Félagaskipti Bongani Khumalo, Suður-afríska miðvöarðarins sem liðið keypti af Supersport United, hafa nú gengið í gegn. Hann lék með Supersport United í 3 ár, spilaði 81 leik fyrir þá og skoraði í þeim 8 mörk. Hann vann sig inn í landslið Suður-Afríku árið 2008 og lék m.a. með þeim á Heimsmeistaramótinu 2010 við góðan orðstýr. Við bjóðum Khumalo velkominn til Tottenham og það verður gaman að sjá til þessa 24 ára varnarmanns á næstu árum.
Walker lánaður til Villa
Kyle Walker hefur verið lánaður til Aston Villa út leiktíðina. Fyrri hluta leiktíðarinnar var hann á láni hjá QPR og þótti standa sig mjög vel þar. Hann var kallaður tilbaka um áramótin og hefur nú verið lánaður til Aston Villa út leiktíðina til að gefa honum tækifæri á að spila og öðlast reynslu í Úrvalsdeildinni.
Einnig hefur Obika verið lánaður til Peterborough, Smith til Bournemouth, Kane til Leyton Orient og Naughton framlengt dvöl sína hjá Leicester út tímabilið.
Everton endar sigurgöngu Tottenham
Tottenham heimsótti Everton á Goodison Park í öðrum leik ársins og þeim fjórða á 11 dögum, en jólin og áramótin eru ávallt annasamur tími í enska boltanum. Leikmenn Tottenham fóru fullir sjálfstraust í leikinn enda á góðu róli og höfðu ekki tapað í síðustu 11 leikjum í öllum keppnum. En dagurinn var klárlega ekki þeirra að þessu sinni og spurning hvort þreyta hafi farið að segja til sín eftir annasama daga, en Everton menn fengu aukahvíld þar sem leik þeirra á Jóladag var frestað. Leikmenn Everton komu mun ákveðnari til leiks og áttu sigurinn skilið í þessari viðureign. Luis Saha kom Everton yfir með löngu skoti strax á 3.mínútu. Á 11. mínútu jafnaði Van der Vaart metin fyrir Tottenham með góðu skallamarki eftir skallafyrirgjöf frá Crouch, eins og þeim tveimur er einum lagið. Bale fór af velli eftir 58 mínútur vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum, en þau eru þó ekki talin alvarleg. Kranjcar leysti hann af hólmi. Þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir af leiknum náðu Everton menn forystunni á ný með marki frá Coleman úr hraðaupphlaupi, en hann náði frákastinu fyrstu eftir að Gomes varði þrumuskot Saha. Leikmenn Tottenham reyndu að jafna leikinn en það tókst ekki og því hirtu Everton menn öll þrjú stigin.
Árið 2011 byrjar á sigri
Tottenham tók á móti Fulham á Nýársdag á White Hart Lane í fyrsta leik liðsins á nýju ári. Jafnræði var með liðunum allan leikinn en Gareth Bale var sá eini sem tókst að koma boltanum yfir marklínuna í leiknum og skoraði þar með sigurmark Tottenham. Kom markið eftir aukaspyrnu sem Van der Vaart tók en Bale náði að skalla skot hans framhjá Schwarzer í markinu. Lokatölur því 1-0, Tottenham í vil og með sigrinum náðu þeir fjórða sætinu í deildinni á ný.
Gleðilegt nýtt ár
Tottenham klúbburinn óskar stuðningsmönnum Spurs sem og landsmönnum öllum gleðilegs árs með þökkum fyrir góðar stundir á liðnu ári. Megi nýtt ár færa ykkur gleði og góðar stundir.
Tottenham 2 – Newcastle 0
Tottenham tók á móti Newcastle á White Hart Lane í síðasta leik ársins 2010. Tottenham leikmennirnir voru staðráðnir í að enda árið á góðu róli og sáu vængmennirnir til þess að svo yrði. Lennon kom Tottenham yfir á 56. mínútu leiksins og Bale innsiglaði svo sigurinn á 81.mínútu. Í millitíðinni var Kaboul rekinn af velli eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu og skallað leikmann Newcastle. Það kom þó ekki að sök og leikmenn Tottenham fóru með sigur af hólmi og héldu loksins hreinu í deildarleik í fyrsta skipti síðan á upphafsdegi leiktíðarinnar.
