Page 35

Harry Redknapp framkvæmdastjóri tímabilsins

0

Harry Redknapp var í dag útnefndur framkvæmdastjóri tímabilsins í ensku Úrvalsdeildinni. Árangur hans með liðið á þessu tímabili hefur verið ótrúlegur en liðið hefur tryggt sér 4.sæti deildarinnar og þar með umspil í Meistaradeildinni á næsta ári. Einnig er möguleiki á að liðið geti náð 3. sæti deildarinnar en einni umferð er ólokið á tímabilinu. Verðlaun þessi eru sannarlega góð viðurkenning á starfi hans hjá félaginu en til gamans má geta að hann er aðeins annar stjórinn frá stofnun Úrvalsdeildarinnar til að hljóta þessi verðlaun án þess að hafa unnið deildina. Við óskum Harry til hamingju með þessa viðurkenningu.

Gareth Bale skrifar undir nýjan samning

0

Tottenham tilkynnti í dag að Gareth Bale hefur skrifað undir nýjan og endurbættan samning við liðið sem gildir næstu 4 árin eða til ársins 2014. Bale hefur staðið sig gífurlega vel undanfarna mánuði og verið mikilvægur partur af því mikla afreki hjá liðinu að tryggja sér umspil í meistaradeildinni á næsta ári.

4.sætið í höfn

0

Tottenham og Manchester City mættust í einum af stórleikjum tímabilsins þegar leikur þeirra, sem upphaflega átti að spila fyrr á árinu, var leikinn í Manchester borg á miðvikudagskvöldið. Tottenham sat í 4.sætinu fyrir leikinn einu stigi á undan City en bæði lið höfðu spilað 36 leiki. Rafmagnað andrúmsloft var á leikvangi Manchesterborgar en 8 mínútum fyrir leikslok brutust út gífurleg fagnaðarlæti stuðningsmanna Tottenham þegar Peter Crouch skoraði eina mark leiksins og tryggði þar með Tottenham 4.sæti deildarinnar. Tottenham er því komið í undankeppni meistaradeildarinnar og getur enn náð 3.sætinu þegar einni umferð er ólokið.

Baráttan um fjórða sætið í beinni á Ölver

0

Á miðvikudaginn 5 maí klukkan 19:00 mun fara fram leikur Manchester City og Tottenham Hotspur. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið þar sem sigur myndi tryggja Tottenham fjórða sætið og möguleika á 3. sætinu fyrir lokaumferðina. Sigri Manchester myndi það tryggja þeim tveggja stiga forustu um 4 sætið fyrir lokaumferðina (sem tryggir þáttöku í undankeppni meistaradeildarinnar á næsta tímabili). Það má því búast við hörku leik þar sem bæði lið munu leggja allt undir. 

Tottenham klúbburinn á Íslandi hvetur alla stuðningsmenn Tottenham til að fjölmenna, í fatnaði merktum Tottenham, á Ölver og hvetja sitt lið til dáða í leiknum gegn Manchester City. 

 

Áfram Tottenham! 

 

 

Gareth Bale valinn bestur í apríl

0

Gareth Bale hefur verið útnefndur leikmaður aprílmánaðar í ensku úrvalsdeildinni. Bale sem er aðeins tvítugur hefur verið hreint út sagt magnaður í apríl og leikið varnir mótherja okkar grátt oft á tíðum. Eftir mikla markaþurrð hjá Bale skoraði Bale loks gegn erkiféndunum í Arsenal og skoraði svo annað mark í næsta leik á eftir gegn toppliði Chelsea. Bale er því vel að titlinum kominn og óskum við honum til hamingju með árangurinn.

Tottenham húfur

0

Tottenham klúbburinn hefur til sölu húfur með merki Tottenham klúbbsins á Íslandi og er verðið á þeim1.200 kr (1.400 kr ef sent er með pósti). Áhugasamir greiði inn á reikning klúbbsins 0537-26-003110 kt. 630103-3550 og sendi kvittun á spurs(hja)spurs.is eða setja sig í samband við Sigurþór (sh(hjá)risehf.is) eða Sigrúnu (ms.keane(hjá)hotmail.com). ATH, ef senda á með pósti bætist 200 kr sendingarkostnaður við. Einnig er hægt að fá húfurnar afhendar gegn staðgreiðslu á Ölveri á næstu leikdögum okkar manna.

