Page 37

Mikilvægur sigur í magnþrungnum leik

0

Tottenham tók á móti Everton í þýðingamiklum leik á WHL á sunnudaginn. Everton hafði fyrir leikinn verið á miklu skriði og vann m.a Englandsmeistarana með tveggja marka mun á dögunum. Með sigri myndi Everton blanda sér í baráttu um 4. sætið en Spurs mátti að sama skapi ekki við því að misstíga sig í baráttunni um meistaradeildarsætið. Því var ljóst að bæði lið myndu leggja allt í sölurnar í þessum leik. Harry Redknapp gerði 2 breytingar á liðinu sem mætti Bolton fyrr í vikunni. Ekotto vék fyrir Corluka sem hafði jafnað sig á veikindum sem komu í veg fyrir þátttöku hans í leiknum gegn Bolton og Kranjcar kom inn fyrir Bentley sem hafði orðið fyrir meiðslum í leiknum gegn Bolton. Liðið leit því svona út: Gomes, Corluka, Dawson, Bassong, Bale, Kranjcar, Huddlestone, Palacios, Modric, Pavlyuchenko, Defoe

Stórsigur í bikarnum gegn Bolton

0

Eftir 1-1 jafntefli á Reebok vellinum í FA bikarnum var komið að Bolton að mæta á WHL þar sem skorið var úr um hvort liðið kæmist áfram í næstu umferð. Stjórar beggja liða gerðu nokkrar breytingar á liðunum. Stuðningsmönnum Tottenham var skiljanlega létt að sjá markahrellinn Kevin Davies á bekknum hjá Boltonmönnum. En hann skoraði einmitt mark Boltonmanna gegn Tottenham í 1-1 jafnteflinu. Elmander sem átti stoðsendinguna á Davies í þeim leik og var okkar mönnum einnig erfiður ljár í þúfu var einnig hvíldur. Það var ljóst að Coyle stjóri Bolton ætlaði að leggja meiri áherslu á deildina þar sem þeir eru í miklum fallslag, og hvíla því lykilmenn. Harry Redknapp gerði 4 breytingar á liði sínu frá leiknum gegn Wigan um helgina. Pavlyuchenko sem kom inn með látum gegn Wigan fékk að byrja leikinn í stað Crouch. Ekotto var mættur aftur úr meiðslum og tók stöðu Corluka í hægri bakverðinum. Bassong tók stöðu fyrirliðans Ledley King og loks var það Luka Modric sem tók stöðu landa síns Kranjcar. Eiður Smári fékk ekki að byrja leikinn en var á bekknum. Liðið var þá þannig skipað: Gomes, Ekotto, Dawson, Bassong,Bale, Bentley, Palacios, Huddlestone, Modric, Pavlyuchenko, Defoe.

Mikilvægur útisigur

0

Tottenham heimsótti lið Wigan í leik helgarinnar en fyrri leikur þessara liða á leiktíðinni gleymist seint, en þar lagði Tottenham Wigan að velli með 9 mörkum gegn 1. Tottenham var fyrir enn í baráttu um 4. sætið á meðan Wigan menn berjast við að halda sér fyrir ofan fallsætin. Vallaraðstæður voru skelfilegar því völlurinn líktist frekar kartöflugarði heldur en fótboltavelli en Tottenham menn höfðu á endanum einnig betur í þessari viðureign. Leiknum lauk með 0-3 sigri Tottenham og mörkin skoruðu þeir Jermain Defoe og Roman Pavlyuchenko (2). Tottenham endurheimti 4.sætið þar sem Liverpool og Man.City gerðu einungis jafntefli.

Jafntefli í kaflaskiptum leik

0

Það var búist við jafnri og harðri viðureign á Reebok vellinum í Bolton þegar Tottenham kom í heimsókn í 5. umferð bikarkeppninnar um helgina. Bæði liðin höfðu tapað leik í vikunni í deildinni. Bolton lá á gegn Manchester City og Tottenham tapaði fyrir Úlfunum. Bæði liðin ætluðu sér því sigur í þessum leik og tefldu fram sínu sterkasta liði. Harry Redknapp gerði 5 breytingar frá tapinu gegn Wolves Kaboul, Bassong, Jenas, Kranjcar og Eiður var skipt út fyrir Corluka, King, Palacios, Modric og Crouch. Byrjunarliðið leit því svona út gegn Bolton: Gomes, Corluka, Dawson, King, Bale, Bentley, Palacios, Huddlestone, Modric, Defoe, Crouch. Eiður Smári var á varamannabekknum ásamt Alnwick, Pavlyuchenko, Jenas, Dervite, Bassong, Rose

