðustu leikina gegn sterku liðunum. Eins og er haf úrslit verið okkur hagstæð en það er ekki víst að svo verði áfram.

Keane og Defoe áfram saman

0

Allar líkur eru á því að Robbie Keane og Jermain Defoe muni vera áfram í byrjunarliði Spurs í leik liðsins við Sunderland á sunnudaginn. Einhver möguleiki er að Mido verði kominn aftur eftir Afríkukeppnina en það er frekar ólíklegt að hann verði með.

Tottenham í Puma

0

Tottenham Hotspur er búið að gera samning við íþróttavöruframleiðandann Puma um að sjá félaginu fyrir búningum næstu 5 árin. Samningurinn er sá stærsti sinnar tegundar sem félagið hefur gert. Samningurinn tryggir félaginu 5 milljónir punda á tímabili út samningstímann.

Nýjustu fréttirnar