Tottenham fór með hálf vængbrotið og þjálfaralaust lið á Anfield Road í Liverpool í gær. Van Der Vaart , Defoe , Kaboul , Sandro , Gallas , Lennon , Huddlestone voru til að mynda allir frá vegna meiðsla og svo komst Harry Redknapp ekki til Liverpool þar sem flugið hans frá London var fellt niður. Þannig að stigið sem Tottenham fékk í gær var kærkomið , en leikar enduðu 0-0. Var þetta aðeins annar leikurinn á tímabilinu í deildinni þar sem liðið nær ekki að skora , fyrir þennan leik hafði Tottenham skorað í 22. leikjum í deildinni í röð.
Öruggur sigur á Wigan
Tottenham átti leik við Wigan í síðustu viku á heimavelli. Tottenham kom vel tilbaka eftir svekkelsis tap gegn Man City helgina á undan og sigruðu lið Wigan 3-1. Mörk Tottenham skoruðu Bale 2 og Modric. Með þessum sigri styrkti lið Tottenham stöðu sína í 3. sæti deildarinn enn frekar.
Heppnissigur á Watford í FA CUP
Tottenham lék gegn Watford á útivelli í FA CUP síðasta föstudagskvöld og bar sigur úr bítum 0-1 þar sem Tottenham átti akkúrat ekkert skilið úr leiknum þar sem lið Watford sýndi sínar bestu hliðar á meðan lið Tottenham virkaði andlaust. Mark Tottenham skoraði Van Der Vaart. Tottenham er því komið áfram í næstu umferð – 16 liða úrslit þar sem liðið mætir Stevenage á útivelli.
Grátlegt tap gegn Man. City
Tottenham tapaði gegn liði Manchester City á sunnudaginn var í ótrúlega skemmtilegum leik. Lokatölur voru 3-2 fyrir heimamenn. Tottenham átti skilið 1 stig , ef ekki 3 úr þessum leik þar sem liðið var að spila nokkuð vel gegn stjörnupríddu liði Man. City. Mörk Tottenham skoruðu Defoe og Bale.
Árgjald Tottenhamklúbbsins
Vildi bara minna fólk sem hefur áhuga á að skrá sig í klúbbinn að það er hægt að gera með því að klikka HÉR. Eins er krafa í heimabönkum hjá þeim sem hafa skráð sig sem einhverjir eiga kannski eftir að greiða.
.
Tottenhamkveðja
Stjórnin
2 töpuð stig gegn Wolves
Tottenham lék á móti liði Wolves á White Hart Lane á laugardaginn var. Leikurinn endað með jafntefli 1-1 sem verður að teljast nokkuð slæm úrslit miðað við gengi liðsins, en þetta var "einn af þessum leikjum" þar sem liðið var miklu betra en náði bara ekki að klára dæmið. Mark Tottenham skoraði Luka Modric.
Öruggur sigur á Everton
Tottenham og Everton áttust við á WHL á miðvikudagskvöldið var , frestaður leikur frá því í fyrstu umferð deildarkeppninnar í haust þegar óeirðir voru í gangi í Tottenhamhverfinu og víðar í London. Tottenham fór með sigur af hólmi í leiknum , 2-0 þar sem Lennon og Ekotto skoruðu mörk Tottenham. Með sigrinum fór Tottenham uppað hlið Man Utd í 2.-3. sæti deildarinnar , aðeins þremur stigum á eftir Man City sem trónir á toppnum.
Tottenham áfram í FA CUP
Tottenham tók á móti 2.deildarliðinu ( fjórða deild ) Cheltenham Town í þriðju umferð FA CUP á laugardaginn var. Lið Tottenham átti frekar náðugan dag og sigruðu nokkuð örugglega 3-0. Mörk Tottenham skoruðu Defoe , Pavluychenko og Dos Santos.
Jóla- og áramótaleikir
Tottenham lék þrjá leiki um jól og áramót og komu 7 stig af 9 í hús. Fyrst var leikið úti gegn Norwich og sigraði Tottenham þann leik 0-2 en leikið var 27. desember. Á gamlársdag heimsótti Tottenham svo aðra nýliða þegar Swansea var heimsótt og fóru leikar 1-1. Í gær þann 3. janúar var svo leikið heima gegn WBA og sigraði Tottenham í þeim leik 1-0. Þriðja sætið er því enn okkar.
Jafntefli við Chelsea
Tottenham lék við Chelsea á White Hart Lane á fimmtudagskvöldið var og endaði leikurinn með jafntefli 1-1 eftir að Adebayor hafði komið Tottenham yfir. Leikurinn sem slíkur var ekkert sérstakur og líklega sanngjörn úrslit. Þó var smá vafaatriði með mark Chelsea í leiknum og vildu margir meina að dómarinn hefði átt að dæma hendi á Cole þegar hann lagði upp jöfnunarmark Chelsea í leiknum.





