Page 46

Manchester United 5 – Tottenham 2

0

Það var heldur betur markaleikur sem fór fram á Old Trafford, heimavelli Manchester Utd. um síðustu helgi. Fyrir leikinn var búist við hörku leik þar sem Tottenham hafði sett stefnuna á 7. sætið, á meðan United er í titilbaráttunni. Stuðningsmenn Tottenham gengu um hnarreistir eftir að Howard Webb hafði flautað til loka fyrri hálfleiks. En Adam var ekki lengi í paradís og að leik loknum gengu niðurlægðir leikmenn Tottenham af vellinum eftir að hafa verið teknir í karphúsið í seinni hálfleik.
Harry Redknapp gerði tvær breytingar á liðinu sem mætti Newcastle um síðustu helgi. Michael Dawson er meiddur og því kom Ledley King í hans stað. Þá var Huddlestone færður á bekkinn til að greiða leið Wilson Palacios sem nú var leikfær eftir leikbann. Aðeins tveir sóknarmenn voru til taks fyrir leikinn þar sem Pavlyuchenko var meiddur, Frazier Campbell mátti ekki spila gegn United og Defoe fékk leyfi frá leiknum. Defoe fékk leyfi frá leiknum þar sem bróður hans hafði látið lífið daginn fyrir leikinn. Við sendum að sjálfsögðu Defoe hughreystingar og samúðarkveðjur.

Wembley Cup í sumar

0

Tottenham hefur tilkynnt að liðið mun taka þátt í 4 liða móti í júlí sem nefnist Wembley Cup og er það liður í æfingatímabili liðsins. Leikið verður á tveimur leikdögum þar sem tveir leikir eru spilaðir hvorn dag og spila því liðin aðeins tvo leiki á mótinu. Liðin sem taka þátt eru ekki af verri endanum en auk Tottenham mæta til leiks Barcelona, Celtic og Al Ahli, en þeir eru toppnum í Egypsku deildinni. Tottenham mun leika gegn Barcelona þann 24. júlí og mætir svo Celtic þann 26.júlí. Tímasetningar verða tilkynntar síðar.

Lánavaktin

0

Leikmenn Tottenham eru ekki aðeins að gera það gott með Tottenham þessa dagana, því nokkrir leikmenn sem hafa farið á lánsamningi til liða í neðri deildunum hafa einnig verið að gera það gott að undanförnu. Þar fer fremstur í flokki Giovani dos Santos sem hefur verið að standa sig hreint frábærlega með Ipswich. Einnig eru nokkrir af okkar mönnum að berjast með liðum í fallbaráttu og einnig með liðum sem berjast um að komast upp um deild. Það er því ekki úr vegi að stikla á stóru yfir það sem hefur verið að gerast hjá lánsmönnunum okkar undanfarnar vikur og mánuði.

Loksins sigur gegn Newcastle

0

Tottenham tók á móti Newcastle á White Hart Lane á sunnudaginn í 33.umferð deildarinnar. Newcastle hefur haft nokkra yfirhönd í einvígum liðanna síðustu ár og fyrir leikinn hafði Newcastle unnið síðustu sex viðureignir liðanna í deildinni og hafa leikirnir yfirleitt boðið upp á markaveislu. Fyrri leik liðanna þann 21.desember lauk með 2-1 sigri Newcastle en segja má að gengi beggja liða sé gjörólíkt eftir þann leik. Tottenham hefur komist á góða siglingu, unnið 6 leiki, gert 4 jafntefli og tapað 4 leikjum en hafa þó ekki tapað á heimavelli og því erfitt fyrir Newcastle menn að mæta á White Hart Lane. Newcastle hafði hins vegar aðeins unnið einn leik frá sigri þeirra á okkar mönnum og þurftu svo sannarlega á stigunum að halda í þessum leik enda í bullandi fallbaráttu. Leikmenn Tottenham voru þó staðráðnir í að tapa ekki enn einum leiknum gegn Newcastle og svo varð raunin, Tottenham sigraði 1-0 með marki frá Darren Bent.

Lennon að blómstra hjá Spurs.

