Það biðu margir stuðningsmenn Tottenham spenntir eftir leik helgarinnar. Spurningin sem brann á allra vörum var hvernig leikmenn Spurs kæmu stemmdir eftir stórsigur gegn Wigan. Öllum var þó ljóst að Aston Villa myndi sýna meiri mótspyrnu en Wigan gerði í síðasta leik og fáir gerðu sér vonir um markatölur í líkingu við það sem sást á White Hart Lane helgina áður. Harry Redknapp hélt sig við sama byrjunarlið og í síðasta leik fyrir utan að hann þurfti að setja inn Bassong fyrir Woodgate sem var meiddur í nára. Liðið var því skipað þeim Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Ekotto, Lennon, Palacios, Huddlestone, Kranjcar, Crouch og fimm marka maðurinn frá því í síðasta leik Defoe. Fyrirliðinn Robbie Keane þurfti að gera sér tréverkið að góðu annan leikinn í röð.
Markaregn í stórskemmtilegum leik
Deildarkeppnin fór aftur af stað um helgina eftir tveggja vikna hlé sökum landsleikja. Tottenham fékk Wigan í heimsókn á sunnudaginn og var það mikilvægt fyrir liðið að ná öllum þremur stigunum þar sem úrslit annarra leikja deginum áður voru liðinu í hag, þe. helstu keppinautarnir töpuðu stigum. En gengi Wigan manna hefur verið upp og ofan í vetur, þeir hafa þurft að þola þunga skelli en einnig náð góðum úrslitum gegn sterkum liðum og má þar t.d. nefna sigur á Chelsea og Aston Villa. Því stefndi allt í spennandi leik sem gat farið hvernig sem er. Leikurinn reyndist svo hin mesta skemmtun þar sem Tottenham fór á kostum og lauk leiknum með 9-1 sigri liðsins. Er þetta stærsti sigur Tottenham í 32 ár og annar stærsti sigur liðs frá því að Úrvalsdeildin var stofnuð. Mörk Tottenham skoruðu þeir Crouch, Defoe(5), Lennon, Bentley og Kranjcar. Með sigrinum komst liðið aftur upp í 4. sæti deildarinnar og er nú jafnt erkifjendunum í Norður-London að stigum en með lakari markamun.
Tottenham 2 – Sunderland 0
Það var búist við hörku leik á White Hart Lane þegar Sunderland komu í heimsókn. Í liði Sunderland eru þó nokkrir fyrrum leikmenn Tottenham sem vitað var að vildu sýna sínar bestu hliðar í þessum leik. Sunderland hefur verið að standa sig vel það sem af er leiktíðar og voru í 8. sæti fyrir leikinn. Á hinn boginn mættu Sunderland með vængbrotið lið í leikinn þar sem nokkrir af mikilvægustu mönnum þeirra voru fjarverandi. Munar þar mestu um Kenwyne Jones, Lee Cattermole og fyrirliðan Lorik Cana. Augu allra voru hinsvegar á hinum eldheita Darren Bent sem var að mæta Tottenham í fyrsta skipti eftir að hafa gengið í raðir Sunderland síðasta sumar. Bent hafði fyrir leikinn skorað 8 mörk fyrir Sunderland og var markahæstur í liðinu. Tottenham hafði hinsvegar verið að hiksta örlítið í deildinni eftir að hafa átt sína bestu byrjun í mörg ár. Spurs hafði einungis tekist að sigra einn af síðustu 4 leikjum sínum í deildinni þegar kom að leiknum á laugardaginn. Skörð voru einnig hoggin í lið Tottenham. Aaron Lennon, Modric, Bassong og Giovani voru frá vegna meiðsla. Harry gerði 2 breytingar á liðinu sem mætti Arsenal um síðustu helgi. Bentley var látin víkja fyrir Defoe og í stað Bassong sem var meiddur kom Woodgate.
Tap í nágrannaslag
Tottenham mætti erkifjendum sínum og nágrönnum í Arsenal um helgina þegar þeir heimsóttu þá á Emirates Stadium. Leikurinn á þessum sama velli í fyrra var æsispennandi og lauk með 4-4 jafntefli en sömu sögu var ekki að segja af leiknum að þessu sinni. Klaufaleg mistök leikmanna Tottenham urðu þeim dýrkeypt þar sem leikmenn Arsenal tóku öll völd undir lok fyrri hálfleiks og þá var ekki aftur snúið og lauk leiknum því með sigri heimamanna, 3-0 en mörkin skoruðu van Persie (2) og Fabregas.
Dregið í Carling Cup
Dregið hefur verið í 8 liða úrslit Carling bikarsins og mætir Tottenham liði Manchester United á Old Trafford í næstu umferð. Leikurinn fer fram þriðjudaginn 1. desember og hefst kl.20.
