Það ráku margir upp stór augu þegar liðið var tilkynnt fyrir leikinn í dag. Gomes sem hafði spilað frábærlega í bikarkeppninni á miðvikudaginn var látinn verma bekkinn og Crouch sem skoraði þrennu í sama leik var einnig á tréverkinu. Það var því greinilegt að Redknapp tók mikla áhættu, þar sem þetta hefði verðið augljósa valið. Redknapp sagði eftir leikinn að þetta hafi verið mjög erfið ákvörðun. Robbie Keane sá hinsvegar til þess að Redknapp þyrfti ekki að réttlæta veru hans í stað Crouch í liðinu. Cudicini gerði það á vissan hátt líka með því að halda markinu hreinu í fyrsta skipti á leiktíðinni. Það að þetta hafi verið fyrsti leikur tímabilsins sem Spurs fær ekki á sig mark var ekki það eina merkilega í leiknum. Þetta var fyrsti úrvalsdeildar sigur liðsins í september mánuði frá því liðið vann Fullham 1-0 þann 26 sept. árið 2005. Robbie Keane skoraði fyrstu fernuna sína á ferlinum. Bale var í fyrsta skipti þáttakandi í sigurliði í úrvalsdeildarleik. Þannig að það verður minnst á þennan leik í sögubókum.
Redknapp þurfti að gera eina breytingu á liðinu sem mætti Chelsea um síðustu helgi. King var meiddur og gat því ekki spilað, í hans stað kom Kranjcar. Huddlestone var því færður í miðvörðinn meðan Kranjcar fór yfir á vinstri kantinn.
Keane í banastuði gegn Burnley
Dregið í Carling Cup
Nú í hádeginu var dregið í 4.umferð Carling Cup. Tottenham fékk heimaleik og fær Everton í heimsókn. Leikdagur hefur ekki verið ákveðinn en leikurinn fer fram annaðhvort 27. eða 28. október.
Stórsigur í Carling Cup
Tottenham heimsótti Preston North End á heimavöll þeirra, Deepdale í 3. umferð Carling bikarsins. Preston hefur staðið sig vel á heimavelli það sem af er leiktíðar og voru ósigraðir þar á þessu tímabili. Tottenham átti í töluverðum meiðslavandræðum sem olli Harry nokkrum vandræðum þegar kom að vali á liðinu. Gleðifréttir dagsins voru þær að Dawson hefur jafnað sig á ökklameiðslum sem hann varð fyrir á undirbúningstímabilinu og var mættur í byrjunarliðið og sömuleiðis léku Gomes og Bale eftir fjarveru vegna meiðsla. Leikurinn var fjörugur frá fyrstu mínútu en Tottenham vann að lokum stórsigur, 5-1 líkt og í síðasta bikarleik gegn Doncaster. Peter Crouch skoraði þrennu í leiknum en hin tvö mörkin gerðu þeir Defoe og Keane. Tottenham er því komið í 4.umferð en dregið verður í næstu umferð í hádeginu á laugardag.
Chelsea 3 – Tottenham 0
Það var alltaf ljóst að Tottenham átti erfiðan leik fyrir höndum þegar þeir mættu Chelsea á Brúnni á sunnudaginn. Tottenham hafði ekki unnið Chelsea á útivelli frá því í febrúar árið 1990. Chelsea hafði fyrir leikinn aukin heldur unnið 10 úrvalsdeildarleiki í röð. Til að bæta gráu ofan á svart stendur Tottenham nú í mikilli meiðslakrísu, og ekki batnaði ástandið í þeim málum með þessum leik. Harry Redknapp gerði þó nokkra breytingu á liðinu þrátt fyrir að aðeins ein breyting hafi orðið á leikmannavalinu frá leiknum gegn Manchester United um síðustu helgi. Jenas kom inn í stað Crouch og spilaði Harry því nokkurskonar 4-3-3 eða 4-3-2-1 leikkerfi þar sem Lennon og Keane voru hátt uppi á köntunum og Defoe fremstur. Það var því greinilegt að Harry ætlaði að standa við stóru orðin um að sækja á Chelsea.
