Page 45

Varalið Tottenham ekki skráð til keppni

0

Forráðamenn Tottenham Hotspur hafa sent út þá tilkynningu að þeir hafi ákveðið að hafna boði um að taka þátt í varaliðsdeildinni (Barclays Premier Reserve League )á komandi tímabili. Þess í stað mun verða sett mikil áhersla á að koma leikmönnum á lánssamning til liða í alvöru deildarkeppni. Auk þess verður nú auðveldara að skipuleggja leiki varaliðsins með hliðsjón af leikjum aðalliðsins. Í stað þess að leikir varaliðsins fari fram á fyrirfram ákveðnum dögum, verður nú aðeins komið á vináttuleikjum auk þess sem liðið gæti tekið þátt í styttri keppnum sem varaliðið hefur hingað til oftast hafnað. Forráðamenn Tottenham hafa gert grein fyrir þessari afstöðu sinni til varliðsdeildarinnar.

Þetta hafði Harry Redknapp framkvæmdarstjóri Tottenham um málið að segja.

 

Rocha kveður

0

Tottenham hefur ákveðið að framlengja ekki samning nokkra leikmanna liðsins. Þar ber hæst að nefna Ricardo Rocha sem kveður klúbbinn eftir 3 tímabil og 18 leiki með liðinu.

 

Auk Rocha hafa þeir Simon Dawkins, Kyle Fraser-Allen, Cian Hughton, Danny Hutchins, David Hutton, Jacques Maghoma og Takura Mtandari úr varaliði liðsins einnig kvatt félagið.

 

Úr unglingaliðinu kveðja þeir Saulo Asajile, Mark Clare, James Dalton og Ajet Shehu.

 

Við óskum öllum þessum leikmönnum velfarnaðar og vonum að þeir eigi sér bjarta framtíð með öðrum liðum.

Tap í síðasta leiknum

0

Fyrir leikinn gegn Liverpool átti Tottenham enn möguleika á að ná 7 sætinu sem gaf þáttökurétt í UEFA keppninni. Til þess þurfti Tottenham að vinna Liverpool og treysta á að Everton myndi vinna Fulham (sem varð svo raunin). Það áttu þó fæstir von á því að Liverpool myndi sýna Spurs einhverja linkind enda voru þeir í baráttu við Chelsea um annað sætið og vildu að sjálfsögðu enda tímabilið á heimavelli með sigri. Auk þess var þetta kveðjuleikur Sami Hyypia, sem hefur átt mikinn þátt í árangri Liverpool síðustu árin, og ljóst að þeir vildu kveðja hann með sæmd. Stuðningsmenn Tottenham héldu þó tangarhaldi í vonina um sigur þar sem Tottenham hafði í tvígang sigrað Liverpool á tímabilinu. Rafa Benitez stillit upp sínu sterkasta liði og ljóst löngu fyrir leik að Liverpool ætluðu sér sigur í þessum leik. Harry Redknapp gerði 3 breytingar á liðinu sem mætti Manchester City í síðustu umferðinni. Woodgate, Huddlestone og Pavlyuchenko viku út fyrir Hutton, Bale og Zokora. Robbie Keane var í fremstu víglínu og hefði væntanlega viljað eiga stórleik fyrir framan Rafa Benitez stjóra Liverpool, en Rafa virtist hafa misst trúna á Keane í janúar þegar Keane var seldur frá Liverpool.

Aðalfundur Tottenham klúbbsins

0

Aðalfundur Tottenham klúbbsins verður haldinn fimmtudagskvöldið 28. maí næstkomandi á Ölveri í Glæsibæ og hefst kl. 20. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

 

1.Skýrsla stjórnar

2. Reikningar síðasta árs

3. Kosning stjórnar

4. Önnur mál

 

Hafi einhver áhuga á að bjóða sig fram í stjórn klúbbsins er viðkomandi bent á að hafa samband við stjórnina á spurs(at)spurs.is. Léttar veitingar verða í boði.

Sigur í síðasta heimaleiknum

0

Tottenham tók á móti Manchester City í síðasta leiknum á White Hart Lane á þessu tímabili. Bæði lið voru fyrir leikinn í baráttu um 7.sætið sem gefur sæti í Europa Cup á næsta tímabili, en það er hið nýja nafn á Uefa Cup. Tottenham tókst að knýja fram sigur á lokamínútum leiksins og gera þar með út um vonir City manna um evrópubolta á næsta tímabili en baráttan stendur núna milli Fulham og Tottenham. Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham, þar sem Jermain Defoe kom Tottenham yfir í fyrri hálfleik en Bojinov jafnaði fyrir City í seinni hálfleik. Robbie Keane innsiglaði svo sigurinn þegar stutt var til leiksloka úr vítaspyrnu. Leikmenn Tottenham höfðu tvöfalda ástæðu til að gleðjast því auk þess að sigra í leiknum bættu þeir 89 ára gamalt met yfir besta varnarárangur á heimavelli, en liðið fékk aðeins á sig 10 mörk White Hart Lane á tímabilinu.

