Page 27

Bale og Gallas semja á ný

0

Gareth Bale og William Gallas hafa skrifað undir nýja samninga við Tottenham. Bale skrifaði undir nýjan og endurbættan samning við liðið og gildir hann út tímabilið 2014-2015. Gallas var hins vegar einungis á 1 árs samningi og hefur nú skrifað undir nýjan tveggja ára samning sem heldur honum hjá liðinu út tímabilið 2012-2013. Eru þetta án efa góðar fréttir fyrir Tottenham enda báðir gegnt mikilvægu hlutverki fyrir liðið á núverandi leiktíð.

Spurs 0 – West Ham 0

0

Tottenham tók á móti West Ham á White Hart Lane í leik helgarinnar. Leikmenn Tottenham eru í hörkubaráttu um 4.sæti deildarinnar en West Ham menn þurfa á stigum að halda enda í bullandi fallbaráttu. Leikmenn Tottenham höfðu yfirhöndina í leiknum og áttu meðal annars 2 skot í stöng í fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik sá Green, markvörður West Ham, algjörlega um að halda þeim inni í leiknum með frábærri markvörslu. Leikmönnum Tottenham tókst ekki að koma boltanum í netið að þessu sinni en voru þó traustir í varnarleiknum. Leiknum lauk því með 0-0 jafntefli og skiptu liðin því með sér stigunum. Því miður tókst Tottenham því ekki að minnka bilið í 4.sætið að sinni.

Dregið í Meistaradeildinni

0

Dregið var í 8 liða úrslit og undanúrslit Meistaradeildarinnar og var Tottenham þar á meðal liða eftir að hafa lagt AC Milan í 16 lilðar úrslitunum. Tottenham var fjórða liðið upp úr pottinum í þessum drætti og dróst gegn stórliðinu Real Madrid í 8 liða úrslitunum. Fyrri leikurinn fer fram þann 5. apríl á Bernabeu leikvanginum í Madrid, en síðari leikurinn fer fram á White Hart Lane viku síðar, þann 13. apríl. Sigurvegari viðureignarinnar mætir svo annaðhvort Barcelona eða Shakhtar Donetsk í undanúrslitum. Allan dráttinn má sjá undir "meira" hér fyrir neðan.

Tottenham áfram í 8 liða úrslit Meistaradeildarinnar

0

Tottenham tók á móti AC Milan í síðari leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á White Hart Lane. Tottenham sigraði fyrri leikinn á San Siro 0-1 og því var við að búast að Milan menn leggðu allt í sölurnar í þessum leik sem þeir svo gerðu. Milan menn voru mun sterkari í fyrri hálfleik og sóttu stíft en vörn Tottenham hélt vel. Hættulegasta færi Milan manna kom á 26.mínútu þegar Gallas bjargaði á marklínu eftir skot frá Robinho. Leikurinn jafnaðist aðeins í síðari hálfleik og bæði lið áttu ágætis færi til að ná forystunni í leiknum. En hvorugu liðanna tókst að koma knettinum í net andstæðingsins og skildu þau því jöfn 0-0. Þessi úrslit þýða að Tottenham fer áfram í 8 liða úrslit Meistaradeildarinnar. Þann 18.mars nk verður svo dregið um það hvaða lið mætast í næstu umferð.

Tottenham í samstarf við Under Armour

0

Tottenham tilkynnti í dag að félagið hefur skrifað undir samning við bandaríska framleiðandann Under Armour og mun fyrirtækið hanna búninga liðsins frá og með tímabilinu 2012-2013.

Spurs 3 – Wolves 3

0

Tottenham heimsótti Wolves á Molineux leikvanginn í leik helgarinnar. Það voru heimamenn sem náðu forystunni í leiknum á 20. mínútu með marki frá Doyle. Eftir hálftíma leik náði Defoe að jafna metin með fyrsta deildarmarki sínu á tímabilinu. Fimm mínútum síðar skoraði hann annað mark sitt og kom liðinu í 1-2. Wolves menn jöfnuðu svo metin á 41.mínútu með marki frá Doyle úr vítaspyrnu, en Hutton var dæmdur brotlegur. Pavlyuchenko kom svo Tottenham yfir snemma í síðari hálfleik og það leit út fyrir að Tottenham myndi hirða öll stigin úr þessari viðureign. En á 87.mínútu náðu Wolves menn að jafna leikinn með marki frá Fletcher og urðu lokatölur því 3-3 í stórskemmtilegum leik.

