Page 50

Cesar fer frá félaginu

0

Cesar Sanchez, sem hefur verið varamarkvörður Tottenham á þessu tímabili, er farinn frá félaginu. Hann gekk til liðs við Tottenham sl. sumar og hefur setið á bekknum sem varamarkvörður liðsins í flestum leikjum síðan þá og einu sinni komið inná sökum meiðsla hjá Gomes. Forráðamenn Tottenham og Cesar sjálfur komust nú að sameiginlegri niðurstöðu að samningi hans verði rift og honum frjálst að ganga til liðs við annað lið.

 

Við þökkum Cesar fyrir þann tíma sem hann var hjá félaginu og óskum honum velgengni í framtíðinni.

Fréttir af yngri leikmönnum

0

Þrátt fyrir annasama tíma hjá aðalliði félagsins berast þó einnig fréttir af yngri leikmönnum liðsins. Troy Archibald-Henville, tvítugur leikmaður úr varaliðinu, hefur verið lánaður til Exeter City í einn mánuð og mun án efa öðlast góða reynslu á þeim tíma, en hann var einnig á láni fyrr á tímabilinu en þá hjá Norwich. Einnig berast fréttir af Jon Obika, leikmanni U-18 ára liðsins, en hann skrifaði á dögunum undir sinn fyrsta atvinnumannasamning við liðið. Obika hefur staðið sig vel með U-18 ára liðinu og bæði fengið að spila með varaliðinu og aðalliðinu. Hann hefur þrisvar verið á bekknum í leikjum aðalliðsins, og komið inná í einum þeirra, gegn NEC Nijmegen í nóvember.

Tottenham í úrslit deildarbikarsins

0

Í kvöld fór fram seinni leikur Burnley og Tottenham í undanúrslitum deildarbikarsins. Tottenham hafði unnið fyrri leikinn 4-1 á heimavelli og því allt sem benti til þess að við myndum sigla inn í úrslitaleikinn. Það var hinsvegar ekki á dagskránni hjá Burnley í þessum leik. Burnleymenn mættu vel stemmdir til leiks og voru staðráðnir í að láta stóra liðið frá London hafa mikið fyrir hlutunum. Það tókst þeim og má Tottenham teljast heppið að hafa sloppið með aðeins eins marks tap. Burnleymenn geta svo sannarlega gengið með höfuðið hátt eftir framgöngu þeirra í keppninni.

Tottenham kaupir miðjumann

0

Tottenham tilkynnti nú í morgunsárið að félagið hafi fest kaup á miðjumanninum Wilson Palacios frá Wigan. Kaupverðið er ekki gefið upp en talið vera í kringum 15 milljónir punda. Einungis er nú beðið eftir staðfestingu um atvinnuleyfi áður en félagaskiptin ganga að fullu í gegn. Palacios gekk til liðs við Wigan fyrir ári síðan og spilaði alls 41 leik fyrir liðið og hefur staðið sig með prýði. Hann verður án efa góð viðbót i leikmannahóp Tottenham.

 

Við bjóðum Wilson Palacios velkominn til Tottenham!

Jafnt á WHL í spennandi leik

0
Tottenham og Portsmouth skildu jöfn í spennandi leik á White Hart Lane. Leikurinn var sá fyrsti milli liðanna frá því að Redknapp tók við stjórn Tottenham og keypti af Portsmouth Jermaine Defoe. Áhorfendur mættu vel stemmdir til leiks og sama má segja um leikmenn beggja liða sem börðust vel og voru staðráðnir í að fá eitthvað út úr leiknum. Liðin þurftu að sætta sig við að deila stigunum en leiknum lauk með 1-1 jafntefli. David Nugent kom Portsmouth yfir með fyrsta marki sínu í deildinni en Jermaine Defoe jafnaði leikinn fyrir Tottenham. Með jafnteflinu lyfti Tottenham sér af botni deildarinnar upp í 16.sætið en er þó jafnt liðunum í 17.-20.sæti að stigum en með betri markatölu..

Velkomin á nýja og endurbætta heimasíðu

0

Tottenhamklúbburinn á Íslandi ákvað fyrir nokkru að ráðast í endurbætur á heimasíðu klúbbsins. Í samvinnu við fyrirtækið PCs lítur nú heimasíðan dagsins ljós. Ásamt því að útlit hennar hefur gjörbreyst er ýmislegt nýtt að finna á síðunni í bland við kunnuglega kafla. Af nýjungum má nefna þætti eins og hetjur, myndaalbúm og viðburðadagatal (aðeins sýnilegt þegar merkisdaga ber upp), en auk þess hefur allt sem var á gömlu síðunni verið uppfært. Við hvetjum ykkur til að flakka um síðuna og skoða það sem hún hefur uppá að bjóða. Ef þið hafið athugasemdir, endilega hafið samband hér.

Tap í bragðdaufum leik

0

Tottenham tapaði fyrir Wigan þegar liðið mætti í heimsókn á JJB leikvanginn. Var þetta fyrsti leikur Defoe fyrir Tottenham eftir árs fjarveru en honum tókst ekki að skora í fyrsta leiknum sínum í þetta skiptið, líkt og hann hefur ávallt gert þegar hann hefur gengið til liðs við nýtt lið. Aðeins eitt mark skildi liðin að og var það Figueroa sem skoraði markið í uppbótartíma eftir hornspyrnu. Tottenham er því í fallsæti og mikil barátta fyrir höndum.

 

Boateng lánaður til Þýskalands

0

Kevin-Prince Boateng hefur verið lánaður til þýska liðsins Borussia Dortmund út yfirstandandi keppnistímabil. Boateng hefur ekki náð að vinna sér inn fast sæti í liðinu eftir komuna frá Hertha Berlin í júlí 2007 og hefur aðeins leikið 23 leiki fyrir liðið. Hann var einn þeirra leikmanna sem fékk ekki leiknúmer í haust þegar Ramos var við stjórn en Harry hefur gefið honum nokkur tækifæri. Hann heldur nú til Þýskalands út tímabilið og framhaldið ræðst yfir sumartímann.

Hálfur sigur unninn

0

Tottenham sigraði Burnley á White Hart Lane í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Carling Cup. Leiknum lauk með 4-1 sigri Tottenham en síðari leikur liðanna fer fram þann 21.janúar á heimavelli Burnley. Burnley komst yfir með marki frá Paterson en ótrúleg endurkoma liðsins í síðari hálfleik tryggði Tottenham góðan sigur og gott veganesti inn í seinni viðureignina. Mörk Tottenham skoruðu þeir Dawson, O´Hara og Pavlyuchenko og svo varð Duff, leikmaður Burnley fyrir því óláni að skora í eigið mark.

Defoe kominn tilbaka

0

Tottenham tilkynnti í dag að félagið hafi komist að samkomulagi við Portsmouth um kaup á Jermain Defoe. Defoe er flestum Spursurum kunnugur enda var hann hjá liðinu um fjögurra ára skeið, eða á árunum 2004-2008. Hann var seldur til Portsmouth í janúar í fyrra en hefur nú verið keyptur tilbaka. Kaupverðið var ekki gefið upp en talið er að það hafi verið í kringum 15 milljónir punda.

 

Við bjóðum Defoe velkominn tilbaka til félagsins

Nýjustu fréttirnar