Page 20

Tvö töpuð stig gegn Stoke

0

Tottenham átti heimaleik við Stoke miðvikudaginn 21. mars og þrátt fyrir að vera miklu betra liðið á vellinum endaði leikurinn með jafntefli 1-1 …  sannarlega tvö töpuð stig þar í baráttunni um meistaradeildarsæti.   Mark Tottenham skoraði Van Der Vaart á 92. mínútu með skalla.

Bikarleikur við Bolton flautaður af…

0

Tottenham lék í gær við Bolton í 8-liða úrslitum FA CUP og var leikið á heimavelli Tottenham ,  White Hart Lane.  Leikurinn var flautaður af eftir 41. mínútu þegar Muamba leikmaður Bolton hneig niður.   Samkvæmt nýjustu fréttum er Muamba í lífshættu á spítala í London og ekki vitað hvernig þetta fer allt.   Óskum honum góðs bata.

Það má nefna það að staðan var 1-1 þegar leikurinn var flautaður af ,   Bale hafði komið Bolton yfir með sjálfsmarki  – Walker jafnaði svo leikinn fyrir Tottenham.

Þriðji tapleikurinn í röð

0

Tottenham lék um síðustu helgi við lið Everton á Goodison Park í Liverpool.  Lokatölur 1-0 fyrir Everton sem voru ekki sanngjörn úrslit.  Var þetta þriðja tap Tottenham í röð í deildinni og það góða forskot sem liðið hafði á Arsenal og Chelsea er að engu orðið  ( 1 stig í Arsenal og 4 stig í Chelsea ).

Baráttan um meistaradeildarsæti á næstu leiktíð á eftir að verða æsispennandi allt til loka tímabilsins.

Sigur í FA CUP

0

7. mars síðastliðinn lék Tottenham við Stevenage í 16 liða úrslitum FA CUP – endurtekinn leikur.  Tottenham komst áfram í bikarnum með 3-1 sigri þar sem lið Stevenage komst yfir í leiknum.  Defoe 2 og Adebayor skoruðu mörk Tottenham í leiknum.

Ósigur gegn Man. Utd

0

Á sunnudaginn var fékk Tottenham lið Manchester United í heimsókn á WHL.  Sannkallaður stórleikur sem fór þannig að Man. Utd. fór með öll stigin heim eftir 1-3 sigur.   Tottenham spilaði vel í þessum leik og áttu sannarlega ekki skilið að tapa ,  hvað þá 1-3.  Mark Tottenham skoraði Defoe.

Hópferð Tottenhamklúbbsins

0

Tottenhamklúbburinn á Íslandi verður með hópferð á leik Tottenham – Swansea sem fram fer á White Hart Lane , heimavelli Tottenham sunnudaginn 1. apríl nk.

.

UPPSELT Í FERÐINA

.

Tap gegn erkifjendunum

0

Tottenham heimsótti Emirates Stadium á sunnudaginn var og lék gegn liði Arsenal.  Fyrir leikinn var Tottenham 10 stigum fyrir ofan Arsenal sem hefur ekki þekkst síðustu árin.  Tottenham átti ekki góðan dag og töpuðu leiknum 5-2 þar sem Arsenal lék mjög vel.  Mörk Tottenham skoruðu Saha og Adebayor.

Steindautt jafntefli gegn Stevenage

0

Tottenham lék gegn Stevenage í FA bikarnum um síðustu helgi og var spilað á heimavelli Stevenage.   Leikurinn endaði 0-0 og þurfa því liðin að leika að nýju á heimavelli Tottenham , WHL.

Flugeldasýning á WHL

0

Lið Newcastle kom í heimsókn á White Hart Lane á laugardaginn var og fóru þaðan aftur tómhentir.  Tottenham lék við hvern sinn fingur og gjörsigruðu lið Newcastle 5-0.  Mörk Tottenham skoruðu Saha 2 , Adebayor , Ekotto og Krancjar.  Þess má til gamans geta að Adebayor lagði upp 4. mörk í leiknum og skoraði sjálfur eitt,  stórleikur hjá honum.

Hópferð Tottenhamklúbbsins

0

Tottenhamklúbburinn á Íslandi verður með hópferð á leik Tottenham – Swansea sem fram fer á White Hart Lane , heimavelli Tottenham sunnudaginn 1. apríl nk.

.

ÖRFÁ SÆTI LAUS

Nýjustu fréttirnar