Tottenham heimsótti Blackburn á Ewood Park í leik kvöldsins. Eftir rúmlega þriggja mínútna leik náðu leikmenn Tottenham forystu í leiknum með skallamarki frá Crouch, eftir sendingu frá Van der Vaart. Staðan því orðin 1-0 fyrir gestina og þrátt fyrir margar tilraunir urðu mörkin ekki fleiri í leiknum. Gomes átti góðan leik í markinu og sá til þess að stigin þrjú yrðu okkar í þessum leik.
Tap í FA-bikarnum
Tottenham heimsótti Fulham á Craven Cottage í 4.umferð FA-bikarsins. Augljóst var þó frá fyrstu mínútum að þetta átti ekki eftir að verða dagur Tottenham að þessu sinni. Eftir rúmar 5 mínútur voru Fulham menn komnir með forystu í leiknum eftir að Hutton felldi Dempsey innan vítateigs og dómarinn var ekki í vafa og dæmdi víti, sem Murphy skoraði úr af öryggi. Tveimur mínútum síðar versnaði útlitið til muna fyrir Tottenham þegar Dowd dæmdi aðra vítaspyrnu á Tottenham og gaf Dawson rauða spjaldið í þokkabót. Murphy skoraði aftur út vítinu og staðan því 2-0 fyrir heimamenn og þeir manni fleiri. Á 23. mínútu bættu Fulham menn svo við enn öðru markinu eftir hornspyrnu en það var Hangeland sem skoraði fyrir heimamenn. Dembele gerði svo út um leikinn á lokamínútum fyrri hálfleiks þegar hann bætti við fjórða markinu. Leikur Tottenham liðsins batnaði til muna í síðari hálfleik en þeir náðu þó ekki að koma boltanum í netið og því fór Fulham með sigur af hólmi en bikardraumurinn er úti hjá Tottenham á þessu tímabili.
Keane, Giovani og O´Hara lánaðir
Robbie Keane, Giovani dos Santos og Jamie O´Hara hafa allir verið sendir á láni út tímabilið þar sem þeim gefst kostur á að spila meira en þeir hafa fengið hjá Tottenham. Keane var lánaður til West Ham og talið er að samningurinn feli það í sér að nái þeir að halda sér í deildinni muni þeir kaupa hann í vor. Giovani var lánaður til Racing Santander og O´Hara var lánaður til Wolves.
Newcastle 1 – Tottenham 1
Tottenham heimsótti Newcastle á St. James Park og til gamans má geta að Pienaar byrjaði sinn fyrsta leik fyrir liðið eftir félagaskiptin frá Everton. Fyrri hálfleikur var markalaus þrátt fyrir nokkur færi af hálfu beggja liða. En þegar tæp klukkustund var liðin af leiknum tókst Coloccini, varnarmanni Newcastle, að koma heimamönnum yfir í leiknum. Allt leit út fyrir að Newcastle menn myndu hirða öll þrjú stigin en á lokamínútum leiksins tókst Lennon að koma boltanum í netið, framhjá Harper í markinu og tryggja liðinu stig úr þessari viðureign. Liðin skildu því jönf 1-1.
Pienaar keyptur frá Everton
Tottenham tilkynnti að félagið hefur fest kaup á Suður-Afríska leikmanninum Steven Pienaar frá Everton. Pienaar hóf feril sinn hjá Ajax Cape Town og fór þaðan til Ajax. Hann lék með þeim í 5 ár en gekk síðan til liðs við Borussia Dortmund. Þar var hann aðeins í eitt ár, til ársins 2007 en þá fór hann til Everton upphaflega á eins ár lánssamningi en var síðan keyptur til liðsins. Pienaar lék 132 leiki með Everton og skoraði 12 mörk. Hann gengur nú til liðs við Tottenham en kaupverðið er talið vera í kringum 3 milljónir punda.
Við bjóðum Steven Pienaar velkominn til félagsins.
Markalaust jafntefli gegn Manchester United
Tottenham tók á móti Manchester United á White Hart Lane en síðarnefnda liðið var taplaust fyrir leikinn og voru leikmenn Tottenham staðráðnir í að breyta því. Bæði lið fengu fín færi í leiknum til að hirða öll þrjú stigin. Síðasta korterið gerðu leikmenn Tottenhamm allt til að skora eftir að United menn urðu manni færri, en Rafael fékk reisupassann í leiknum eftir að hafa fengið 2 gul spjöld. En allt kom fyrir ekki og hvorugu liðinu tóks að skora og skildu þau því jöfn 0-0 og deildu bróðurlega með sér stigunum.
David Bentley lánaður til Birmingham
David Bentley hefur verið lánaður til Birmingham út tímabilið. Bentley hefur lítið spilað á núverandi leiktíð en hann missti af byrjun tímabilsins vegna meiðsla og hefur ekki náð að vinna sér sæti í liðinu þar sem mikil samkeppni hefur verið um stöður. Hann hefur því verið lánaður út núverandi tímabil.
David Beckham æfir með Tottenham
David Beckham hefur hafið æfingar með Tottenham og mun æfa með liðinu til 10. febrúar. Í augnablikinu er frí í Bandarísku MLS deildinni og undanfarin 2 ár hefur Beckham kosið að æfa og spila með AC Milan á meðan sú bandaríska er í fríi en hefur nú hafið æfingar með Tottenham. Mikið umtal var um að hann myndi mögulega spila með liðinu sem lánsmaður fram í mars en ekki hefur náðst samkomulag um það milli LA Galaxy og Tottenham og því mun hann einungis æfa með liðinu eins og staðan er í dag. Við bjóðum Beckham velkominn til æfinga og vonumst til þess að hann muni deila reynslu sinni með núverandi leikmönnum liðsins ásamt því að nýta tíma sinn vel hjá Tottenham til að bæta leikform sitt.
Dregið í FA Cup
Dregið hefur verið í 4.umferð FA bikarkeppninnar og Tottenham fær það verkefni að heimsækja Fulham. Leikurinn fer fram sunnudaginn 30. janúar nk.
Bikarsigur gegn Charlton
Tottenham tók á móti Charlton í fyrsta leik sínum í FA bikarkeppninni þetta leiktímabilið. Harry kaus að hvíla nokkra lykilmenn og gefa örðum leikmönnum sem lítið hafa spilað tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Andros Townsend var í fyrsta sinn í byrjunarliði Tottenham og hann lét svo sannarlega vita af sér þar sem hann skoraði fyrsta mark leiksins. Hvorugt liðið náði að skora í fyrri hálfleik en Townsend braut ísinn á 4. mínútu síðari hálfleiks með löngu skoti. Stuttu síðar bætti Defoe við öðru markinu þar sem hann lék á varnarmann Charlton og kom boltanum í netið framhjá markverði Charlton. Defoe bætti svo við öðru marki sínu og þriðja marki Tottenham áður en langt um leið, en markvörður Charlton varði fyrst skot hans en Defoe náði frákastinu og skoraði af öryggi. Lokatölur leiksins urðu því 3-0 Tottenham í vil og liðið komið áfram í bikarnum.





