Page 49

Pekhart lánaður til Slavia Prag

0

Tottenham hefur lánað hinn unga og efnilega Tomas Pekhart til Slavia Prag og gildir lánssamningurinn næstu 12 mánuðina. Pekhart, sem leikur með U-21 árs landsliði Tékklands, kom upphaflega frá Slavia Prag til Tottenham sumarið 2006 en hefur ekki náð að vinna sér fast sæti í aðalliði félagsins. Hann hefur áður verið lánaður til annars liðs, til Southampton í Championship deildinni.

 

Við óskum Pekhart góðs gengis hjá Slavia Prag og vonum að hann komi reynslunni ríkari til baka að ári liðnu.

Unglingarnir ná þriðja sæti í sterku alþjóðlegu móti

1

Þó útlitið hjá aðalliði Tottenham hafi oft verið bjartara má segja að framtíðin sé björt hjá félaginu. Þann 24. janúar hóf U-18 ára lið Tottenham keppni í Chivas bikarnum sem er vaxandi alþjóðlegt mót sem haldið var í Mexíkó í 16. skipti. Í ár voru skráð til keppni mörg af sterkustu unglingaliðum heims, sem dæmi má nefna Real Madrid, Stabæk, River Plate, Santos og Chivas, auk þess sem U-18 ára landslið Brasilíu, Mexíkó, Paragvæ og Japan voru skráð til keppni. Það er allt gert til að gera mótið sem glæsilegast og spila liðin á bestu leikvöngum sem völ er á og aðstaða liða er til fyrirmyndar.

Enn eitt tapið á útivelli

0

Leikmenn Tottenham fóru tómhentir heim þegar þeir heimsóttu Bolton á Reebok völlinn í 24.umferð deildarinnar. Bæði liðin voru með 24 stig fyrir umferðina og sátu í 13. og 14. sæti deildarinnar. Tottenham hefur ekki sótt mörg stig á heimavöll Bolton síðustu ár og leikurinn í dag var engin undantekning. Leikmenn Bolton fóru með sigur af hólmi 3-2, þar sem Puygrenier og Kevin Davies (2) skoruðu mörk Bolton en Darren Bent skoraði bæði mörk Tottenham. Bolton menn komust í 2-0 en leikmenn Tottenham jöfnuðu leikinn með tveimur mörkum á stuttum tíma. En Bolton menn náðu að skora sigurmarkið á síðustu mínútum leiksins og hirða þar með öll stigin þrjú.

Palacios og Chimbonda komnir með leikheimild.

0

Tottenham Hotspur hefur staðfest að Wilson Palacios sé kominn með atvinnuleyfi og er því löglegur í leiknum gegn Bolton á laugardaginn. Auk þess er skráningin á Pascal Chimbonda komin í gegn. Það gæti því farið svo að við fengjum að sjá þá báða í leiknum gegn Bolton.

Dervite fer til Southend á láni

0

Varnarmaðurinn Dorian Dervite hefur verið lánaður það sem eftir lifir tímabilsins til fyrstu deildar liðs Southend United. Þessi tvítugi Frakki hefur verið fastamaður í varaliði Tottenham og fengið að verma bekkinn í þrígang með aðalliðinu. Southend vermir 17. sætið í fyrstu deildinni og veitir því ekki af liðsstyrk.

 

Við óskum Dervite góðs gengis.

Loksins Sigur

0

Stuðningsmenn Tottenham voru orðnir langeygir eftir sigri þegar kom að leik Tottenham og Stoke. Tottenham hafði ekki sigrað í deildinni síðan 8 desember þegar þeir sigruðu West Ham. Það var því ljóst að Harry Redknapp myndi stilla upp sínu sterkasta liði í leiknum og leggja allt undir til að ná sigri í fallbaráttunni. Leikurinn var spilaður á heimavelli Tottenham þar sem leikmenn Spurs hafa aðeins skorað 8 mörk í vetur í deildinni. Redknapp gerði 4 breytingar á liðinu frá bikarleiknum gegn Burnley. Carlo Cudicini þreytti frumraun sína í marki Tottenham í stað Alnwick. Auk þess duttu þeir Gunter, Huddlestone og Bale úr byrjunarliðinu í stað Woodgate, Defoe og Lennon

