Nú klukkan 20:00 verður sýndur þátturinn Liðið mitt sem er þáttur stuðningsklúbbana. Endilega kíkið á hann.
Fredi á leið í Sevilla
Fredi Kanoute er að fara frá okkur til Sevilla á Spáni. Þetta var tilkynnt á heimasíðu Tottenham rétt áðan. Fredi hefur komist að samkomulagi við þá og á að eins eftir að standast læknisskoðun. Hann var keyptur frá West Ham fyrir tímabilið 2003-04 og lék 72 leiki með okkur og skoraði í þeim 21 mark. Við óskum Fredi velfarnaðar á nýjum slóðum og þökkum honum fyrir veru hans hjá okkur.
Varaliðið vann varalið Chelsea
Mörk frá Ifil og Johnnie Jackson tryggðu varaliðinu sætan sigur á varaliði Chelsea. Við vorum betra liðið allan tímann. Emil var í byrjunarliðinu en var skipt útaf á 70. mínútu. Brown lék 45. mínútur en hann hefur verið meiddur. Varaliðið heur þá unnið báða leiki sína.
Hver vill vinna við sjónvarpsþátt
Eins og þið kannski vitið nú þegar ætlar Enski boltinn að hafa klukkutíma þátt á fimmtudagskvöldum þar sem stuðningsklúbbarnir munu sjá um dagskrárgerð. Við munum sjá um þátt sem sendur verður út fimmtudaginn 8. september og svo á sirka 7. til 8. vikna fresti í vetur. Við viljum heyra í klúbbmeðlimum og Spursurum sem hefðu áhuga að vinna með okkur í þessu verkefni. Þið sem hafið áhuga sendið mér tölvupóst á haraldurj@ruv.is og ég mun hafa samband.
Þá er ballið byrjað og það með sigri
Í dag laugardag hófst loksins langþráð sparktíð. Við mættum Portsmouth og höfðum sigur 0-2. Fyrra markið var sjálfsmark þegar varnarmaður Portsmouth var að reyna að ná boltanum á undan Mido en renndi honum þess í stað fram hjá markmanninum og í netið. Seinna markið gerði Defoe og var það vel gert.
Davids meiddist á æfingu
Er meiðsla krísan að taka við sér á ný. Nú er tilkynnt að Edgar Davids hafi meitt sig á hné á æfingu og geti ekki verið með í fyrstu leikjum tímabilsins. Hann bætist þá í hóp þeirra King, El Hamdaoui og Sean Davis. Robinson er þó orðinn góður af sínum meiðslum.
Fjölskylduhátíð Enska boltans
Í tilefni opnunar Enska boltans er stuðningsmönnum og fjölskyldum þeirra boðið á Rauða ljónið og Eiðistorg laugardaginn 13. ágúst frá kl. 11:00. Sjá meira um það hér.
Ledley ekki með í fyrsta leik
Martin Jol hefur skýrt frá því að Ledley King muni missa af fyrsta leiknum í deildinni vegna meiðsla í nára. Þetta eru sömu meiðsli og hindruðu hann í að spila gegn Porto. Jol vonar að ekki þurfu að skera Ledley upp og hann verði kominn á fullt eftir eina til tvær vikur.
Varaliðið vann sinn fyrsta leik
Varalið Tottenham mætti varaliði Watford í fyrsta leik varaliðsdeildarinnar í gær mánudag. Leikurinn fór fram á heimavelli varaliðsins Bradhall Way, Stevenage. Við unnum leikinn 4-1 með mörkum frá Kanoute, Lennon, Davenport og Barnard.
Sigur gegn Porto
Síðasti æfingarleikur Tottenham var leikinn nú í dag. Þá mættum við fyrrum Evrópumeisturum Porto frá Portúgal.