Drátturinn í heild sinni
Manchester United – Tottenham
Blackburn – Chelsea
Portsmouth – Aston Villa
Manchester City – Arsenal
Spurs slær út Everton í Carling bikarnum
Það ríkti mikil eftirvænting eftir leik Tottenham og Everton í Carling bikarnum á þriðjudaginn. Ljóst var að bæði lið vildu komast áfram í keppninni. Moyes stjóri Everton var ekki parhrifinn af leikjaálaginu sem liðið barðist við. Þetta var þriðji leikur liðsins á 6 dögum og í ofan á lag glímdi Everton við meiðslavandræði. Þó leikjaálagið hafi verið minna hjá Tottenham að undanförnu glímdi Harry þó við vandamál í mannavali. Harry gerði 5 breytingar á liðinu. Woodgate var frá vegna heilahristings sem hann hlaut í leiknum gegn Stoke á Laugardaginn og tók því Dawson stöðu hans, Kranjcar hafði spilað í bikarnum með Portsmouth og var því ekki löggiltur í þennan leik, Bale tók stöðu hans á vinstri kannti, Lennon meiddist í leiknum gegn Stoke og var enn frá vegna þeirra meiðsla og Bentley fór því í stöðu hans á hægri kannti. Auk þeirra skipti Harry Corluka út fyrir Hutton og Crouch vék fyrir Pavlyuchenko.
Tap gegn Stoke
Tottenham tók á móti Stoke á White Hart Lane í leik helgarinnar og voru það gleðitíðindi fyrir stuðningsmenn Tottenham að Woodgate spilaði loksins sinn fyrsta leik á tímabilinu eftir erfið meiðsli. En leikurinn reyndist ekki færa Tottenham gæfu því Woodgate þurfti að fara af velli snemma leiks vegna meiðsla og sömuleiðis Lennon þegar stutt var til leiksloka. Leikmenn Tottenham sköpuðu sér töluvert af góðum færum en þetta var einn af þessum dögum þar sem boltinn vildi ekki inn og náðu leikmenn Stoke svo að stela sigrinum á lokamínútunum og hirða þar með öll stigin. Leiknum lauk því 0-1 og var það Whelan sem skoraði markið. Önnur úrslit helgarinnar voru þó liðinu hagstæð og féll liðið aðeins um eitt sæti á stigatöflunni og situr því í fjórða sæti deildarinnar.
Sigur í erfiðum útileik
Tottenham heimsótti Portsmouth á Fratton Park í leik helgarinnar en þetta var í fyrsta skipti sem Harry mætti með Tottenham á Fratton Park eftir að hann hætti hjá Portsmouth fyrir ári síðan og tók við Tottenham. Sömuleiðis voru þeir Defoe, Crouch og Kranjcar að mæta á kunnugar slóðir. Leikurinn var ansi spennandi þar sem bæði lið fengum töluvert af færum en að lokum fór Tottenham með sigur af hólmi, 1-2 með mörkum frá Ledley King og Jermain Defoe. Auk þess sem að sá síðarnefndi skoraði mark fékk hann einnig rauða spjaldið í leiknum og verður því í banni í næstu þremur leikjum. Með sigrinum hélt liðið þriðja sætinu í deildinni.
Tottenham – Portsmouth
Nú er landsleikjahléð loks á enda og enska deildin fer á fullt á ný. Tottenham heimsækir Portsmouth á laugardaginn en þetta verður fyrsti leikur Harry á Fratton Park frá því að hann hætti hjá Portsmouth og tók við Tottenham. Viljum við hvetja fólk til að mæta á Ölver á laugardaginn, horfa á leikinn í góðum félagsskap og styðja strákana okkar í sameiningu.
Allir sem mæta í merkjum félagsins fá óvæntan glaðning.
Bolton 2 – Tottenham 2
Sagan var ekki beint Tottenham mönnum í hag þegar þeir mættu á Reebok völlinn. Tottenham hafði aldrei sigrað Bolton á þessum velli, frá því hann var tekinn í gagnið árið 1997. Það var því ljóst að Harry Redknapp og lærisveinar hans áttu erfiðan leik fyrir höndum. Stuðningsmenn Tottenham gengu þó með þá von í brjósti eftir 5-0 sigur í síðustu umferð að nú myndi álögunum verða aflétt. Harry Redknapp gerði aðeins eina breytingu á liðinu sem mætti Burnley í síðasta leik liðsins. Defoe var færður á bekkinn með minniháttar meiðsli, og í hans stað kom Peter Crouch í framlínuna. Athygli vakti að hvorki Dawson né Gomes hafi verið valdir í liðið.





