Page 52

Markalaust jafntefli á White Hart Lane

0

Tottenham og Manchester United gerðu markalaust jafntefli þegar síðarnefnda liðið kom í heimsókn á White Hart Lane í 17. umferð úrvalsdeildarinnar. Bæði lið fengu góð tækifæri til að skora í leiknum en markverðir beggja liða stóðu fyrir sínu á milli stanganna og deildu liðin því með sér stigunum. Tottenham er því komið með 19 stig í deildinni og er í 15. sæti deildarinnar.

Góður útisigur

0

Tottenham vann góðan útisigur í deildinni þegar liðið heimsótti nágrannaliðið West Ham á Upton Park. Leiknum lauk með 2-0 sigri Tottenham og voru það þeir Ledley King og Jamie O´Hara sem skoruðu mörkin. Með sigrinum komst Tottenham í 15.sæti deildarinnar upp fyrir West Ham í stigatöflunni. Liðin eru jöfn að stigum en markahlutfall Tottenham öllu betra.

Dregið í Carling Cup

0

Dregið var í undanúrslit í Carling Cup nú í hádeginu og var Tottenham fyrsta liðið upp úr pottinum og spilar því heimaleikinn fyrst, en leikið er bæði heima og að heiman. Mótherjarnir eru úrvalsdeildarbanarnir í Burnley, en þeir hafa m.a. slegið bæði Chelsea og Arsenal út úr keppninni. Í hinni viðureigninni mætast því Derby og Manchester United og fær Derby heimaleikinn fyrst. Leikjadagar eru ekki komnir á hreint en fyrri leikirnir fara fram 6.-7. janúar og þeir seinni 20.-21.janúar.

Tottenham áfram í undanúrslitin

0
Roman Pavlyuchenko

Tottenham tryggði sér sæti í undanúrslitum Carling Cup, í þriðja sinn á jafnmörgum árum, þegar liðið lagði Watford á Vicarage Road á miðvikudagskvöldið. Leiknum lauk með 2-1 sigri Tottenham þar sem Pavlyuchenko og Bent skoruðu mörk Tottenham eftir að liðið hafði lent undir eftir mark frá Priskin.

Dregið í FA cup

0

Dregið hefur verið í 3.umferð FA bikarsins. Tottenham fékk heimaleik og tekur á móti Wigan í einni af aðeins tveimur viðureignum þar sem bæði liðin spila í úrvalsdeildinni. Leikurinn fer fram föstudaginn 2. janúar og hefst kl.20:00.

Tap gegn Everton

0

Tottenham tapaði sínum fyrsta heimaleik undir stjórn Harry Redknapp þegar Everton kom í heimsókn á White Hart Lane. Aðeins eitt mark skildi liðin að og var það Pienaar sem skoraði markið fyrir gestina.

Sigur gegn Blackburn

0

Tottenham fór með sigur af hólmi þegar liðið mætti Blackburn á White Hart Lane í 14. umferð úrvalsdeildarinnar. Leiknum lauk með 1-0 sigri Tottenham þar sem Pavlyuchenko skoraði eina mark leiksins. Með sigrinum komst liðið upp úr fallsæti deildarinnar.

Harry stillti upp sterku liði enda hefur hann ávallt lagt áherslu á deildina eftir að hann tók við liðinu. Hann gerði þrjár breytingar á liðinu frá tapleiknum gegn Fulham og breytti einnig um leikskipulag og lagði upp með 4-4-2 í þessum leik. Gomes stóð á milli stanganna og vörnin fyrir framan hann var skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Ekotto. Á miðjunni léku þeir Lennon, Jenas, Huddlestone og Bentley og frammi þeir Pavlyuchenko og Bent. Á bekknum sátu þeir Cesar, Bale, Gunter, Dawson, Zokora, Campbell og O´Hara.

Leikmenn Tottenham voru staðráðnir í því að bæta fyrir tapið gegn Fulham og eftir aðeins 9 mínútna leik voru heimamenn komnir yfir. Lennon hljóp upp hægri kantinn með Olsson í eftirdragi, gaf svo á Pavlyuchenko þegar hann var kominn inn í teiginn og hann þakkaði fyrir sig með því að koma boltanum í netið. Staðan orðin 1-0 fyrir Tottenham. Fimm mínútum síðar munaði litlu að Pavlyuchenko næði að skora annað mark eftir aukaspyrnu. Bentley tók aukaspyrnuna og gaf inn í teiginn þar sem Pavlyuchenko hoppaði manna hæstur og skallaði boltann en hann hafnaði í stönginni. Lennon var stöðug ógn á hægri kantinum í leiknum og olli leikmönnum Blackburn miklum vandræðum. Og það var svo á 40.mínútu að Olsson fékk sitt annað gula spjald leiksins fyrir brot á Lennon og var því vikið af velli.  Og litlu munaði að Lennon næði að bæta við marki fyrir hálfleikshlé úr aukaspyrnunni sem liðið fékk eftir brottvikningu Olsson. En skot Lennon fór í Nelsen og þaðan í Robinson og framhjá markinu. Staðan í hálfleik var því 1-0 Tottenham í vil.

Í seinni hálfleik fengu leikmenn Tottenham nokkur færi til að gera út um leikinn. Á 54. mínútu átti Huddlestone langskot að marki sem fór rétt yfir og Woodgate náði ekki að skalla boltann framhjá Robinson í markinu eftir aukaspyrnu frá Bentley á 70.mínútu. Þegar korter var eftir af leiktímanum gerði Redknapp skiptingu, Pavlyuchenko fór af velli og Campbell kom inná í hans stað. Hann átti góða sendingu fyrir markið stuttu síðar en Bent rétt missti af boltanum. Hann átti einnig skalla að marki sem fór rétt framhjá þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum. Á 86.mínútu kom O´Hara inná í stað Bentley en mörkin urðu ekki fleiri í leiknum og voru það leikmenn Tottenham sem hirtu öll stigin í leiknum. Með sigrinum fór liðið upp úr fallsæti.