Kveðja, stjórnin.

Tap á Old Trafford

0

Tottenham heimsótti Manchester United í leik helgarinnar fullir sjálfstraust eftir góða sigra gegn bæði Arsenal og Chelsea. United menn voru þó staðráðnir í að stoppa sigurgöngu Tottenham enda í hörku baráttu um titilinn við Chelsea menn en vissulega þurftu Tottenham menn einnig á stigum að halda í baráttunni um 4.sæti deildarinnar. Heimamenn reyndust þó of sterkir fyrir leikmenn Tottenham líkt og fyrri ár og fóru með sigur af hólmi 3-1, þar sem Giggs(2) og Nani skoruðu mörk United en Ledley King skoraði mark Tottenham. Þrátt fyrir  tapið hélt Tottenham 4.sætinu þar sem City menn gerðu markalaust jafntefli á heimavelli erkifjenda Tottenham á sama tíma.

Góður sigur á toppliði Chelsea

0

Eftir góðan sigur á nágrönnunum í Norður London var komið að öðrum erfiðum heimaleik þegar nágrannar liðsins í Suður London, Chelsea, mættu í heimsókn. Leikmenn Tottenham mættu fullir sjálfstraust í leikinn eftir góðan sigur á Arsenal en Chelsea menn eiga í harðri baráttu við Manchester United um Englandsmeistaratitilinn og mega ekki við því að missa stig. Sömu sögu er þó að segja um Tottenham því liðið á enn góða möguleika á meistaradeildarsæti og því hvert stig mikilvægt. Leikmenn Tottenham héldu áfram að spila sömu góðu spilamennskuna og í leiknum gegn Arsenal og uppskáru góðan 2-1 sigur á toppliðinu. Mörk Tottenham skoruðu þeir Defoe og Bale en Lampard minnkaði muninn fyrir Chelsea.

Loksins sigur á Arsenal

0

Á miðvikudagskvöldið fór fram hinn stóri nágrannaslagur í Norður London þegar Tottenham tók á móti Arsenal á White Hart Lane. Leikurinn átti að fara fram á laugardaginn en var frestað vegna þátttöku Tottenham í FA bikarnum. Arsenal menn voru enn með í baráttunni um titilinn fyrir leikinn og Tottenham að berjast um fjórða sætið svo að mikilvægt var fyrir bæði lið að ná öllum stigunum úr þessari umferð. Arsenal menn höfðu tölfræðina með sér því undanfarin ár hafa þeir haft tak á Tottenham og hefur síðarnefnda liðið ekki farið með sigur af hólmi í deildinni í viðureign þessara lið í 11 ár, eða síðan 1999. Það varð þó breyting á því í þetta skiptið því Tottenham náði loksins að leggja nágranna sína að velli. Lokatölur leiksins voru 2-1 og voru það Danny Rose og Gareth Bale sem skoruðu mörk Tottenham. Tottenham er því enn í baráttunni um 4.sæti deildarinnar en titilvonir Arsenal fóru nánast út um þúfur.

Bikardraumurinn úti

0

Tottenham mætti Portsmouth í undanúrslitum FA bikarsins á Wembley á sunnudaginn sl. Gengi liðanna í vetur hefur verið gjörólíkt, Tottenham hefur barist um meistaradeildarsæti allt tímabilið og á enn möguleika á því. Á meðan hafa Portsmouth menn mátt berjast á botni deildarinnar auk þess sem af liðinu voru dregin stig vegna greiðslustöðvunar og fengu þeir fregnir af því degi fyrir leikinn á Wembley að liðið væri endanlega fallið niður um deild. Það voru því flestir sem bjuggust við sigri Tottenham manna þrátt fyrir mikil meiðsli í leikmannahópnum en annað kom á daginn. Hvorugu liðinu tókst að skora í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja leikinn. Í framlengingunni tókst Portsmouth mönnum að skora tvívegis með mörkum frá Piquionne og Boateng en mark sem Tottenham skoraði var dæmt af. Portsmouth menn eru því komnir í úrslitaleik FA bikarsins annað árið í röð og gerðu þar með úti um bikardrauma Tottenham.

Nýjustu fréttirnar