Sigur á öðrum degi jóla
Tottenham mætti í heimsókn á Villa Park á öðrum degi jóla er þeir mættu Aston Villa. Kaboul skoraði fyrsta mark leiksins eftir stundarfjórðung en markið var dæmt ógilt sökum þess að boltinn hafði farið af leikvelli áður en boltinn barst til Kaboul. En á 23. mínútu skoraði Van der Vaart fyrsta mark leiksins eftir að Modric gaf glæsilega sendingu á Hutton á hægri kantinum sem gaf svo fyrir markið á Van der Vaart. Staðan 1-0. Þegar um hálftími var liðinn af leiknum fékk Defoe að líta rauða spjaldið eftir að hafa gefið leikmanni Aston Villa olnbogaskot. Van der Vaart bætti svo öðru marki við á 67. mínútu leiksins eftir gott samspil hjá Lennon og Bale. Albrighton náði að minnka muninn fyrir Villa þegar um 8 mínútur voru til leiksloka en það dugði ekki og því fór Tottenham með sigur af hólmi, 2-1.
AC Milan í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar
![]()
GEGN
AC Milan dróst gegn Tottenham í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikurinn fer fram á San Siro þann 15 febrúar kl: 19:45. Seinni leikurinn verður svo leikinn á White Hart Lane þann 9 mars kl: 19:45.
Jafnt í nágrannaslagnum
Þegar flautað var til leiks í grannaslagnum gegn Chelsea hafði Tottenham ekki tapað í síðustu 7 leikjum, og ekki tapað leik á heimavelli í PL síðan í ágúst. Chelsea hafði hinsvegar ekki náð sigri í síðustu 4 leikjunum í PL. Stuðningsmenn Tottenham voru því líklega nokkuð vongóðir um hagstæð úrslit þegar kom að þessum leik. Harry Redknapp gerði 4 breytingar frá síðasta leik gegn Twente. Corluka, Gallas, Jenas og Kranjcar viku fyrir Dawson sem spilaði sinn fyrsta leik í byrjunarliði frá því að hann meiddist í haust, Hutton, Lennon og Modric komu einnig inn í byrjunarliðið.
Það voru Chelsea sem byrjuðu leikinn betur í kuldanum á White Hart Lane í Lundúnum. Það kom því svolítið gegn gangi leiksins þegar Roman Pavlyuchenko skoraði eftir aðeins stundarfjórðung. Það sem eftir lifði fyrri hálfleik var leikurinn í járnum og hvorugt liðið náði yfirhöndinni á vellinum. Bæði lið áttu sínar sóknir en bæði lið nýttu færin illa. Angelotti gerði eina breytingu í hálfleik þegar Drogba kom inná. Drogba átti heldur betur eftir að koma við sögu í leiknum. Drogba skoraði mark á 70 mínútu og segja má að markið skrifist frekar á slaka tilburði Gomes í markinu frekar en snilli Drogba. Í uppbótartíma fékk svo Chelsea vítaspyrnu og Drogba sem var nú hetja Chelsea stillti upp boltanum á vítapunktinn á meðan Gomes sem var þá „skúrkurinn“ í Tottenhamliðinu beið á línunni. Gomes bætti upp fyrir mistök sín og varði vítaspyrnuna og var því orðin hetja aftur á meðan Drogba sat eftir með sárt ennið. Lokatölur leiksins 1-1 og áttundi leikurinn í röð án taps hjá Spurs en 5. leikurinn án sigurs fyrir Chelsea í úrvalsdeildinni.
Tottenham mætir Charlton í FA bikarnum
Tottenham tekur á móti Charlton í 3.umferð FA bikarsins. Þetta varð ljóst eftir að Charlton lagði Luton í 2.umferð keppninnar. Leikurinn fer fram sunnudaginn 9. janúar og hefst kl. 13:30.





