Martin Jol var að vonum ánægður eftir sigur liðsins á Sunderland í dag en með sigrinum komst liðið í 4. sæti deildarinnar, en flest liðin fyrir neðan eiga leiki inni. Jol var sérstaklega ánægður með framlag Michael Carrick en hann skoraði sigurmarkið, sem var jafnframt fyrsta mark hans fyrir félagið.
Spurs 3-2 Sunderland
Tottenham tókst að leggja botnlið Sunderland af velli í dag, 3-2, með mörkum frá Mido, Robbie Keane og Michael Carrick sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið eftir rúmlega 1 ár. Sigurinn lyftir Spurs upp í 4. sæti deildarinnar en liðið hefur ekki verið svo ofarlega á þessu stigi tímabils í langan tíma.
Wigan 1-2 Spurs
Fyrsti sigur Spurs síðan 15. október kom í dag þegar Wigan voru lagðir að velli 2-1 með mörkum frá Robbie Keane og Edgar Davids, sem átti frábæran leik. Byrjunarliðið var það sama og í síðasta leik og Jermain Defoe aftur á bekknum. Sigurinn lyftir Spurs upp í 5. sæti deildarinnar, en öll liðin fyrir neðan eiga leiki inni.
Routledge, loksins!
Eftir næstum því 3 mánaða fjarveru vegna meiðsla er Wayne Routledge tilbúinn að hefja leik að nýju. Hann verður í byrjunarliði varaliðsins sem tekur á móti Crystal Palace annað kvöld.
Spurs 1-1 West Ham
Enn eina ferðina tókst leikmönnum Spurs ekki að klára leik. Þeir voru betri aðilinn allan leikinn en sköpunargleði þeirra við vítateig andstæðinganna var engin. Þetta er vandamál sem þarf að leysa, annars er hægt að gleyma því að ná Evrópusæti.
Til Spursara á Akureyri og nágrenni
Því ekki að skella sér í KA heimilið á morgun sunnudag kl. 13:00 til að sjá leik okkar manna við West Ham.
Formaður klúbbsins ásamt einum stjórnarmanna munu vera á staðnum. Nú er um að gera að mæta, spjalla og sjá okkar menn "take them to the Cleaners".
Athugið að Sjallakráin verður ekki opin.
Uppgjör eftir 12 leiki
Ritstjórar spurs.is hafa tekið sig saman og gert uppgjör eftir fyrstu 12 leiki tímabilsins. Byrjunin á tímbilinu hefur verið prýðileg og ein sú besta í nokkur ár. Við gáfum öllum leikmönnum einkunnir og völdum þann leikmann sem staðið hefur upp úr það sem af er.
Viðræður við King nýhafnar
Fyrirliði Tottenham, Ledley King, hefur sest að samningaborðinu með Daniel Levy og félögum í stjórninni, í von um að skrifa undir nýjan og betri samning. Núverandi samningur Ledley, sem verður 25 ára nú í desember, rennur út eftir tvö og hálft ár.
Jol svekktur eftir leikinn
Martin Jol telur að Tottenham hafi gert nóg í leiknum gegn Bolton til að verðskulda jafntefli. Honum þótti sérlega súrt að línuvörðurinn skuli hafa haft af löglegt mark af Jermain Defoe, auk þess sem leikmenn hans hittu tvisvar í tréverkið hjá Bolton.
Bolton 1 – 0 Spurs
Á mánudagskvöld fóru Spurs í heimsókn til Bolton, en síðarnefnda liðið hefur fylgt eftir góðu gengi í fyrra og er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar. Þeir hafa verið geysilega sterkir á heimavelli, og sendu Spurs tómhenta til London, lokatölur 1-0 fyrir heimamenn.





