Page 108

Nýjustu fréttir vegna Everton ferðarinnar

0

Nú er búið að staðfesta að verðið verður 53.900,-. Um 30 hafa skráð sig í ferðina okkar á leikinn við Everton. Við höfum framlengt frestinn til að staðfesta ferðina til 31. ágúst. Það kemur til vegna þess að við höfum ekki komist í tölvupóstinn síðan um helgi og þar gæti verið einhverjir sem eru búnir að skrá sig. Við reyknum með að geta lesið póstinn seinna í dag. Nánar hér

Dómarinn í aðalhlutverki

0

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Rob Styles hefur þvælst fyrir okkur. Að senda Mido útaf var alltof harkaleg aðgerð. Gult hefði verið eðlilegt og aukaspyrna. Á síðustu leiktíð dæmdi hann undanúrslitaleikinn í FA bikarnum gegn Newcastle og dæmdi af okkur löglegt mark ásamt því að dæma ekki tvö klár víti. Hann kom einnig við sögu í leik gegn Birmingham þar sem Savage lét sig detta í teignum og fékk víti.

Jafntefli í lélegum leik

0

Það er fátt hægt að segja um leikinn á miðvikudag. Leikurinn í heild var lélegur og grófur að hálfu Blackburn. Við náðum aðeins einu skoti á markið allan leikinn.

Nýr samningur fyrir Jol

0

Þjálfari Tottenham, Martin Jol, skrifaði í dag undir nýjan 3 ára samning við félagið. Martin tók við starfi yfirþjálfara í nóvember í fyrra eftir að hafa gengið til liðs við félagið sumarið 2004. Daniel Levy stjórnarformaður Tottenham Hotspur sagði að félagið væri alltaf að reyna að sýna þökk sína við starfsfólk og að þessi nýi samningur sýndi að Martin væri búinn að gefa öllum tengdum félaginu nýja og raunverulega von um góðan árangur.

Sigurlaun í tippleiknum 2005

0

Loksins tókst að afhenda sigurlaunin í tippleiknum sem við höfum haft hér á spjallborðinu. Sigurvegari varð Sigrún Júlíusdóttir Myndin sýnir formanninn afhenda Sigrúni fána klúbbsins í verðlaun. Við minnum á að nýr tippleikur er hafinn.

Jol og Reid ángæðir með Davids

0

Það er greinilegt að fyrsti leikur Edgar Davids hefur ekki valdið fólki vonbriðgum og hafa leikmenn Spurs og þjálfarinn, Martin Jol, verið afar lofsamir um frammistöðu Hollendingsins í gær. „Þetta var fyrsti leikur hans(Davids) í marga mánuði og hann stóð sig eins og hetja, nákvæmlega eins og ég hafði ímyndað mér. Okkar leikur mun batna bæði líkamlega og andlega hans vegna,” sagði Jol og bætti svo við og sagði að hann hefði leikið eins og hann væri 26 ára og í toppformi.

Routledge frá í allt að 2 mánuði

0

Meiðslin sem Wayne Routledge varð fyrir í leiknum gegn Portsmouth um síðustu helgi eru alvarlegri en fyrst var talið. Upphaflega var því haldið fram að hann yrði frá í 2-3 vikur en nú hefur komið á daginn að þetta svokallaða "stress fracture" eða áreynslumeiðsli mun ekki gróa að fyrr en eftir 2 mánuði.

Defoe með snilldarmark

0

Tottenham unnu sinn annan sigur í röð í dag þegar Middlesboro voru lagðir af velli á White Hart Lane, 2-0. Jermain Defoe og Mido skoruðu mörk Spurs en þau komu bæði í seinni hálfleik. Með sigrinum eru Spurs sem stendur í efsta sæti Úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga. Aðeins ein breyting var gerð á byrjunarliðinu frá síðasta leik, Edgar Davids kom inn í stað Wayne Routledge sem meiddist í síðasta leik. Þetta var jafnframt fyrsti leikur Davids fyrir Spurs og er óhætt að segja að baráttuvilji hans hafi smitast til annarra leikmanna í dag.

Fánarnir komnir í sölu

0

Tottenhamklúbburinn hefur látið útbúa fána fyrir félagsmenn. Tvær gerðir eru til. Borðfáni sem kostar 3.000,- og fáni á vegg sem kostar 1.500,- (sjá myndir). Þeir sem hafa áhuga á að kaupa fána sendið okkur pöntun á spurs@spurs.is og við höfum samband við ykkur varðandi greiðslu og afhendingu.

Tottenham í beinni á Enski boltinn

0

Samkvæmt upplýsingum frá Enska boltanum verða leikir okkar á laugardag og miðvikudag í beinni á Enski boltinn sjá nánar hér 

Ölver verður með Middlesbrough leikinn í beinni á laugardag.

Nýjustu fréttirnar