Page 42

Preston í Carling Cup

0

Dregið var í dag í 3. umferð Carling bikarsins og var Tottenham að sjálfsögðu í pottinum eftir stórsigur á Doncaster í vikunni. Tottenham heimsækir Preston í 3.umferð bikarsins, en leikurinn fer fram annaðhvort 22. eða 23. september.

Boateng til Pompey

0

Tottenham og Portsmouth hafa komist að samkomulagi um kaup þess síðarnefnda á hinum 22 ára miðjumanni, Kevin-Prince Boateng. Boateng gekk til liðs við Tottenham sumarið 2007 en náði ekki að stimpla sig inn í liðið og var m.a. lánaður til Þýskalands í janúar 2009. Hann gengur nú til liðs við Portsmouth, en þeir greiða um 4 milljónir punda fyrir leikmanninn.

 

Við þökkum Boateng fyrir framlag hans til liðsins og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.

O´Hara með nýjan samning og lánssamning

0

Jamie O´Hara skrifaði í dag undir nýjan og endurbættan samning við Tottenham sem heldur honum hjá félaginu til ársins 2013. En dagurinn í dag var annasamur hjá O´Hara því auk þess að skrifa undir nýja samninginn hefur hann einnig samþykkt að ganga til liðs við Portsmouth á lánssamningi fram í janúar, með þann möguleika til staðar að framlengja lánssamninginn út tímabilið.

Chimbonda seldur

0

Tottenham og Blackburn hafa komist að samkomulagi um kaup þess síðarnefnda á hægri bakverðinum, Pascal Chimbonda. Chimbonda gekk til liðs við Tottenham sumarið 2006 og var hjá liðinu í 2 ár. Þá var hann seldur til Sunderland en keyptur tilbaka til liðsins hálfu ári síðar, eða í janúar 2009. En nú hafa liðin náð samkomulagi um sölu hans og þó að kaupverðið hafi ekki verið gefið upp þá er talið að Blackburn greiði Tottenham um tvær milljónir punda fyrir þennan þrítuga varnarmann.

 

Við þökkum Chimbonda fyrir framlag hans til liðsins og óskum honum velfarnaðar í framtíðinni.

Stórsigur í Carling Cup

0

Tottenham heimsótti Doncaster Rover á Keepmoat Stadium í 2. umferð Carling bikarsins. Harry var búinn að gefa í skyn að þeir leikmenn sem lítið hafa spilað fengju tækifæri í leiknum og stóð hann við orð sín. Hann gerði 7 breytingar á liðinu sem sigraði West Ham um helgina en það kom ekki að sök. Leikmenn Tottenham buðu upp á sannkallaða markaveislu og unnu sannfærandi sigur 1-5. Mörkin skoruðu þeir Huddlestone, O´Hara, Bentley, Crouch og Pavlyuchenko og er liðið því komið í næstu umferð bikarkeppninnar.

Besta byrjun Tottenham í 49 ár

0

Tottenham sat sem fastast í toppsætinu þegar þeir mættu West Ham á Upton Park í Lundúnum. West Ham hafði byrjað leiktíðina á sigri og litu ansi vel út í 2-0 sigri. Þeir voru því staðráðnir í að gefa grönnum sínum frá norður London ekkert eftir á heimavelli sínum. Liðsmenn West Ham höfðu fengið skelfilegar fréttir nokkrum dögum áður þegar fréttir þess efnis að Calum Davenport varnarjaxl West Ham og fyrrum leikmaður Spurs lægi þungt haldinn á gjörgæslu eftir hrottafengna hnífstunguárás.  Heilladísirnar svífa heldur betur ekki yfir Upton park þessa dagana því skömmu eftir leik fengu West Ham þær fréttir að Dean Asthon leikmaður þeirra sem var meiddur eftir fótbrot sem hann hlaut fyrr í sumar með landsliðinu, myndi líklega aldrei aftur spila knattspyrnu. Heppnin var heldur ekki beinlínis með leikmönnum West Ham í leiknum, þá sérstaklega ekki Carlton Cole.

     Harry Redknapp mætti sigurreifur með lið sitt á Upton Park. Hann gerði tvær breytingar á liðinu sem vann Hull 1-5 fyrr í vikunni. Gomes í markinu meiddist í leiknum gegn Hull og varði því Carlo Cudicini markið og Alan Hutton vék fyrir konungnum í vörninni Ledley King.

Mark tímabilsins 2008-2009

0

Hægt var að kjósa besta mark síðasta tímabils hér á síðunni undanfarið og eru úrslitin nú ljós. Mark David Bentley gegn Arsenal hlaut yfirburða sigur eða 67% allra atkvæða. Er það vel að sigrinum komið enda glæsilegt mark. Leikurinn fór fram 29. október á Emirates Stadium og skoraði Bentley fyrsta mark leiksins sem endaði 4-4. Barst boltinn til hans á miðjum vellinum og hann kaus að þruma boltanum að marki og hafnaði boltinn í netinu. Glæsilegt mark og hans fyrsta mark í deildinni fyrir Tottenham.

 

Komin er ný könnun þar sem við spyrjum Í hvaða sæti telur þú að Tottenham muni enda í lok leiktíðar?

Tottenham á toppinn eftir 5-1 sigur

0

Í gær tók Hull á móti Tottenham á heimavelli sínum KC Stadium. Bæði lið höfðu spilað vel gegn sitthvoru stórliðinu. Tottenham vann Liverpool á WHL á meðan Hull var óheppið að tapa á útivelli gegn Chelsea, þegar þeir fengu á sig sigurmarkið á 92. mínútu. Það bjuggust því flestir við jöfnum og erfiðum leik, en annað átti eftir að koma á daginn. Aðeins ein breyting var á liði Tottenham sem vann Liverpool á sunnudeginum. Ledley King gat ekki spilað leikinn og Alan Hutton kom nýr inn í liðið og fór í hægri bakvörðinn á meðan Corluka var færður í stöðu miðvarðar. Það var því ljóst að Harry ætlaði sér að nýta hraða leikmanna á borð við Lennon, Ekotto, Modric, Defoe og Keane til að sprengja upp vörn Hull.

Ekotto skrifar undir nýjan samning

0

Benoit Assou-Ekkotto hefur nú skrifað undir nýjan samning við Tottenham sem gildir til ársins 2013. Kamerúnski landsliðsmaðurinn sem hefur farið hamförum hjá Tottenham undanfarin misseri var m.a valinn sá leikmaður sem sýndi mestar framfarir á síðasta tímabili af stuðningsmönnum félagsins. Samningur Ekotto átti að renna út í vor.  Við fögnum að sjálfsögðu því að nýr samningur hafi verið undirritaður við Ekotto.

Tímabilið byrjað á sigri

0

Tottenham lék sinn fyrsta leik á nýju tímabili þegar liðið tók á móti Liverpool á White Hart Lane á sunnudaginn. Tottenham hefur byrjað illa á síðustu tímabilum og ekki náð að sigra í fyrsta leik tímabilsins í fjögur ár. Liverpool menn áttu hins vegar gott tímabil í fyrra og miklar væntingar gerðar til liðsins í ár. Leikurinn var ansi spennandi og nóg um marktækifæri en leiknum lauk með sanngjörnum sigri Tottenham 2-1 en mörk Tottenham skoruðu þeir Benoit-Assou Ekotto og Sebastien Bassong, en þetta var fyrsti leikur þess síðarnefnda fyrir félagið. Báðir voru þeir að skora sín fyrstu mörk fyrir Tottenham. Mark Liverpool skoraði Steven Gerrard úr vítaspyrnu.

Nýjustu fréttirnar