Tveir ungir leikmenn Tottenham hafa verið lánaðir næsta vetur. Dean Marney fer til Norwich í fyrstu deildinni og Mark Yeates fer til Colchester Utd. sem er í annari deildinni.
Númer leikmanna gefin út
Edgar Davids fær treyju númer 5 hjá Tottenham. Staltiari fær treyjuna hans Simon Davies númer 7, Teemu Tainio verður í númer 6 og Cerny varamarkmaður verður númer 12. Wayne Routledge verður í treyju númer 21. Það vekur athygli að Emil er ekki úthlutað númeri en hann fékk strax treyju númer 36 þegar hann kom til liðsins síðastliðinn vetur.
Edgar Davids er leikmaður Tottenham
Tottenham Hotspur tilkynnti um miðnætti að Edgar Davids væri búinn að srifa undir samning við þá. Það er því komið í höfn að þessi frábæri knattspyrnumaður leikur með Tottenham á komandi tímabili.
Það er reiknað með að hann spili gegn Porto á laugardaginn.
Aldershot-Spurs 0-4
Tottenham lék í dag sunnudag við Aldershot æfingarleik. Það má segja að liðið hafi verið skipað þeim leikmönnum sem ekki léku í gær ásamt nokkrum varaliðsmönnum eins og Emil Hallfreðs. Spurs vann 4-0 og gerðu El Hamaoui, Carrick, Davenport og Keane mörkinn.
Davids á Reading leiknum
Það hefur valdið flestum Spursurum áhyggjum að ekkert hefur heyrst af undirritun samninga við Edgar Davids eða hvort læknisskoðun hans hafi komið vel út. Það hefur reyndar ekkert heyrst heldur um að allt sé farið út um þúfur. Til að róa menn þá sást hann á leiknum gegn Reading og hann veifaði til stuðningsmanna.
Reading-Spurs 0-2
Við unnum góðan sigur á Reading í dag laugardag. Fyrri markið kom á 5. mínútu og var þar Dedoe á ferð. Gardner hafði brotið upp sókn Reading á bak aftur og sendi boltan til Routledge sem sendi á Mido eftir að Kelly hafði skapað honum svæði með yfirhlaupi (overlap).
Heimsklassa miðjumaður kemur
Búið er að tilkynna að hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids er á leið í Tottenham. Hann mun fara í læknisskoðun næstu tvo daga og síðan semja um kaup og kjör. Það þarf ekki að fjölyrða um hverskonar hvalreki þessi leikmaður yrði ef allt gengur upp. Einnig hefur heyrst að verið sé að ganga frá kaupum á Andy Johnson frá Crystal Palace.
Gardner ekki á förum
Martin Jol hefur sagt að varnarmaðurinn Anthony Gardner muni ekki yfirgefa félagið í sumar eins og útlit hafði verið fyrir. Fyrir nokkrum vikum síðan leit út fyrir að Gardner væri á leið til Charlton, en það gekk ekki efir og verður hann því áfram í herbúðum Spurs.
Meistarar friðarins
Tottenham var rétt í þessu að vinna Lyon í úrslitaleik "Peace Cup" í Suður-Kóreu. Leiknum lauk 3-1 og gerði Keane tvo mörk bæði eftir fyrirgjöf frá Mido og eitt mark var sjálfsmark eftir fyrirgjöf frá Kelly.
Góð mæting á aðalfundinn
Aðalfundur Tottenhamklúbbsins var haldinn í gærkvöldi. Átján manns mættu og verður það að teljast gott í ekki stærra félagi. Formaðurinn fór yfir ársreikning klúbbsins og kom þar fram að hagnaður af starfi klúbbsins var rúm 55.000,- síðasta vetur. Í klúbbinn borguðu 181 sem er 19 færri en árið áður.





