Bikardraumur Tottenham manna endaði rétt í þessu í vítaspyrnukeppni gegn Manchester United, eftir að staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu hafi verið markalaus. Tottenham endaði þar með í öðru sæti keppninnnar og því ljóst að vonir um að spila í evrópukeppninni á næsta ári hafa dvínað mikið. Lið Tottenham stóð sig þó vel í leiknum og gáfu Englands- og Evrópumeisturnum ekkert eftir. Heilladísirnar voru hinsvegar ekki á bandi Tottenham þegar kom að vítaspyrnukeppninni. United skoraði úr öllum sínum 4 spyrnum á meðan leikmenn Tottenham náðu aðeins að skora eitt mark. Alex Ferguson stóð við loforð sitt um að leyfa nokkrum ungum leikmönnum að spila leikinn, en þetta var þó ekkert varalið sem United tefldi fram. Harry Redknapp tefldi hinsvegar fram öllum sínum sterkustu leikmönnum.
Úrslitaleikurinn í Carling Cup
Í dag er komið að úrslitaleiknum í Carling Cup þar sem strákarnir okkar mæta Manchester United. Hvetjum við sem flesta til að mæta á Ölver í Glæsibæ og styðja liðið ásamt því að eiga góða stund saman. Mætum í réttu litunum, með fána, trefla, húfur og hvað sem er. Salurinn opnar kl.12:30 og hefst svo leikurinn kl.15. Tilboð verða á veitingum gegn framvísun klúbbskírteinis en þau er hægt að nálgast hjá stjórninni á Ölveri.
Úr leik í Uefa Cup
Tottenham tók á móti Shakhtar Donetsk á White Hart Lane í síðari leik liðanna í 32 liða úrslitum Uefa cup á fimmtudagskvöldið. Fyrri leiknum lauk með 2-0 sigri Shakhtar manna og því var erfitt verk fyrir höndum hjá leikmönnum Tottenham. Harry gerði töluverðar breytingar á liðinu sökum þess hversu þétt leikjaprógrammið er þessa dagana og fengu nokkrir ungir leikmenn sæti í liðinu og á bekknum líkt og í fyrri leiknum. Leikmenn Tottenham léku vel í leiknum en þeim tókst ekki að fara með sigur af hólmi og vinna upp forskot Shakhtar manna frá leiknum í Úkraínu. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli þar sem Giovani kom Tottenham yfir en Fernandinho jafnaði fyrir Shakhtar Donetsk. Þátttöku liðsins í UEFA cup er því lokið þetta árið.
Stóra stundin nálgast…
Ný styttist óðum í úrslitaleik Carling bikarsins, en leikurinn fer fram á sunnudaginn kemur kl.15. Eftir að hafa lagt Newcastle, Liverpool, Watford og Burnley að velli er komið að úrslitaviðureigninni á Wembley gegn Manchester United. Í tilefni dagsins hvetur klúbburinn alla Spursara til að mæta á Ölver, Glæsibæ og styðja strákana ásamt því að eiga góðan dag saman. Salurinn opnar kl.12:30 og verður tilboð á veitingum gegn framvísun klúbbskírteinis. Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hafa skírteini ekki borist til klúbbmeðlima en hægt verður að nálgast þau hjá stjórninni á Ölveri á leikdegi, og berast þau svo í pósti í næstu viku til annarra.
Mætum öll og styðjum liðið og eigum góðan dag saman. Áfram Tottenham!
Mikilvægur sigur gegn Hull
Það var mikið undir hjá báðum liðum þegar Hull tók á móti Tottenham á heimavelli sínum fyrir framan tæplega 25.000 áhorfendur. Tottenham er sem kunnugt er í fallbaráttunni á meðan Hull sem fór gríðarlega vel af stað í upphafi móts hafa verið í frjálsu falli niður töfluna. Fyrir leikinn hafði Hull aðeins náð tveimur stigum úr síðustu 8 leikjum liðsins. Tottenham hafði aðeins unnið einn leik á árinu í deildinni. Það var því svipað komið fyrir báðum liðum og ljóst að bæði liðin þurftu nauðsynlega á sigri að halda. Tottenham liðið sem er eina liðið í úrvalsdeildinni sem ekki hefur teflt fram óbreyttu liði milli leikja hélt í hefðirnar og voru tvær breytingar á liðinu sem mætti Arsenal, Dawson og Pavlyuchenko voru á bekknum í stað King og Bent.
Tap í Úkraínu
Í vikunni hófust 32 liða úrslitin í Uefa cup þar sem Tottenham mætir Shakhtar Donetsk frá Úkraínu. Fyrri leikurinn fór fram í Úkraínu í talsverðu frosti á frekar slæmum velli. Harry kaus að taka með sér nokkuð breytt lið til Úkraínu þar sem liðið á erfiða törn framundan enda 6 leikir á 17 dögum, þar á meðal úrslitaleikurinn í Carling Cup. Hann kaus að gefa nokkrum ungum leikmönnum möguleika og fór alls með 7 stráka úr U-18 ára liðinu til Úkraínu í bland við nokkra menn úr byrjunarliðinu. Leiknum lauk þó með sigri heimamanna 2-0 og eiga því strákarnir erfitt verkefni fyrir höndum eftir viku þegar liðin mætast á ný á White Hart Lane í seinni leik viðureignarinnar.
Allen og Waddle í frægðarhöllina
Í dag þann 12 febrúar fer fer fram innvígsla á tveimur frábærum, fyrrum leikmönnum Tottenham. Chris Waddle og Paul Allen sem komu báðir til Tottenham árið 1985, áttu farsælan feril með liði Tottenham og skrifuðu sig báðir í sögubækur Tottenham. Nú bætast þeir við fríðan flokk manna sem gert hafa garðinn frægan fyrir Tottenham.
Umfjöllun um Chris Waddle og Paul Allen má nálgast hér , ásamt öllum öðrum meðlimum frægðarhallarinnar og fleirum.
Jafntefli í grannaslagnum.
Defoe frá keppni í langan tíma
Jermain Defoe þarf að gangast undir aðgerð á morgun eftir að frekari rannsóknir leiddu í ljós að hann er brotinn á fimmta ristarbeini. Defoe varð fyrir meiðslum á æfingu liðsins og eftir ítarlegar rannsóknir varð niðurstaðan sú að aðgerð er nauðsynleg. Mun hann því vera frá keppni í að minnsta kosti 10 vikur en þetta geta verið erfið meiðsli og ómögulegt að segja til um hversu langan tíma hann verður frá.
Keane snýr aftur
Robbie Keane hefur samið á ný við Tottenham. Keane sem var hjá liðinu frá árinu 2002 var seldur til Liverpool í fyrra sumar fyrir 20 milljón punda. Keane náði aldrei að festa sig í sessi í byrjunarliði Liverpool þrátt fyrir að hafa spilað 19 leiki með liðinu. Félagaskiptin gengu í gegn rétt fyrir lokun leikmannaskiptagluggans og er kaupverðið talið vera 12 milljónir punda. Keane sem hefur staðið í toppbaráttunni með Liverpool mun nú fá það hlutskipti að berjast í botnbaráttunni með Tottenham. Þar með er félagaskiptaglugganum lokið og hvetjum við ykkur til að taka þátt í könnun síðunnar sem spyr: Ertu sátt/ur við kaup og sölur Tottenham í janúar?





