Leiknum gegn Liverpool sem fram átti að fara á Anfield á sunnudaginn hefur verið frestað sökum slæms veðurs á Bretlandseyjum. Ný dagsetning hefur ekki verið gefin upp.
Dregið í 4.umferð FA bikarsins
Dregið hefur verið í 4.umferð FA bikarsins og mætir Tottenham liðið Leeds og fer leikurinn fram á White Hart Lane. Tottenham lagði Peterborough í 3.umferð bikarsins eins og flestum er kunnugt og leikmenn Leeds fóru með sigur af hólmi á Old Trafford gegn liði Manchester United. Nákvæm dagsetning hefur enn ekki verið tilkynnt en 4.umferð bikarsins fer fram helgina 23. og 24. janúar.
Sigur í FA bikarnum
Tottenham fékk lið Peterborough í heimsókn um helgina í 3. umferð FA bikarsins. Lið Peterborough spilar í Coca Cola Championship deildinni en það er næst efsta deildin á Englandi og verma þeir botnsætið þar um þessar mundir. Tottenham var því mun sigurstranglegra fyrir leikinn en óvænt úrslit geta alltaf litið dagsins ljós í bikarkeppnunum. En úrslitin komu engum á óvart enda sigraði Tottenham örugglega, 4-0 með mörkum frá Kranjcar(2), Defoe og Keane. Markvörður Peterborough átti stórleik í markinu og mega liðsfélagar hans þakka honum að sigur Tottenham varð ekki stærri. Tottenham er því komið áfram í 4.umferð bikarsins.
Sigur í grannaslagnum gegn West Ham
Það var að venju uppselt á White Hart Lane þegar nágrannar okkar í West Ham komu í heimsókn. Leikurinn fór fram aðeins tveimur sólarhringum eftir síðasta leik liðsins gegn Fulham. Harry Redknapp gerði 4 breytingar á liðinu sem mætti Fulham. Modric var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu frá því hann meiddist fyrir 4 mánuðum, á kostnað Kranjcar. King kom einnig inn í byrjunarliðið eftir nokkra fjarveru vegna meiðsla í stað Bassong. Huddlestone kom inn fyrir Jenas eftir að hafa byrjað á bekknum í fyrsta skipti á tímabilinu í síðasta leik, en Huddlestone hafði fram að því spilað alla deildarleikina. Að lokum tók markahæsti leikmaður deildarinnar Defoe stöðu Keane í sókninni. Á bekknum sátu þeir Alnwick, Bale, Hutton, Jenas, Kranjcar og Keane.
Zola stjóri West Ham hefur líklega öfundað Harry af þeim hóp sem hann hafði úr að velja þar sem Zola þurfti að stilla upp mönnum í byrjunarliðið sem voru enn mjög tæpir vegna meiðsla. Þetta orsakaði það að Zola þurfti að gera 2 skiptingar á fyrstu 20 mínútum leiksins.
Jafntefli gegn Fulham á annan dag jóla
Tottenham heimsótti Fulham á Craven Cottage á annan dag jóla í 19. umferð deildarinnar, en liðin hafa mæst á þeim degi sl. 2 ár. Leikmenn beggja liða voru fullir sjálfstrausts eftir góða frammistöðu í umferðinni á undan, Tottenham sótti góðan útisigur á Blackburn á meðan Fulham lögðu núverandi Englandsmeistara, Manchester United, á heimavelli. En það var jafnræði meðal liðanna í þessum jólaleik þó að leikmenn Fulham hefðu átt hættulegri færi. ‘Hvorugu liðinu tókst þó að skora og því lauk leiknum með 0-0 jafntefli og liðin deildu því stigunum.
Crouch með 2 mörk í fræknum útisigri
Eftir frábæra frammistöðu í síðasta leik gegn City á White Hart lane mætti Tottenham nú á Ewood Park þar sem Blackburn tóku á móti okkur. Þó Blackburn hafi ekki riðið feitum hesti það sem af er þessu tímabili, er þó Ewood park nánast óvinnandi vígi. Í undanförnum tveim leikjum á Ewood park höfðu Blackburn náð jafntefli. Fyrst gegn Chelsea og svo gegn Liverpool á dögunum. Það var því ljóst að Blackburn menn myndu ekki gefa Spurs neitt eftir í þessum leik.
Harry Redknapp hélt sig við sömu liðsuppstillingu og hann tefldi fram gegn Manchester City í síðasta leik. Eina breytingin sem átti sér stað var sú að Rose tók sæti Modric á varamannabekknum. Það verður þó seint sagt að allar aðstæður til knattspyrnuiðkunar hafi verið eins og best verður á kosið. Þegar leikurinn hófst var talsverð snjókoma og völlurinn því blautur og kaldur.
Óvænt tap á heimavelli gegn Wolves
Tottenham tók á móti Wolves í leik helgarinnar á White Hart Lane. Liðin eru á gjörólíkum stað í deildinni, Tottenham gerir atlögu að meistaradeildarsæti á meðan leikmenn Wolves berjast um að halda sér í deildinni enda í fallsæti sem stendur. Það voru því flestir sem bjuggust við sigri heimamanna fyrir leikinn því oft hefur White Hart Lane verið erfiður andstæðingum Tottenham. En sú varð þó ekki raunin því að gestirnir náðu óvænt að hirða öll stigin úr þessari viðureign og voru lokatölur 1-0, úlfunum í hag. Eina mark leiksins kom strax á 3. mínútu og var það Doyle sem skoraði mark leiksins með skalla eftir aukaspyrnu.
Everton 1 – Tottenham 1
Tottenham heimsótti Everton í leik helgarinnar sl. sunnudag en fyrir tímabilið var talið að þessi lið, ásamt Aston Villa og Manchester City myndu veita topp 4 liðunum harða baráttu um meistaradeildarsætin. Gengi Everton manna hefur þó verið undir væntingum og sátu þeir í 16. sætinu fyrir leikinn en leikmenn Tottenham hafa byrjað leiktíðina vel og sátu í 3.sæti fyrir umferðina. Lengi vel leit út fyrir sigur Tottenham manna eftir að liði komst í 2-0 en leikmenn Everton náðu að snúa við blaðinu og jafna leikinn á lokamínútunum. Leiknum lauk því með jafntefli 2-2 en mörk Tottenham skoruðu þeir Defoe og Dawson.
Dregið í FA bikarnum
Dregið var á sunnudaginn sl. í 3. umferð FA bikarsins en leikirnir fara fram þann 2. og 3. janúar næstkomandi. Tottenham var fyrsta liðið upp úr hattinum að þessu sinni og fær því heimaleik gegn Peterborough United, en þeir heyja sem stendur harða baráttu á botni Championship deildarinnar (næst efsta deild). Leikur Tottenham fer fram laugardaginn 2. janúar og hefst kl.15.
Liðið fallið úr leik í Carling Cup
Tottenham heimsótti lið Manchester United á Old Trafford í 8 liða úrslitum Carling Cup, en þessi lið mættust í úrslitaleik bikarsins á síðasta tímabili þar sem Manchester menn höfðu sigur úr býtum í vítaspyrnukeppni. Bæði Redknapp og Ferguson gerðu töluverðar breytingar á liðunum og fengu bæði óreyndir og reyndir leikmenn að spreyta sig. Leikurinn var þó ekki hin besta skemmtun og frekar tíðindalítill en United menn höfðu sigur úr bítum, 2 mörk gegn engu og var það Gibson sem skoraði bæði mörkin. Tottenham er því fallið úr leik í Carling Cup.