Tap gegn Blackpool

0

Tottenham heimsótti Blackpool á þriðjudagskvöld í leik sem upphaflega átti að leik fyrir áramót en var frestað vegna þess að völlurinn var ekki í leikhæfu ástandi þann dag. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með en heimamenn í Blackpool náðu yfirhöndinni í fyrri hálfleik með marki úr vítaspyrnu frá Adam á 17.mínútu og marki frá Campbell á 44.mínútu. Leikmenn Tottenham reyndu að minnka muninn og sóttu stíft í seinni hálfleik. En á 80.mínútu bættu heimamenn þriðja markinu við með marki frá Ormerod. Pavlyuchenko náði að skora eitt mark fyrri Tottenham í uppbótartíma en það dugði skammt. Blackpool menn hirtu því öll þrjú stigin úr þessari viðureign.

AC Milan 0 – Tottenham 1

0

Tottenham heimsótti AC Milan á San Siro í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en síðari leikurinn fer fram á White Hart Lane þann 9. mars nk. Leikmenn Tottenham komu ákveðnir til leiks og höfðu nokkra yfirhönd í fyrri hálfleiknum en hvorugu liðinu tókst að skora og því enn jafnt í hálfleik 0-0. Síðari hálfleikurinn var mun jafnari en sömuleiðis töluvert grófari og mönnum oft heitt í hamsi. Yepes átti frábæran skalla en Gomes tókst að verja glæsilega frá honum. Þegar rúmlega klukkustund var liðin af leiknum tæklaði Flamini Corluka full harkalega og voru margir á því að hann verðskuldaði rauða spjaldið að launum. Dómarinn gaf honum þó einungis gult en Corluka þurfti að fara meiddur af velli. Woodgate kom inná í hans stað í sínum fyrsta leik síðan í nóvember 2009. Milan menn sóttu stíft en það voru hins vegar Tottenham menn sem skoruðu eina mark leiksins. Á 80.mínútu fékk Lennon boltann og tók á sprett upp völlinn í átt að marki Milan. Hann lék á varnarmann Milan áður en hann gaf á Crouch sem potaði boltanum í netið. Fleiri urðu mörkin ekki og Tottenham því yfir 1-0 í einvígi liðanna en eins og áður sagði fer síðari leikurinn fram þann 9. mars nk.

Mikilvægur útisigur

0

Tottenham heimsótti Sunderland á Stadium of Light í leik helgarinnar. Sunderland menn hafa ávallt verið erfiðir heim að sækja og í þetta skiptið náðu þeir forystunni snemma leiks með marki frá Gyan. En leikmenn Tottenham hafa ekki verið þekktir fyrir að gefast upp, enda það lið sem flest stig hefur fengið frá því að lenda undir í leik og hafa því stundum verið nefndir "Endurkomukóngarnir". Dawson jafnaði leikinn með skallamarki eftir hornspyrnu og það var svo Niko Kranjcar sem kom liðinu til bjargar á ný með sigurmarkinu á 57.mínútu, en hann skoraði einnig sigurmark síðasta leiks gegn Bolton. Leiknum lauk því með 1-2 sigri Tottenham.

Spurs 2 – Bolton 1

0

Tottenham tók á móti Bolton á White Hart Lane í leik helgarinnar. Eftir einungis 6 mínútna leik var Tottenham komið yfir í leiknum með marki frá Van der Vaart, en markið skoraði hann úr vítaspyrnu eftir að leikmaður Bolton handlék boltann innan teigs. Stuttu síðar fengu leikmenn Tottenham aftur vítaspyrnu eftir að Lennon var felldur innan vítateigsins. Van der Vaart steig aftur á vítapunktinn og skoraði af öryggi. Dómarinn dæmdi þó að spyrnan skyldi tekin aftur þar sem leikmenn voru komnir inn í teig þegar spyrnan var tekin. Hann skaut þó framhjá úr endurtekna vítinu og staðan því enn 1-0. Þegar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik náðu Bolton menn að jafna leikinn þegar Sturridge skoraði framhjá Gomes. En það var svo í uppbótartíma sem Kranjcar náði að þruma boltanum í netið og tryggja liðinu öll stigin, en hann hafði komið inná þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Lokatölur því 2-1, Tottenham í vil.

Nýjustu fréttirnar