Page 107

Menn úr meiðslum

0

Jæja þá er King farinn að æfa og á von á því jafnvel að geta tekið þátt í Liverpool leiknum. Eins hefur Tom Huddlestone hafið æfingar og El Hamdaoui. Búið er að setja á æfingarleik á þriðjudagskvöld fyrir þá Tom og El ásamt Sean Davis. Það er því stutt í að þessir fjórir komi til greina við val á liðinu.  

Ég hef trú á þessum manni

0

Martin Jol hefur á heimasíðu Tottenham sagt af hverju hann keypti Pólverjann Gregorz Rasiak frá Derby. „Ég sá hann spila tvisvar í fyrra og hann hefur átt góðu gengi að fagna auk þess að vera fastamaður í landsliði Pólands. Sumir segja að Póland sé ekki topplið, en þeir eru í augnablikinu í efsta sæti riðilsins sem England eru í.”

Númer leikmanna

0

Þeir þrír leikmenn sem keyptir voru rétt fyrir lokun félagaskiptagluggans hafa fengið úthlutað númerum. Jermaine Jenas verður númer 28, Gregorz Rasiak númer 9, sem var númer Fredi Kanoute, og Lee Young-Pyo númer 16. Fyrir áhugasama þá mun standa aftan á búning Kóreumannsins Y.P.Lee.

Rasiak kemur frá Derby

0

Stóri framherjinn sem við höfum vonast eftir að komi fyrir Kanoute er mættur. Pólski landsliðs framherjinn Grzegorz Rasiak var keyptur frá Derby á lokasprettinum í gærkvöldi.

Mikið að gerast í dag

0

Það hefur svo sannarlega mikið gerst hjá Tottenham Hotspur í dag. Leikmenn hafa komið og farið en stærsta fréttin er án efa koma Jermaine Jenas, landsliðsmanns Englendinga, til félagsins á 7 milljónir punda. Jenas gerði 4 ára samning við félagið og sagði að hann hefði valið Spurs vegna þess að þeir eru að byggja upp góðan hóp leikmanna. Jenas er þá fimmti landsliðsmaður Englendinga í liði Spurs ásamt þeim King, Defoe, Robinson og Carrick.

Ziegler lánaður til Hamburg

0

Svisslendingurinn Reto Ziegler hefur verið lánaður til þýska úrvalsdeildarliðsins Hamburger SV út þetta tímabil. Ziegler var ekki búinn að leika leik fyrir Spurs á þessu tímabili og telur Martin Jol mikilvægt að hann fái að spila regulega og ítrekaði einnig að Ziegler ætti svo sannarlega framtíð hjá félaginu. Ziegler er enn mjög ungur og mun því án efa snúa aftur til Spurs eftir þetta tímabil.

Lee Young-Pyo keyptur líka

0

Þá hefur Tottenham tilkynnt að Suður-Kóreski bakvörðurinn Lee Young-Pyo er genginn til liðs við okkur. Lee er sókndjarfur vinstri bakvörður sem getur einnig leikið á miðjunni. Hann var í landsliði S-Kóreu sem komst í undan úrslit á HM 2002.

Staðfesting komin með að Jenas er kominn

0

Það var verið að staðfesta að Jermaine Jenas er kominn í okkar raðir.

Edman til Rennes

0

Það berst fréttir víða að, að búið sé að selja Erik Edman til franska liðsins Rennes. Þetta hefur ekki verið staðfest á heimasíðu Tottenham frekar en önnur leikmannamál.

Jenas á leið til Spurs

0

Jermaine Jenas leikmaður Newcastle er þessa stundina í læknisskoðun hjá Tottenham. Hann fékk að yfirgefa æfingar með enska landsliðinu til að ganga frá samningum við Spurs. Kaupverðið er talið vera á bilinu 8-9 millljónir punda og yrði hann þá næsti dýrasti leikmaður Spurs frá upphafi.

Nýjustu fréttirnar