Page 36

Klúbbmeðlimir erlendis athugið!

0

Nú er blað Tottenham klúbbsins þetta árið ásamt gjöf að berast meðlimum klúbbins. Því miður höfum við ekki aðgang að heimilisföngum þeirra klúbbmeðlima sem búa erlendis og því biðjum við þá sem hafa borgað meðlimagjaldið og búa erlendis að senda heimilisfang sitt í tölvupósti á spurs(hja)spurs.is svo hægt sé að senda þeim blaðið.

Kveðja, stjórnin.

Sunderland 3 – Tottenham 1

0

Tottenham heimsótti Sunderland á Stadium of Light í leik helgarinnar. Nú á lokaspretti leiktímabilsins er baráttan mikil um hvert stig í deildinni og var þessi leikur engin undantekning. Sunderland menn fóru þó að lokum með sigur af hólmi, 3-1, í ansi fjörugum leik þar sem fyrsta markið leit dagsins ljós á fyrstu mínútu leiksins, þrjár vítaspyrnur voru dæmdar á Tottenham í leiknum og Darren Bent misnotaði tvær þeirra gegn sínum fyrri félögum. En með tapinu féll Tottenham úr 4.sætinu og situr nú í því fimmta þegar 6 leikir eru eftir.

Tilkynning varðandi miða í bikarkeppninni

0

Tottenham klúbburinn á Íslandi vill benda á það að klúbburinn getur ekki útvegað miða á leik liðsins í undanúrslitum FA bikarsins á Wembley gegn Portsmouth þann 11.apríl nk. né sjálfan úrslitaleikinn ef liðið kemst áfram í úrslitaleikinn í vor. Stuðningsmannaklúbbarnir fá enga miða á þessa leiki heldur eru það ársmiðahafar sem hafa forgang á miðana og verði einhverjir eftir fara þeir til meðlima klúbbsins úti sem hafa safnað sér ákveðnum puntkum til þess.

Tottenham 2 – Portsmouth 0

0

Harry Redknapp og liðsmenn hans í Tottenham tóku á móti fyrrum liði Harrys, Portsmouth, á White Hart Lane í leik helgarinnar. Tottenham hefur verið á góðri siglingu undanfarið og stendur í harðri baráttu um fjórða sæti deildarinnar. Ekki er jafngóða sögu að segja af Portsmouth en þeir verma botnsæti deildarinnar og eru svo gott sem fallnir. Leikmenn Tottenham reyndust of sterkir fyrir lánlaust lið Portsmouth því þeir hirtu öll þrjú stigin úr þessari viðureign með 2-0 sigri, þar sem fyrrum leikmenn Portsmouth, þeir Crouch og Kranjcar, skoruðu mörk leiksins.

Tottenham kaupir Sandro

0

Slúðursagan endalausa er loks á enda eftir að Tottenham tilkynnti um kaup liðsins á brasilíska miðjumanninum Sandro. Tottenham hefur verið orðað við hann frá síðasta sumri en nú er búið að ganga frá félagaskiptum hans frá Internacional í Brasilíu. Sandro er 21 árs gamall og spilar á miðri miðjunni en oft er hann í hlutverki varnartengiliðs. Hann hefur nú þegar spilað með aðalliði Brasilíu en einnig lék hann með yngri liðum þess. Sandro kemur til liðsins í sumar eftir að keppninni "Copa Libertadores" er lokið, en þar mun hann leika síðustu leiki sína með Internacional.

 

Við bjóðum Sandro velkominn til Tottenham!

Tottenham í undanúrslit FA bikarsins

0

Tottenham tók á móti Fulham á White Hart Lane á miðvikudagskvöldið í endurspili um sæti í undanúrslitum FA bikarsins. Liðin gerðu markalaust jafntefli þegar þau mættust á Craven Cottage þann 6.mars og því þurfti annan leik til að knýja fram sigurvegara úr þessari viðureign. Leikmenn Fulham byrjuðu leikinn mun betur og náðu forystu í leiknum en leikmenn Tottenham komu sterkir tilbaka í síðari hálfleik og náðu yfirhöndinni í leiknum. Leiknum lauk með sigri Tottenham 3-1 og voru það þeir Bentley, Pavlyuchenko og Eiður Smári Guðjohnsen sem skoruðu mörkin, en þetta var annað mark Eiðs Smára í jafnmörgum leikjum. Tottenham mætir því liði Portsmouth í undanúrslitum FA bikarsins þann 11. apríl nk.

Eiður skoraði í góðum útisigri á Stoke

0

Tottenham heimsótti Stoke á Britannia Stadium í leik helgarinnar. Tottenham átti harma að hefna enda hirtu Stoke menn öll stigin í viðureign liðanna á White Hart Lane fyrr á tímabilinu. Stoke menn eru hins vegar afar sterkir á heimavelli og því var búist við baráttuleik. Tottenham fór þó með sigur af hólmi í þessari viðureign en lokatölur leiksins voru 1-2 og var Eiður Smári lykilmaður í leiknum, en hann skoraði fyrra mark Tottenham og átti þátt í síðara markinu. Tottenham heldur því 4. sætinu eins og er en baráttan um það er orðin ansi hörð.

Tottenham 3 – Blackburn 1

0

Tottenham tók á móti Blackburn á White Hart Lane í leik helgarinnar. Tottenham hélt áfram baráttunni um fjórða sæti deildarinnar og mátti engin stig missa á meðan Blackburn siglir nokkurn veginn um miðja deild en þarf þó nokkur stig í viðbót til að tryggja veru sína í deildinni á næsta ári. Tvö kunnug andlit voru í Blackburn liðinu en þeir Paul Robinson og Pascal Chimbonda, sem áður léku með Tottenham, eru nú liðsmenn Blackburn. Leikurinn var framan af ekki mikið fyrir augað en Tottenham menn uppskáru að lokum sigur, 3-1 með mörkum frá Defoe og Pavlyuchenko(2) en Samba skoraði mark Blackburn manna. Með sigrinum er liðið enn í 4.sæti deildarinnar.

Dregið í FA bikarnum

0

Dregið var um helgina í undanúrslit FA bikarsins. Ef Tottenham tekst að sigra Fulham á White Hart Lane þann 24. mars í endurspili í 8 liða úrslitunum þá mætir liðið Portsmouth í undanúrslitum á Wembley þann 11. apríl næstkomandi. Í hinni viðureigninni mætast Aston Villa og Chelsea.

Enn jafnt í FA bikarnum

0

Tottenham heimsótti Fulham á Craven Cottage í 8 liða úrslitum FA bikarsins um helgina. Fulham lagði Notts County í 16 liða úrslitum en Tottenham hafði sigurhöndina í einvígi gegn Bolton en spila þurfti 2 leiki sökum jafnteflis í fyrri leiknum. Liðin hafa mæst tvisvar sinnum á þessu tímabili í deildinni þar sem leiknum á Craven Cottage lauk með markalausu jafntefli en Tottenham hafði sigur úr býtum á White Hart Lane. Bæði lið reyndu að sækja til sigurs í þessum leik þar sem leikjaálag á liðunum er nóg um þessar mundir, en hvorugu liðinu tókst þó að skora og því lauk leiknum með markalausu jafntefli. Liðin leika því að nýju þann 24. mars um það hvort liðið fer í undanúrslitaleikinn á Wembley.

Nýjustu fréttirnar