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Ekotto, Lennon, Jenas, Huddlestone, Bentley (O´Hara), Pavlyuchenko (Campbell), Bent. Ónotaðir varamenn: Cesar, Bale, Zokora, Gunter, Dawson.

Markvarðarþjálfarinn hættur

0

Tottenham tilkynnti í kvöld að Hans Leitert, sem þjálfað hefur markverði aðalliðsins, hefur látið af störfum. Leitert kom til liðsins í lok síðasta tímabils en dvöl hans hjá félaginu er nú á enda. Tilkynningar er að vænta á næstu dögum varðandi eftirmann hans.

Fyrsta tap Redknapp

0

Tottenham tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Harry Redknapp þegar liðið heimsótti Fulham á Craven Cottage. Leiknum lauk með 2-1 sigri Fulham og mark Tottenham skoraði Fraizer Campbell, en hann kom inná sem varamaður í leiknum.

Það var sem fyrr gerð breyting á liðinu. Gomes stóð þó í marki sem fyrr þrátt fyrir óöruggan leik upp á síðkastið. Vörnin var skipuð þeim Corluka, Woodgate, King og Bale. Á miðjunni spiluðu þeir Bentley, Jenas, Huddlestone, Zokora og Modric og einn frammi var því Darren Bent. Á bekknum sátu Cesar, Lennon, Pavlyuchenko, Campbell, Dawson, Hutton og Ekotto.

Leikmenn Fulham mættu mun ákveðnari til leiks og á 12. mínútu átti Murphy skot að marki eftir sendingu frá Johnson en Corluka komt í veg fyrir skotið. Stuttu síðar lék Dempsey á Bale og skaut að marki en Gomes náði að verja boltann aftur fyrir með fingurgómunum. Johnson vildi svo fá vítaspyrnu en dómarinn var ekki á sama máli og hann. Leikmenn Tottenham fór svo aðeins að lifna við og á 27.mínútu átti Modric skot að marki sem fór rétt framhjá. Sama var að segja um skot Bentley 2 mínútum síðar, það fór einnig framhjá markinu. Bent fékk svo ágætis sendingu frá Modric en Schwarzer var vel vakandi í markinu. En þrátt fyrir góðar tilraunir voru það Fulham menn sem tóku forystuna. Á 33. mínútu skaut Davies að markinu en boltinn kom við á kollinum á Woodgate. Gomes virtist ætla að ná boltanum en boltinn fór í bringuna á honum og inn í markið. Staðan því orðin 1-0 fyrir heimamenn. Markið kom eins og blaut tuska í andlit leikmanna Tottenham og sló þá algerlega út af laginu. Leikmenn Fulham náðu þó ekki að nýta sér það og staðan í hálfleik var því 1-0 Fulham í vil.

Redknapp gerði strax tvær breytingar í hálfleik, Modric fór af velli sökum meiðsla og í hans stað kom Lennon og Huddlestone fór einnig af velli og Pavlyuchenko inná í hans stað. En það voru leikmenn Fulham sem héldu áfram að sækja og Bullard reyndi skot að marki úr aukaspyrnu en Gomes sá við honum. Davies reyndi einnig langskot að marki en Gomes varði vel. Leikmenn Spurs fengu þó einhver færi og átti Lennon góðan sprett upp völlinn en Hangeland stoppaði hann áður en hann náði að gera of mikinn usla við mark Fulham manna. Kóngurinn var svo mættur í sóknina þegar sending frá Bale kom fyrir markið þar sem King tók við boltanum og skaut að marki en boltinn fór rétt yfir markið. En þegar 20 mínútur voru til leiksloka fengu Fulham menn hornspyrnu og Davies stökk manna hæstur og skallaði að marki. Skalli hans rataði þó ekki í netið en boltinn barst til Johnson sem átti ekki erfitt með að koma boltanum í netið. Staðan því orðin 2-0 fyrir heimamenn. Bullard reyndi svo enn eitt skotið úr aukaspyrnu stuttu síðar en Gomes varði vel. Redknapp gerði þá sína þriðju og síðustu skiptingu þegar Bent fór af velli og inná í hans stað kom Fraizer Campbell. Og eftir aðeins 10 mínútur var hann búinn að koma boltanum í netið. Jenas hljóp upp völlinn, gaf á Bentley sem sendi boltann á Campbell og hann skoraði örugglega. En leikmönnum Tottenham tókst þó ekki að jafna leikinn og munaði litlu að Fulham næði að bæta einu við á loka mínútunum úr enn einni aukaspyrnunni frá Bullard en Gomes varði meistaralega. Leiknum lauk því með 2-1 sigri Fulham og er þetta fyrsta tap liðsins eftir að Harry Redknapp tók við liðinu.

Lið Spurs: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Bale, Bentley, Jenas, Zokora, Huddlestone(Pavlyuchenko), Modric(Lennon), Bent(Campbell). Ónotaðir varamenn: Cesar, Dawson, Hutton, Ekotto.

Watford í Carling Cup

0

Í hádeginu var dregið í 8 liða úrslit í Carling Cup og Tottenham fékk útileik gegn Watford. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 3. desember og hefur verið valinn sem sjónvarpsleikur það kvöldið.

Aðrir leikir eru þessir: Stoke-Derby, Manchester United-Blackburn og Burnley-Arsenal.

Nýjustu fréttirnar