Wolves 1 – Tottenham 0

0

Tottenham heimsótti Wolves á heimavöll þeirra, Molineux völlinn á miðvikudagskvöld, en leikin var heil umferð í deildinni í miðri viku að þessu sinni. Tottenham átti harma að hefna eftir fyrri leik liðanna á White Hart Lane en þar fóru leikmenn Wolves með sigur af hólmi. Mikilvægt var fyrir Tottenham að hirða öll stigin úr þessari viðureign enda orðin hörð baráttan um evrópusætin í deildinni. Wolves menn eru hins vegar í hörkubaráttu á hinum enda deildarinnar og sigur hefði komið þeim upp úr fallsæti. Það fór svo að úlfarnir höfðu aftur betur í slag liðanna og sigruðu með sömu markatölu og í fyrri leiknum, 1-0. Eiður Smári byrjaði inná í sínum fyrsta leik og lék 63 mínútur.

Markalaust jafntefli gegn Aston Villa

0

Tottenham tók á móti Aston Villa á White Hart Lane í leik helgarinnar. Liðin þurftu bæði á stigum að halda enda í hörkubaráttu um fjórða og síðasta sæti deildarinnar sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni. Eiður Smári var í fyrsta skipti í leikmannahóp Tottenham eftir félagaskipti hans í janúarglugganum, en hann vermdi varamannabekkinn í þetta skiptið. Hvorugu liðinu tókst að skora í leiknum og lauk honum því með markalausu jafntefli. Liðin skiptu því stigunum bróðurlega á milli sín.

Ath! breytt tímasetning á leiknum á morgun.

0

Við biðjumst velvirðingar á því að leikur Tottenham gegn Aston Villa hefur verið skráður kl: 15:00 á morgun laugardag á Spurs.is síðunni, en leikurinn var færður og verður því  leikurinn kl:17:30 á morgun, laugardaginn 6. febrúar.

 

 

Sigur á Leeds í FA Cup

0

Tottenham heimsótti  Leeds á Elland Road í endurspili um sæti í fimmtu umferð FA bikarsins en fyrri leik liðanna á WHL lauk með 2-2 jafntefli þar sem Leeds menn jöfnuðu á lokamínútu leiksins. Bæði lið mættu í leikinn harðákveðin í að fara með sigur af hólmi og stuðningsmenn beggja liða sáu um magnað andrúmsloft. Leikmenn Tottenham stóðu á endanum uppi sem sigurvegarar, en þeir sigruðu með 3 mörkum gegn einu. Jermain Defoe skoraði öll mörk Tottenham.

Hutton og Keane lánaðir

0

Alan Hutton hefur nú gengið í raðir Sunderland á lánssamningi út leiktíðina. Hutton hefur 14 sinnum komið við sögu á þessari leiktíð með Spurs. Við óskum Hutton góðs gengis það sem eftir lifir tímabils.

 

Robbie Keane gekk í kvöld til liðs við skoska liðið Celtic á lánssamningi út leiktíðina. Keane hefur ekki náð að stimpla sig inn í aðalliðið á undanförnum vikum og hefur nú gengið til liðs við félagið sem hann studdi sem drengur. Við óskum Keane góðs gengis það sem eftir lifir tímabils.

Eiður í viðtali

0

Eiður sem gekk á dögunum til liðs við Tottenham á lánssamningi kom fram í viðtali við vefsíðu Tottenham Hotspur. Þar segist Eiður spenntur yfir því að fá tækifæri til að spila með Tottenham. „Það er gott að vera kominn aftur til Englands,  að vera kominn aftur í búningsklefann, andrúmsloftið, húmorinn, þetta er allt gott“ sagði Eiður. „Ég er mjög þakklátur og hlakkar til að leika með Tottenham Hotspur.“

Þegar maður vaknar upp á leikdegi er eins og allur heimurinn sé að horfa á ensku úrvalsdeildina og ég sakna þess, og hlakka til að upplifa það“.

Nýjustu fréttirnar