Þrír leikmenn úr yngri liðum Tottenham hafa verið lánaðir til viðbótar við þá sem áður hafa verið lánaðir. Danny Rose var lánaður til Watford út tímabilið en hann er nýlega kominn til baka eftir erfið hnémeiðsli og mun vonandi öðlast góða reynslu hjá Watford. Sömuleiðis voru þeir Yuri Berchiche og David Hutton lánaðir til Cheltenham en þeir verða þar í einn mánuð og vonandi verður dvölin þeim lærdómsrík.
Tottenham sigrar Chelsea í Lundúnarslag
Það var búist við hörkuleik á White Hart Lane í dag þegar Tottenham tók á móti grönnum sínum Chelsea. Tottenham hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og hafa ekki tapað leik í deildinni frá því í janúar. Tottenham hafði fyrir leikinn ekki enn tapað gegn „stóru liðunum 4“ í deildinni og höfðu um síðustu helgi unnið Aston Villa sem sat þá í 4 sæti deildarinnar. Chelsea hefur hinsvegar ekki náð fleiri stigum gegn neinu öðru liði í úrvalsdeildinni en gegn Tottenham. Það var líka ljóst að eftir tap Manchester United um síðustu helgi yrði Chelsea að vinna leikinn til að halda sér í baráttunni um titilinn. Aukin heldur hafði Chelsea unnið alla sína leiki í deildinni frá brotthvarfi Scolari. Til að magna spennuna og eftirvæntinguna eftir leiknum var honum frestað um hálftíma af öryggisástæðum.
Harry Redknapp stillti upp sama liði og mætti Aston Villa um síðustu helgi, fyrir utan að Corluka kom inn í hægri bakvörðinn í stað Zokora.
Lennon framlengir samning sinn
Tottenham tilkynnti í dag að Aaron Lennon hefur skrifað undir 2 ára framlengingu á samningi sínum. Lennon var samningsbundinn félaginu til ársins 2012 en hann hefur verið að standa sig afar vel með liðinu og hefur verið verðlaunaður með nýjum og endurbættum samningi sem heldur honum áfram hjá félaginu til ársins 2014.
Obika og Townsend lánaðir
Tottenham hefur ákveðið að lána tvo aðra unga og efnilega leikmenn til neðri deildarliðs til viðbótar við þá sem áður hafa verið lánaðir. John Obika og Andros Townsend hafa verið lánaðir til Yeovil Town í einn mánuð til að öðlast þar meiri leikreynslu. Obika hefur aðeins komið við sögu í leikjum aðalliðsins í vetur, aðallega í Uefa cup og staðið sig vel þar en Townsend hefur verið á bekknum í einhverjum leikjum aðalliðsins í sömu keppni.
Góður útisigur
Tottenham heimsótti Aston Villa á Villa park á sunnudaginn. Aston Villa hefur verið að standa sig gífurlega vel í vetur og er enn í baráttu um 4.sætið í deildinni en það gefur sæti í umspili um Meistaradeildina. Misstu þeir Arsenal upp fyrir sig á laugardaginn og var því mikilvægt fyrir þá að sigra leikinn. Tottenham er hins vegar enn í baráttu um að halda sér í deildinni og þurfti því einnig á sigri að halda. Það fór svo að Tottenham vann góðan útisigur 1-2, en það voru þeir Jermaine Jenas og Darren Bent sem skoruðu mörk Tottenham en John Carew minnkaði muninn fyrir Villa. Með sigrinum plantaði Tottenham sér í 11. sæti deildarinnar.
Gunter, Giovani og Taarabt lánaðir
Tottenham hefur lánað þá Chris Gunter, Giovani dos Santos og Adel Taarabt það sem eftir er af núverandi leiktíð. Gunter hefur verið lánaður til Nottingham Forest, Giovani til Ipswich og Taarabt til QPR. Þeir munu án efa njóta góðs af þessum lánssamningum og öðlast meiri reynslu. Við óskum þeim góðs gengis á næstu vikum og vonandi koma þeir reynslunni ríkari til baka eftir tímabilið.
Blað klúbbsins kemur út
Nú ætti blað klúbbsins að vera að berast meðlimum hans ásamt skírteini og glaðningi. Þeim sem ekki fá sendingu sína er bent á að hafa samband við Sigrúnu í tölvupósti á gruna(at)visir.is og einnig þeim sem búa erlendis.
Aðalfundur í maí
Aðalfundur Tottenham klúbbsins á Íslandi verður haldinn seinni hluta maímánaðar, en nánari dagsetning verður auglýst síðar. Á síðustu árum hefur aðalfundurinn farið fram í júlí, en lögum klúbbsins um aðalfund var breytt á síðasta aðalfundi að kröfu Tottenham úti og skal fundinn nú halda fyrir 31. maí ár hvert. Nánari dagsetning verður auglýst þegar nær dregur.
Tottenham knýr fram jafntefli á lokamínútunum
Menn áttu von á tvísýnum leik í dag þar sem bæði liðin voru í svipaðri stöðu í deildinni og bæði búin að standa sig ágætlega undanfarið. Tottenham sem vann Middlesbrough 4-0 fyrr í vikunni hefur gengið illa á útivöllum í vetur. Sunderland sem tapaði síðast fyrir Liverpool 0-2 hefur annars verið að sækja í sig veðrið að undanförnu. Bæði liðin þurftu nauðsynlega á stigunum þrem að halda til að fjarlægjast botnbaráttuna, en fyrir leikin skyldu aðeins 4 stig bæði lið frá fallsætinu. Harry Redknapp gerði 4 breytingar á liði sínu frá leiknum gegn Middlesbrough fyrr í vikunni. Dawson, Ekotto, Zokora og Pavlyuchenko viku fyrir Chimbonda, King, Corluka og Bent.
Markaveisla á White Hart Lane
Það var sannkölluð markaveisla á White Hart Lane þegar Tottenham tók á móti Middlesbrough í fyrsta deildarleiknum eftir svekkjandi tap í úrslitaleik Carling bikarsins á sunnudaginn. Nokkrar breytingar voru gerðar á liðinu frá úrslitaleiknum þar sem sumum leikmönnum var ekki heimilt að taka þátt í úrslitaleiknum og komu því ferskir inn í leikinn. Það tók liðið einungis 9 mínútur að skora fyrsta markið, en það gerði Robbie Keane í sínum 200. deildarleik í treyju Tottenham. Hin mörkin skoruðu þeir Pavlyuchenko og Lennon(2) og fór Tottenham með sigur af hólmi, 4-0, og fékk því 3 dýrmæt stig í fallbaráttunni í deildinni.