0

Afmælisbarn dagsins (16. apríl) Aaron Lennon er heldur betur að gera það gott þessa dagana. Lennon hefur verið óstöðvandi á hægri vængnum undanfarnar vikur og mánuði. Margir telja hann eina af stærstu ástæðum velgengni Tottenham að undanförnu. Lennon hefur m.a náð að vinna sér inn sæti í enska landsliðinu og hefur verið í byrjunarliðinu í síðustu tveim leikjum. Það er því sönn ánægja að tilkynna að hann hefur nú verið valinn í 6 manna úrval fyrir kosninguna á besta unga leikmanni deildarinnar (PFA young player of the year). Það eru samtök knattspyrnumanna sem standa fyrir kosningunni og það eru því leikmenn sem hafa atkvæðisrétt. Það er því mikill heiður að verða fyrir valinu. Atkvæðagreiðslan stendur frá 1- 20. apríl. Úrslitin munu svo verða kunngjörð í lok tímabilsins. Keppinautar Lennon eru þó engir aukvisar. Þeir 5 sem Lennon keppir við um viðurkenninguna eru:

 

Af varaliði og unglingaliði Tottenham

0

Það er heldur betur uppgangur hjá Tottenham þessa dagana. Þeir sem eitthvað fylgjast með Tottenham hafa ekki farið varhluta af þeirri uppsveiflu sem aðallið Tottenham er á þessa dagana. Uppsveiflan er þó ekki einungis bundin við aðallið Tottenham því bæði varalið og unglingalið Tottenham eru í gríðarlegri uppsveiflu þessa dagana, og því ljóst að það ríkir gríðarlega góður andi í herbúðum Tottenham þessa dagana.

 

Tottenham komið aftur á beinu brautina

0

Eftir góða sigurgöngu síðustu mánuði voru áhangendur Tottenham spenntir að sjá hvernig liðið kæmi til baka eftir tap gegn Blackburn um síðustu helgi. Fyrri viðureign okkar gegn West Ham í vetur markaði ákveðin kaflaskil. Eftir að við höfðum unnið West Ham 0-2 á heimavelli West Ham þurftu leikmenn Tottenham að bíða í 11 vikur eftir næsta sigri á útivelli. Hinsvegar skipti árangur á útivöllum ekki máli í þessum leik, enda fór hann fram á hinum gríðarlega gjöfula heimavelli okkar. En við máttum síðast þola tap heima gegn Everton í nóvember á síðasta ári.
Lið West Ham sat í 7. sæti fyrir leik liðanna á meðan Tottenham sat í því 11, og munaði aðeins 6 stigum á liðunum. Það má teljast ansi líklegt að 7. sætið gefi þáttökurétt í UEFA keppnina, þannig að leikurinn var mikilvægur báðum liðum. Harry Redknapp gerði aðeins eina breytingu á liðinu frá síðasta leik, þar sem Wilson Palacios var í leikbanni. Tom Huddlestone fékk langþráð tækifæri í hans stað.

Tottenham komið aftur á beinu brautina

0

Eftir góða sigurgöngu síðustu mánuði voru áhangendur Tottenham spenntir að sjá hvernig liðið kæmi til baka eftir tap gegn Blackburn um síðustu helgi. Fyrri viðureign okkar gegn West Ham í vetur markaði ákveðin kaflaskil. Eftir að við höfðum unnið West Ham 0-2 á heimavelli West Ham þurftu leikmenn Tottenham að bíða í 11 vikur eftir næsta sigri á útivelli. Hinsvegar skipti árangur á útivöllum ekki máli í þessum leik, enda fór hann fram á hinum gríðarlega gjöfula heimavelli okkar. En við máttum síðast þola tap heima gegn Everton í nóvember á síðasta ári.
Lið West Ham sat í 7. sæti fyrir leik liðanna á meðan Tottenham sat í því 11, og munaði aðeins 6 stigum á liðunum. Það má teljast ansi líklegt að 7. sætið gefi þáttökurétt í UEFA keppnina, þannig að leikurinn var mikilvægur báðum liðum. Harry Redknapp gerði aðeins eina breytingu á liðinu frá síðasta leik, þar sem Wilson Palacios var í leikbanni. Tom Huddlestone fékk langþráð tækifæri í hans
stað.

Myndir

0

Nú eru komnar inn myndir í myndasafnið á síðunni sem teknar voru á Ölveri þegar úrslitaleikurinn í Carling Cup gegn Manchester United fór fram. Myndasafnið er að finna undir "Klúbburinn" hér vinstra megin á síðunni.

Sigurhrinan á enda

0

Góðu gengi Tottenham liðsins lauk um helgina þegar liðið heimsótti Blackburn á Ewood Park. Liðið hafði ekki tapað í síðustu 7 deildarleikjum, unnið 5 af þeim leikjum og gert tvö jafntefli. Leikmenn voru því fullir sjálfstraust þegar þeir mættu á Ewood Park og leikurinn hófst vel þar sem Keane kom Tottenham yfir úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. En í seinni hálfleik fékk Palacios að líta rauða spjaldið og eftir það hrundi leikur Tottenham og Blackburn náði að skora tvívegis á loka mínútum leiksins og stela þar með sigrinum. Tottenham er því enn í 11. sæti deildarinnar með 38 stig.

Nýjustu fréttirnar