Martin Jol hefur sagt að lið hans reyni að hafa hugmyndir Bill Nicholson í fyrirrúmi þegar þeir spili leiki. Þessi ummæli Jol koma í kjölfarið á því að mikið hefur verið rætt um hvort enska deildin hafi tapað sjarma sínum vegna fárra marka og minnkandi áhorfendafjölda. En Jol er hins vegar staðráðinn að halda í gamlar hefðir Tottenham og láta lið sitt leika "The Tottenham Way".
Meiðslaskýrsla
Eins og venjulega hjá Spurs eru meiðsli leikmanna farin að segja til sín, og bættust þeir Michael Carrick og Anthony Gardner á listann eftir síðasta leik. Meiðsli Carrick eru ekki ýkja alvarleg og verður frá keppni í rúmar 2 vikur. En Gardner er ekki svo heppinn, það er útlit fyrir að hann hafi slitið lærvöðva og munu þau meiðsli taka langan tíma að gróa, eða um 2 mánuði. Nú þegar á meiðslalistanum voru þeir Pamarot(hné), Dawson(hnésbót), Routledge(fótur) og Davids(nári), en sá síðastnefndi mun líklega vera með gegn Fulham.
Routledge frá í 2 mánuði í viðbót
Eins og flestir vita meiddist Wayne Routledge í fyrsta leik tímabilsins gegn Portsmouth og hefur ekkert verið með síðan þá. Þá var sagt að meiðslin yrðu 2 mánuðir en nú hefur Martin Jol verið tjáð að hann muni ekki geta hafið keppni að nýju fyrr en eftir 2-3 mánuði. Þetta eru náttúrulega mjög slæmar fréttir fyrir liðið því að hægri kanturinn hefur verið frekar dauður undanfarið.
Keane og Defoe byrja
Gregorz Rasiak má ekki leika með liðinu á morgun gegn Grimsby því að hann er nú þegar búinn að leika í Deildabikarnum fyrir Derby. Það þýðir að Robbie Keane og Jermain Defoe verða óhjákvæmilega í byrjunarliðinu. Þær fréttir hafa hins vegar borist að Anthony Gardner muni vera frá keppni næstu 2 mánuðina en hann meiddist á læri gegn Villa. Þá verður Edgar Davids ekki heldur með en hann hefur ekki náð sér af fullu af meiðslunum sem hann hlaut í síðustu viku.
Mendes vill burt
Portúgalinn Pedro Mendes, sem keyptur var til félagsins sumarið 2004, hefur sagt í enskum blöðum að hann vilji snúa aftur til síns heimalands. Mendes var einn besti leikmaður Spurs í fyrra en missti af síðustu mánuðum síðasta tímabils vegna meiðsla. Hann hefur ekki náð að endurheimta sæti sitt, og ekki hjálpar það honum að margir nýir miðvallarleikmenn hafa verið keyptir.
Keane bjargar málunum
Robbie Keane tókst að tryggja Spurs jafntefli í erfiðum leik gegn Aston Villa á laugardaginn. Villa höfðu komist yfir snemma leiks og voru betri aðilinn í fyrri hálfleik. Það voru gerðar tvær breytingar á liðinu frá síðasta leik, Reid og Tainio komu inn fyrir Davids og Lennon.
Jermain Defoe lek einna best í fyrri hálfleiknum en hann þegar hann fékk tækifæri til að jafna leikinn úr vítaspyrnu, hitti hann boltann illa og varði markvörður Villa spyrnuna. Staðan var 1-0 í hálfleik og leikmenn Spurs gátu þakkað Paul Robinson að vera ekki meira undir en það.
Aston Villa – Spurs
Á morgun fer fram leikur Tottenham og Aston Villa á Villa Park, heimavelli þeirra síðarnefndu. Leikmenn Villa munu án efa mæta ákveðnir í þennan leik eftir 4-0 stórtap gegn nýliðum West Ham á mánudaginn en þeir hafa yfir sterku liði að ráða á þessu tímabili. En Spurs eru einnig með sterkt lið og styrkist það enn frekar með innkomu Wayne Routledge sem er í hópnum eftir að hafa náð sér af meiðslum í tá.
Edgar Davids er hins vegar tæpur fyrir leikinn og ræðst það ekki fyrr en á morgun hvort hann verði með í leiknum. Einnig er Mido enn í banni, Noe Pamrot er ekki búinn að ná sér af meiðslum og verður Michael Dawson heldur ekki með vegna meiðsla.
Tveir til Derby
Tveir leikmenn Spurs, þeir Mounir el Hamdaoui og Johnnie Jackson, hafa verið lánaðir til 1. deildarliðs Derby County næstu þrjá mánuðina. Þetta er í fimmta skipti sem Jackson fer til annars liðs í láni en hann hefur áður verið m.a. hjá Coventry og Watford, en Hamdaoui hefur ekki áður verið lánaður frá Spurs. Það kemur nokkuð á óvart að Hamdaoui skuli vera lánaður út núna því hann hefur verið að standa sig mjög vel með varaliðinu og var jafnvel talið að hann myndi fá tækifæri með aðalliðinu í næstu leikjum.
Mido vill vera áfram hjá Spurs
Egyptinn Mido sem kom til Spurs fyrr á þessu ári hefur sagt að hann hafi áhuga á að vera hjá félaginu næstu 6-7 árin. Mido, sem er nú í banni, er aðeins 22 ára en hefur þrátt fyrir það leikið fyrir fjöldamörg félög í 7 löndum á sínum stutta ferli. En nú er hann tilbúinn að koma sér fyrir á einum stað og telur hann Tottenham vera staðinn til þess. „Það hefur verið bæði gott og slæmt að skipta sífellt um félög, gott vegna þess að ég hef fengið að kynnast mikið af fólki og öðlast mikla reynslu.”
Mido gefst ekki upp
Mido hefur beðið Enska knattspyrnusambandið að veita sér munnlegan málflutning eftir að hafa neitað að hafa hagað ókurteisislega eftir að hafa verið sýnt rauða spjaldið gegn Chelsea. Eins og flestir vita þá var Mido rekinn af velli í fyrri hálfleik fyrir brot á Del Horno, leikmanni Chelsea. Fyrir rauða spjaldið fékk hann þriggja leikja bann sem hann tekur nú út. En hannn hyggst hins vegar koma í veg fyrir frekara bann með því að biðja um þennan svokallaða "personal hearing."