Unglinga- og varaliðið

0

Unglingalið Tottenham hefur verið að vekja gríðarlega eftirtekt í vetur. Strákarnir hafa verið að slá út lið á heimsmælikvarða og jafnvel unglingalandslið í alþjóðlegum mótum. Tímabilið hefur verið hreint út sagt magnað hjá þeim. Enn og aftur vekja þeir eftirtekt með frábærum árangri. Nú hafa þeir unnið sinn riðil í deildarkeppninni. Deildarkeppni U-18 ára liða er skipt í fjóra riðla (A,B,C og D). Í hverjum riðli eru 10 lið. Tottenham sem keppti í B riðli vann riðilinn nokkuð sannfærandi. Þeir töpuðu aðeins tveim leikjum á tímabilinu af 28. Meistararnir úr riðlunum mætast svo í úrslitakeppni til að skera úr um sigurvegara. Þau lið sem komust áfram með að vinna sína riðla eru, Arsenal, Manchester City, Sunderland og að sjálfsögðu Tottenham. Tottenham mætir Sunderland á morgun (13. maí) í undanúrslitunum. Arsenal hefur nú þegar unnið sinn leik gegn City og bíða því úrslita úr leiknum á morgun til að sjá hverjir mótherjar sínir verða í úrslitum. Það væri ekki amalegt fyrir Tottenham að fá úrslitaleik gegn erkifjendunum í Arsenal.

Markalaust í bragðdaufum leik

0

Það mátti búast við virkilega erfiðum leik í dag fyrir leikmenn Tottenham sem sóttu Everton heim. Fyrr í vetur urðu vatnaskil þegar Everton vann Tottenham á WHL. Eftir það hafa Tottenham ekki tapað á heimavelli. Tottenham hefur haft ágætis tak á Everton í úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir það var Everton spáð sigri í leiknum í dag. Margir lykilmenn Tottenham voru meiddir fyrir leikinn í dag og má þá helst nefna Lennon, Ekotto, Bent, Zokora og Dawson. Þar fyrir utan var Bentley tæpur vegna meiðsla, en var þó hafður á varamannabekknum. Fyrir leikinn varð Tottenham fyrir enn öðru áfallinu þegar fréttir bárust af því að lögreglan á Fílabeinsströndinni rannsaki líkfund sem talinn er vera af bróður Wilson Palacios. Wilson Palacios fékk af þeim sökum frí frá leiknum í dag. Það var því búist við mjög erfiðum leik þar sem við vorum án lykilmanna á heimavelli Everton sem er í baráttunni um 5. sætið.
Greinilegt var að bæði lið fóru varkárnislega í leikinn. Bæði lið pössuðu sig á því að skilja ekki eftir opin svæði þegar þau sóttu og því var sóknarþungi liðana mjög máttlítill. Af þeim sökum var leikurinn mjög tíðindalítill.

 

Enn einn sigur á White Hart Lane

0

Tottenham tók á móti botnliðinu West Bromwich Albion á White Hart Lane á laugardaginn. Bæði lið voru hungruð í 3 stig enda í baráttu á tveimur ólíkum vígstöðum, Tottenham er í baráttu um evrópusæti á meðan WBA berst fyrir tilveru sinni í deildinni. Leiknum lauk þó með sigri heimamanna, 1-0 þar sem Jermaine Jenas skoraði eina mark leiksins. Var þetta sjötti leikurinn í röð sem leikmenn Tottenham halda hreinu á White Hart Lane og er Tottenham enn það lið sem fæst mörk hefur fengið á sig á heimavelli í vetur, 9 talsins. Einnig komst liðið einu skrefi nær því að bæta 90 ára gamalt met varðandi fæst mörk fengin á sig en aðeins einn leikur er eftir á White Hart Lane þetta tímabilið.

Nýskráningar á spjallborði

0

Undanfarið höfum við verið að berjast við svokallaða bots eða spiders á spjallborðinu sem pósta talsvert miklu af auglýsingapóstum (spam). Þetta var orðið svo mikið að við ákváðum að loka fyrir nýskráningar í því formi sem það var. Hins vegar viljum við endilega fá áfram nýja spjallverja og til þess að skrá sig á spjallið þarf að senda tölvupóst á hordur.agustsson(at)gmail.com með eftirfarandi upplýsingum: fullt nafn, ósk um notendanafn, ósk um lykilorð, netfang. Aðgangurinn verður svo stofnaður og spjallverji virkur eins og allir aðrir spjallverjar.

Metár á WHL

0

Tottenham Hotspur er nú þegar búið að setja félagsmet í úrvalsdeildinni eftir að hafa ekki fengið á sig mark í síðustu 5 leikjum í deildinni á WHL. Síðast náðum við að spila 5 leiki án þess að fá á okkur mark tímabilið 1986-87. Það þýðir að liðið hafi ekki spilað jafn marga leiki á heimavelli án þess að fá á sig mark í 22 ár. Takist liðinu að halda hreinu gegn WBA um helgina, þurfum við að fara aftur til ársins 1970 til að finna jafn góða leikjahrinu á WHL hvað þetta varðar. Félagsmetið varðandi lengstu hrinu liðsins án þess að fá á sig mark á heimavelli á hinsvegar  8 leikir sem var sett árið 1921. Við erum einnig á höttunum eftir öðru félagsmeti hjá Tottenham. Það verður að teljast stórkostlegt ef við sláum það eftir það sem undan er gengið.

Nýjustu fréttirnar