Fyrsta tap tímabilsins
Sigurgöngu Tottenham í upphafi tímabilsins lauk í dag þegar Manchester United heimsótti liðið á White Hart Lane. Fyrir leikinn hafði Tottenham liðið unnið alla 4 deildarleiki sína og var þetta besta byrjun liðsins í 49 ár. Manchester menn höfðu ekki byrjað eins vel, tapað einum leik en hafa verið jafnt og þétt að ná fyrra formi. Það var því hörkuleikur á White Hart Lane þegar liðin mættust en Manchestermenn höfðu sigur úr bítum 3-1 og hirtu öll þrjú stigin. Defoe kom Tottenham yfir í leiknum strax á fyrstu mínútu leiksins með glæsilegu marki en Giggs, Anderson og Rooney sáu til þess að Manchester menn færu ekki tómhentir heim.
Yfirlit yfir framistöðu leikmanna með landsliðum
Nú þegar landsleikjahléið er yfirstaðið og leikmenn komnir aftur til liða sinna. Er rétt að rifja aðeins upp framistöðu þeirra með landsliðunum, bæði á miðvikudaginn síðasta og um síðustu helgi.
Redknapp og Defoe verðlaunaðir
Harry Redknapp og Jermain Defoe voru í dag verðlaunaðir fyrir góða frammistöðu í ágústmánuði. Harry var valinn þjálfari mánaðarins í deildinni en hann hefur stýrt liðinu til sigurs í 4 fyrstu leikjum tímabilsins en betri byrjun hefur liðið ekki átt í 49 ár, eða síðan tímabilið 1960-61, þegar liðið vann 11 fyrstu leikina og vann deildina í lok tímabils. Defoe var valinn leikmaður ágústmánaðar en hann hefur verið sjóðheitur í upphafi tímabils og skorað 4 mörk í deildinni, en einnig hefur hann verið á skotskónum fyrir landslið Englendinga.
Við óskum þeim báðum að sjálfsögðu til hamingju með þennan árangur.
Markmaður fenginn til liðsins
Tveimur dögum eftir að félagaskiptaglugganum lokaði nú í sumar fékk Tottenham til liðs við sig Jimmy Walker, 36 ára gamlan markvörð frá West Ham. Samningur hans rann út í vor og þar sem hann var án félags þegar félagaskiptaglugganum lokaði þá var honum frjálst að semja við nýtt félag utan félagaskiptagluggans. Walker var fenginn til liðsins sem varamaður vegna meiðsla hjá Gomes, en þar með var hægt að senda yngri markverði liðsins á lán til neðrideildar liða þar sem þeir fá dýrmæta reynslu.
Við bjóðum Walker velkominn til liðsins.
Tottenham kaupir miðjumann
Tottenham festi í dag kaup á króatíska landliðsmanninum Niko Kranjcar. Kranjcar hittir fyrir tvo samherja sína í króatíska landsliðinu hjá Spurs, þá Luka Modric og Vedran Corluka. Kranjcar sem er 25 ára miðjumaður kom til liðsins frá Portsmouth fyrir að því er talið er 2,5 milljónir punda. Kranjcar spilaði sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni 1. Oktober árið 2006 gegn Tottenham á WHL. Það er ljóst að Kranjcar er síðasti leikmaðurinn sem Tottenham kaupir á þessu ári þar sem félagaskiptaglugginn lokaði fyrr í dag.
Við bjóðum Kranjcar velkominn til liðs við Tottenham og óskum honum góðs gengis.
Naumur Sigur gegn Birmingham
Margir reiknuðu með auðveldum sigri toppliðs Tottenham gegn Birmingham á laugardaginn. Annað átti hinsvegar eftir að koma á daginn. Bæði lið komu inn í leikinn með bikarsigur frá miðvikudeginum í farteskinu. Tottenham hafði fyrir leikinn upplifað bestu byrjun liðsins í 49 ár, og sigrað alla sína leiki í deildinni og sat á toppi deildarinnar fyrir leiki dagsins. Birmingham var hinsvegar um miðja deild með 4 stig eftir 3 leiki en aðeins fengið á sig eitt mark. Það mark kom í leik Birmingham gegn Man. Utd. á Old Trafford. Það var því ljóst að Birmingham var sýnd veiði en ekki gefin. Harry Redknapp hélt sig við sama byrjunarlið og mætti West Ham í síðasta deildarleik liðsins. Það var greinilegt á uppstillingu Birmingham hvað Alex McLeish stjóri Birmingham ætlaði sínum mönnum í leiknum. Liðinu var stillt upp í leikkerfið 4-5-1 og greinilegt að Birmingham ætluðu að liggja til baka og treysta á skyndisóknir.





