Page 103

Spurs 1-1 Arsenal

0

Nágrannaslagur Spurs og Arsenal fór 1-1 í dag og skoraði Ledley King mark Spurs í fyrri hálfleik. Edgar Davids var í leikbanni og í hans stað kom Finninn Teemu Tainio, en annars var liðið óbreytt frá síðasta leik.

Leikurinn í dag við Arsenal

0

Ég vill benda Spursurum á að leikur okkar við Arsenal er klukkan 12:00 í dag. Fólk ákveður sjálft hvort það kemur í Ölver eða fer á krár á landsbyggðinni eða horfir á leikinn á  heima í stofu.

Levy leysir frá skjóðunni

0

Fyrr í mánuðinum hittust fulltrúar stuðningsmanna Tottenham Hotspur (Tottenham Hotspur Supporters Trust – THST) og fulltrúar stjórnar félagsins. Tilefni fundarins var regluleg umræða um málefni félaginu viðkomandi. Margt fróðlegt kom fram á fundinum, og birtast hér nokkrir áhugaverðir molar sem þar var greint frá. Meðal þess sem rætt var um voru leikmannakaup, staðan í fjármálum og málefni White Hart Lane.

Huddlestone í lán

0

Hinn efnilegi Tom Huddlestone hefur verið lánaður til Wolves í einn mánuð. Þar mun landsliðsmaðurinn ungi, sem getur leikið bæði í vörn og á miðju, hitta fyrir Glenn Hoddle, fyrrverandi leikmann og knattspyrnustjóra Tottenham.

Jol sáttur við seinni hálfleikinn

0

Martin Jol var mjög glaður með hvernig leikmönnunum tókst að ná stigi á Old Trafford í gær. Man U voru betri í fyrri hálfleik en leikur Spurs í þeim síðari verðskuldaði a.m.k. jafntefli. Eftir jöfnunarmark Jermaine Jenas voru Spurs meira að segja líklegri til að sigra og áttu þeir nokkrar skyndisóknir sem þeim tókst samt ekki að nýta.

Gott stig á útivelli

0

Leikur Tottenham og Man Utd í dag fór 1-1, og var það Jermaine Jenas sem skoraði mark Spurs í seinni hálfleik. Martin Jol stillti upp sama liði og í síðasta leik enda engin ástæða til að gera breytingar. Það má segja að leikmenn Man U hafi byrjað leikinn betur og verið sterkara liðíð í fyrri hálfleik en sá síðari var allt öðruvísi og voru það leikmenn Spurs sem voru mun meira með boltann. Man U skoruðu mark strax í byrjun eftir að Paul Robinson missti boltann frá sér eftir skalla.

Mido tæpur vegna meiðsla

0

Mido er eini leikmaður Tottenham sem er tæpur fyrir leik helgarinnar gegn Manchester Utd. á Old Trafford. Hann hefur verið lykilmaður í liði Spurs á þessu tímabili og þegar hann hefur ekki verið með, þá hafa Spurs ekki unnið. Það lítur nú út fyrir að hann sé aðalsóknarmaður liðsins og að það sé spurning um hver spili með honum. Hann hefur spilað frábærlega það sem af er tímabilinu og skorað 3 mörk í deildinni, eins og Defoe.

Fleiri mörk

0

Martin Jol vill að miðjumenn sínir fari að skora fleiri mörk, en Jermaine Jenas var fyrsti miðjumaðurinn til að skora á þessu tímabili um helgina. Ástandið var mjög slæmt á síðasta tímabili, þegar miðjumaður skoraði fyrst 1. janúar gegn Everton(Dean Marney) og var hann meira að segja markahæsti miðjumaður liðsins í fyrra með 2 mörk, bæði í umræddum leik gegn Everton.

Myndir úr ferðinni komnar á síðuna

0

Búið er að bæta við fleiri myndum úr ferðinni síðastliðna helgi. Þær er að finna hér hægra megin á korktöflunni.

Góður sigur á Everton

0

Tottenham unnu góðan sigur á Everton um helgina, 2-0, með mörkum frá Mido og Jermaine Jenas. Mörkin komu bæði í seinni hálfleik og það er óhætt að segja að sigurinn hafi verið nokkuð öruggur, enda voru Everton ekki í sínu besta formi. Þrjár breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu, Carrick, Dawson og Lee komu inn fyrir Mendes, Naybet og Kelly.

Nýjustu fréttirnar