Page 43

Doncaster í Carling Cup

0

Dregið var í kvöld í 2. umferð Carling Cup bikarkeppninnar en Tottenham hefur þátttöku sína einni umferð fyrr en síðustu ár þar sem liðið er ekki í Evrópukeppni þetta árið. Liðin sem taka þátt í evrópukeppnunum koma inn í keppnina í 3.umferð. Tottenham dróst gegn liði Doncaster Rovers og fer leikurinn fram á heimavelli þeirra, Keepmoat Stadium. Dagsetning leiksins er ekki komin á hreint en leikurinn fer væntanlega fram 25. eða 26. ágúst.

Tottenham lýkur æfingatímabilinu með sigri

0

Í dag var spilaður síðasti æfingaleikur Tottenham fyrir nýtt tímabil. Tottenham tók á móti hinu fornfræga gríska liði Olympiakos. Peter Crouch og Sebastien Bassong nýju liðsmenn Spurs þreyttu frumraun sína í búning Tottenham, og byrjuðu leikinn. Harry stillti þó ekki upp sínu sterkasta liði í fyrrihálfleik, samt var liðið nokkuð sterkt. Harry átti þó eftir að gera miklar breytingar á liðinu í leiknum. Hann notaði allar 11 skiptingarnar sínar í leiknum. Liðið sem byrjaði leikinn var þannig skipað. Gomes, Naughton, Bassong, King, Ekotto, Bentley, O‘Hara, Huddlestone, Rose, Keane og Crouch.

Bassong keyptur frá Newcastle

0

Tottenham tilkynnti í kvöld að félagið hafi komist að samkomulagi við Newcastle um kaup á varnarmanninum Sebastien Bassong. Bassong er 23 ára miðvörður sem gekk til liðs við Newcastle fyrir ári síðan frá Metz og lék 34 leiki fyrir Newcastle á sínu fyrsta tímabil. Hann stóð sig mjög vel þar, var kosinn leikmaður tímabilsins hjá liðinu og vakti athygli annarra liða. Hann mun nú ganga til liðs við Tottenham en kaupverðið er ekki gefið upp. Það er þó talið vera í kringum 8 milljónir punda.

 

Við bjóðum Bassong velkominn til liðsins.

Bent farinn til Sunderland

0

Tottenham og Sunderland hafa náð samkomulagi um félagaskipti Darren Bent. Bent kom til liðsins árið 2007 og var 79 sinnum í byrjunarliði Tottenham frá þeim tíma. Kaupverðið gæti orðið allt að 16,5 milljón punda, standi Bent sig vel hjá Sunderland.

 

Við þökkum Bent fyrir framlag hans síðustu 2 ár og óskum honum velfarnaðar hjá Sunderland.

Kínaferðinni lauk með tapi

0

Eftir sigur á Barclays Asian Trophy mótinu í Pekíng hélt Tottenham liðið til Hong Kong þar sem það mætti liði Suður-Kína í æfingaleik. Harry hafði gefið það út eftir leikinn gegn Hull að hann myndi leyfa ungu strákunum að spreyta sig í leiknum gegn Suður-Kína og einnig þeim leikmönnum sem minna höfðu spilað og gefa þannig þeim sem mikið höfðu spilað smá hvíld og stóð hann við orð sín. Ferðalagið til Hong Kong varð þó ekki jafnánægjulegt og í Pekíng því liðið tapaði leiknum gegn Suður-Kína með tveimur mörkum gegn engu.

Tottenham vann Asíumótið

0

Tottenham vann sinn fyrsta titil á árinu á föstudaginn þegar liðið lagði Hull að velli 3-0 í Barclays Asian Trophy. Aðeins fjögur lið voru skráð til keppni og því dugði sigur á West Ham á miðvikudaginn til að koma okkur í úrslitaleikinn. Harry gerði nokkrar breytingar á liðinu sem mætti West Ham fyrir í vikunni. Gomes, Chimbonda, Jenas og Keane komu inn í liðið fyrir Cudicini, Hutton, O‘Hara og Pavlyuchenko. Leikurinn fór fram í Peking kl 12:30 að íslenskum tíma. Lið Hull hafði fyrir leikinn unnið Beijing Gouan í vítaspyrnukeppni 4-3 eftir að staðan hafði verið 1-1 að loknum venjulegum leiktíma.

Tottenham vann Asíumótið

0

Tottenham vann í dag keppni um Barclays Asíu bikarinn. Tottenham sem sigraði West Ham á miðvikudaginn vann í dag Hull City 3-0 með tveimur mörkum fyriliðans Robbie Keane og marki Aaron Lennon. Nánari lýsing á leik Tottenham gegn Hull kemur á síðuna von bráðar.

Tottenham leikur til úrslita

0

Tottenham tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn á Barclays Asian Trophy, æfingamóti í Kína, þegar þeir lögðu West Ham af velli, 1-0. Mótið er fjögurra liða mót en ásamt Tottenham og West Ham taka Hull og Beijing Gouan þátt í mótinu. Tottenham menn spiluðu einn sinn besta leik á undirbúningstímabilinu og áttu nokkur góð færi í leiknum en aðeins eitt mark skildi liðin að, mark frá Jermain Defoe. Liðið mætir svo Hull í úrslitaleiknum í hádeginu á föstudaginn að íslenskum tíma.

Crouch kominn „heim“

0

Tottenham tilkynnti í kvöld að liðið hafi komist að samkomulagi við Portsmouth um kaup á framherjanum Peter Crouch. Kaupverðið var ekki gefið upp en það er talið vera í kringum 9 milljónir punda. Segja má að Crouch sé því kominn heim aftur þar sem hann byrjaði sinn fótboltaferil hjá Tottenham, en hann skrifaði undir sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá Tottenham 17 ára gamall. Hann náði hins vegar ekki að vinna sér inn sæti í aðalliði félagsins og var seldur til QPR tveimur árum síðar. Þessi hávaxni framherji hefur svo spilað fyrir lið eins og Aston Villa, Norwich, Southampton, Liverpool og Portsmouth en er nú kominn til Tottenham.

 

Við bjóðum Crouch velkominn til félagsins

Tap gegn Celtic

0

Tottenham mætti skoska liðinu Celtic í síðari leik sínum á Wembley Cup mótinu á sunnudaginn. Eins og í fyrri leiknum á mótinu gegn Barcelona, leyfði Harry nokkrum ungum strákum að spila hluta af leiknum ásamt því að flestir leikmenn aðalliðsins fengu smá leiktíma til æfingar. Celtic stillti að sama skapi upp blönduðu liði aðalleikmanna og ungra leikmanna. Ekki er hægt að segja að leikurinn hafi verið æsispennandi en honum lauk með 2-0 sigri Celtic manna og var þetta fyrsti tapleikur Tottenham á undirbúningstímabili síðan í ágúst 2004. Celtic menn fóru því með sigur af hólmi á mótinu, en þeir unnu einnig hinn leikinn sinn gegn Al Ahly.

Nýjustu fréttirnar