Varnarmennirnir Calum Davenport og Phil Ifil hafa verið lánaðir til liða í 1. deild. Davenport hittir fyrir Dean Marney hjá Norwich á meðan Ifil mun vera hjá Milwall í 3 mánuði. Þetta gefur þessum leikmönnum gott tækifæri til að þroskast og öðlast reynslu í aðalliði þar sem þeir myndu líklega ekki fá mörg tækifæri með aðalliði Spurs á þessu tímabili.
Jafntefli í skemmtilegum leik
Þrír nýir leikmenn voru kynntir til sögunnar hjá Tottenham í leiknum á laugardag gegn Liverpool. Þetta voru þeir Jermaine Jenas, Grzegorz Rasiak og Lee Young-Pyo. Allir voru þeir keyptir nú í lok ágúst áður en leikmanna-skiptaglugganum var lokað. Einnig spilaði King sinn fyrsta leik og Lennon var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu.
Minni á þáttinn okkar í kvöld
Þeir sem misstu af þættinum um Tottenhamklúbbinn og Tottenham á Enski boltinn í gærkvöldi geta náð honum kl. 19:30 eða 22:00 í kvöld og kl. 12:00 á morgun laugardag.
Tottenham – Liverpool
Búið er að gefa það út að Ledley King, fyrirliði Spurs, sé búinn að ná sér af sínum meiðslum og geti verið með gegn Liverpool á morgun. King hefur ekkert leikið á þessu tímabili og mun innkoma hans án efa hafa mjög jákvæð áhrifa á alla leikmenn liðsins. Þá er aðeins Wayne Routledge og Pamarot meiddir en þeir Mounir el Hamdaoui og Sean Davis hafa náð sér af sínum meiðslum. Einnig er Mido í leikbanni eftir að hafa verið rekinn útaf gegn Chelsea.
Lennon gæti reynst mikilvægur
Martin Jol hefur trú á að Aaron Lennon gæti reynst liðinu afar mikilvægur í næstu leikjum eftir að hafa átt góða innkomu í leikinn gegn Chelsea. Lennon var keyptur í sumar frá Leeds og var leikurinn gegn Chelsea fyrsti leikur hans fyrir Spurs í Úrvalsdeildinni. Næsti leikur Spurs er gegn Evrópumeisturum Liverpool og er Jol hvergi banginn að leyfa Lennon að spreyta sig í þeim leik.
Munið þáttinn „Liðið mitt“ í kvöld
Tottenham er liðið mitt í kvöld á Enski boltinn. Þátturinn hefst kl. 20:00 og er í um klukkutíma. Þar verður fjallað um Tottenhamklúbbinn á Íslandi og spjallað um tímabilið hingað til, hvað er framundan hjá Tottenham og farið í sögubrot úr Úrvalsdeildinni. Einnig kemur afar skemmtilegt innslag þar sem Spursari og Arsenalmaður rökræða ýmislegt áhugavert.
Comolli nýr yfirmaður knattspyrnumála
Nú hefur verið tilkynnt að eftirmaður Frank Arnesen í stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Tottenham Hotspurs verði Frakkinn Damien Comolli, en hann er 33ja ára gamall og var áður í svipuðu starfi hjá franska liðinu St. Etienne.
Tottenhamklúbburinn í þættinum „Liðið mitt“
Ég minni á þáttinn "Liðið mitt" á sjónvarpstöðinni Enski boltinn á fimmtudaginn. Þá verður kastljósinu beint að Tottenhamklúbbnum og Tottenham liðinu. Þar koma ýmsir fram til að fjalla um leikina sem búnir eru atvik og framistöðu, rangláta brotvísun og ýmislegt fleira. Einnig verður rifjað upp ferðir á vegum klúbbsins og starfsemi klúbbsins og saga, rifjuð upp. Munið að horfa á þáttinn Liðið mitt á fimmtudag kl. 20:00 á Enski boltinn. Endursýndur á föstudag kl. 19:30.
Val á leikmanni ársins
Nú fer fram val á leikmanni tímabilsins 2004-2005 hér á vefnum. Til stendur að veita honum viðurkenningu í ferð klúbbsins á leikinn gegn Everton. Í dag var sett inn könnun hér hægra megin þar sem ykkur gefst kostur á að greiða þeim leikmanni sem þið teljið að hafi skarað fram úr á síðasta tímabili ykkar atkvæði. Aðeins er hægt að greiða eitt atkvæði úr hverri tölvu þannig að best er að vanda valið. Atkvæðagreiðslan mun fara fram hér á vefnum til 30. september.





