Þann 11. október 1958 var fyrrum leikmaður og þáverandi þjálfari hjá Tottenham ráðinn framkvæmdastjóri. Seinna þann dag stýrði hann Tottenham í fyrsta skipti gegn Everton á WHL og hafði sigur 10-4.
Routledge: Lennon búinn að spila vel
Wayne Routledge, sem hefur ekkert leikið með síðan í ágúst, hefur sagt að Aaron Lennon sé búinn að standa sig frábærlega í fjarveru sinni. Routledge er búinn að vera frá síðan upp komst um meiðsli hjá honum eftir fyrsta leik tímabilsins gegn Portsmouth. En hann er allur að koma til og losnaði nýverið við skó sem hann hefur þurft að vera í meðan að brotið var að gróa. Wayne var búinn að spila vel á undirbúningstímabilinu þannig að það voru honum mikil vonbrigði að meiðast strax eftir fyrsta leik.
Félagsgjöld 2005-2006
Stjórn klúbbsins vill minna alla þá sem eiga eftir að borga greiðsluseðilinn(félagsgjöld) að gera það sem fyrst. Félagsgjaldinu fylgja ýmiss fríðindi t.d. fréttabréf, leikskrá og forgangur á miða á White Hart Lane, þannig að það er um að gera að borga.
Kveðja,
Stjórn Tottenhamklúbbsins á Íslandi
Lennon valinn í U-21 lið Englendinga
Aaron Lennon hefur greinilega vakið athygli margra undanfarið og hefur Peter Taylor þjálfari U-21 liðs Englands verið einn af þeim. Lennon er aðeins 18 ára og er því með yngstu mönnum í hópnum, en Michael Dawson og Tom Huddlestone er báðir einnig í hópnum. Það eru margir leikmenn Spurs að leika með landsliðum sínum á næstunni. Jermain Defoe, Paul Robinson, Jermaine Jenas og Ledley King er allir í landsliðshóp Englands og þeir Robbie Keane og Andy Reid eru með Írum.
Davids nýtur sín hjá Spurs
Edgar Davids segist elska að spila undir þeirra pressu sem er í ensku úrvalsdeildinni. Eftir aðeins nokkra leiki með Tottenham hefur hann náð að festi sig í sessi sem miðpunktur liðsins, og hafa margir af ungu leikmönnum félagsins tekið vinnusemi hans sér til fyrirmyndar. Davids spilaði sinn besta leik til þessa fyrir Spurs á laugardaginn, en hann telur að staðan sem hann spilaði hafi gert honum kleift að gera sitt besta.
Mido tognaði
Eins og flestir tóku eftir lá Mido á jörðinni þegar Robbie Keane skoraði sigurmark Spurs á laugardaginn. Hann var síðan leiddur af velli haltrandi skömmu síðar, en hann skoraði einmitt jöfnunarmark leiksins. Martin Jol greindi frá meiðslum hans á heimasíðu Tottenham í dag.
Baráttuandinn skilaði sigri
Það er langt síðan leikmenn Spurs hafa sýnt jafn mikinn baráttuvilja og sóknarkraft og í dag þegar liðinu tókst að koma til baka og sigra eftir að hafa lent 2-0 undir gegn Charlton. Skiptingarnar sem Martin Jol gerði áttu stóran þátt í að tryggja Spurs sigurinn en það var einn varamannanna, Robbie Keane, sem skoraði sigurmarkið á 81. mínútu, áður höfðu þeir Ledley King og Mido skorað.
Það var aðeins gerð ein breyting á liðsuppstillingunni frá síðasta leik, Kelly kom inn fyrir Lee sem var meiddur.
Charlton – Spurs
Á morgun fer fram leikur Tottenham og Charlton á heimavelli Charlton ,The Valley. Tottenham hefur yfirleitt ekki gengið vel gegn öðrum Lundúnaliðum, og einna verst gegn Charlton. Leikmenn Spurs fara inn í þennan leik með bjartsýni eftir 1-0 sigurinn á Fulham en ef þeir ætla sér að leggja Charlton af velli þá þurfa þeir að leika mun betur en gegn Fulham. Þeir Michel Carrick og Michel Dawson eru báðir ekki búnir að ná sér að fulli af meiðslum sínum þannig að ekki er talið að þeir verði með.
Ættum að vinna tvö eða þrjú núll
Martin Jol segir í dálk sínum á heimasíðu Tottenham að liðið hafi átt í vandræðum á síðasta þriðjungi vallarins. En hann segir einnig að það séu greinileg batamerki, en að liðið sé samt frekar taugóstyrkt þegar það nálgist mark andstæðinganna. En þrátt fyrir það er hann ánægður með sigurinn og þakkar áhorfendum á White Hart Lane fyrir góðan stuðning, en það er óhætt að segja að White Hart Lane sé einn af fáum völlum þar sem ávallt er uppselt á deildarleiki.
Spurs 1-0 Fulham
Tottenham komust upp í 4.sæti deildarinnar eftir sigur á Fulham í kvöld á White Hart Lane. Jermain Defoe skoraði eina mark leiksins á 8. mínútu eftir langa sendingu frá Ledley King. Spurs gerðu margar breytingar á liðinu frá síðasta leik, Mendes, Davids, Lennon, Naybet og Mido komu allir inn í byrjunarliðið.
Spurs byrjuðu leikinn af krafti og skoruðu mark eftir 8 mínútna leik, þegar Ledley King gaf langa sendingu fram völlinn sem Jermain Defoe náði og setti boltann örugglega í hornið.