Chimbonda til Spurs á ný

0

Tottenham hefur komist að samkomulagi við Sunderland um kaup á Pascal Chimbonda. Chimbonda er stuðningsmönnum Spurs vel kunnugur enda einungis 6 mánuðir síðan hann var seldur frá Tottenham til Sunderland. Hann var þó óánægður með dvölina þar og hefur liðið því keypt hann til baka. Kaupverðið er ekki gefið upp en er talið vera það sama og Sunderland greiddi fyrir hann sl. sumar. Chimbonda mun veita Harry fleiri möguleika í vörninni enda getur hann spilað hvar sem er í vörninni þó að hans besta staða sé í hægri bakverði. Hann mun þó ekki geta tekið þátt í leik liðsins annað kvöld gegn Stoke þar sem skráning hans fór ekki í gegn í tæka tíð.

 

Við bjóðum Chimbonda velkominn til klúbbsins á ný.

Cudicini gengur til liðs við félagið

0

Tottenham tilkynnti í hádeginu að félagið hefði fengið markvörðinn Carlo Cudicini til liðs við félagið á frjálsri sölu. Cudicini var í herbúðum Chelsea og átti hálft ár eftir af samningi sínum. Chelsea leysti hann þó undan samningi þar sem hann hafði sýnt félaginu mikla hollustu enda var hann þar í tæp 10 ár. Þessi 35 ára gamli leikmaður lék 210 leiki fyrir Chelsea en hafði áður spilað bæði með AC Milan og Lazio. Hann gengur nú til liðs við Tottenham og veitir þar með Gomes harða samkeppni. Mögulega líður ekki á löngu þar til stuðningsmenn sjá hann í leik þar sem hann skrifaði undir í tíma til að vera löglegur með liðinu annað kvöld gegn Stoke.

 

Við bjóðum Cudicini velkominn til félagsins.

Hossam Ghaly kveður

0

Al Nassar frá Sádi-Arabíu  hefur gengið frá samningum við egypska miðjumanninn Hossam Ghaly. Ghaly kom til Tottenham árið 2006 frá hollenska liðinu Feyenoord. Ghaly spilaði nokkuð á sínu fyrsta tímabili með Spurs en hefur ekki verið í náðinni hjá stjórum og stuðningsmönnum Tottenham síðustu misserin, og hefur ekki spilað leik fyrir Tottenham frá árinu 2007. Í leik gegn Blackburn árið 2007 henti Ghaly treyjunni sinni í jörðina þegar honum var skipt útaf. Stuðningsmenn tóku þessu sem vanvirðingu við félagið og reiddust Ghaly. Í leik gegn Wigan 2. febrúar varð ljóst að Ghaly myndi ekki eiga framtíð fyrir sér hjá liðinu þar sem stuðningsmenn Tottenham bauluðu á Ghaly þegar hann var að gera sig reiðubúinn að koma inn á af bekknum. Redknapp ákvað að hætta við skiptinguna sökum þessa og þar með var ljóst að Ghaly átti ekki framtíð fyrir sér hjá Spurs.

 

Við óskum Ghaly velfarnaðar hjá nýju liði og þökkum framlag hans til félagsins.

Fallnir úr leik í FA cup

0

Tottenham féll úr leik í ensku bikarkeppninni þegar liðið beið lægri hlut fyrir Manchester United á Old Trafford. Fyrir leikinn voru vangaveltur um liðsuppstillingu Tottenham eftir ummæli Redknapp í vikunni að hann myndi stilla upp veiku liðið. Svo var þó ekki raunin og mætti Redknapp með nokkuð sterkt lið en þó voru nokkrir lykilmenn fjarverandi vegna meiðsla. Leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna,  Pavlyuchenko kom Tottenham yfir í leiknum en United menn náðu forystunni með mörkum frá Scholes og Berbatov.

Nýjustu fréttirnar